Vopnahlé samþykkt í Sýrlandi

Vopnahlé hefur verið samþykkt af stjórn­völdum og uppreisnar­mönnum í Sýrlandi, fyrir tilstilli Rússa og Tyrkja. Vonast er til að friðar­viðræður fylgi í kjölfarið.

Sýrlensk stjórn­völd og uppreisnar­menn hafa samþykkt vopnahlé í stríðinu í Sýrlandi. Vopna­hléið á að taka gildi á miðnætti í Sýrlandi, sem er klukkan tíu í kvöld að íslenskum tíma.

Samkomu­lagið um vopnahléð var gert með milli­göngu Tyrklands og Rússlands, sem styðja ólíkar fylkingar í stríðinu. Ætlunin er að friðar­viðræður á milli stjórn­valda og uppreisnar­manna fylgi í kjölfarið í næsta mánuði í Kasakstan. Í þeim viðræðum er áætlað að Rússar, Tyrkir og Íranir taki þátt. Fjarvera Banda­ríkjanna er sögð sýna pirring í garð Banda­ríkjanna bæði meðal Rússa og Tyrkja.

Þetta er þriðja samkomu­lagið um vopnahlé á árinu, en það hefur ekki haldið lengi hingað til.

Tyrknesk stjórn­völd segja vopna­hléið nú vera mikilvægt skref í átt að lausn á stríðinu. Erdogan Tyrklands­forseti segir það sögulegt tækifæri og ekki ætti að láta það fara til spillis. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að það muni krefjast mikillar athygli að viðhalda vopna­hléinu.

Vopna­hléið tekur ekki til hryðjuverka­samtaka eins og Íslamska ríkisins og Jabhat Fateh al-Sham, sem er fyrrum armur Al-Kaída í Sýrlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár