Uppsagnir hjúkrunarfræðinga tækifæri til einkavæðingar

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir hjúkr­un­ar­fræð­inga þurfa að grípa tæki­færin utan veggja rík­is­spít­ala. Yfir þrjú hund­ruð manns hafa sagt upp störfum á Land­spít­al­anum.

Uppsagnir hjúkrunarfræðinga tækifæri til einkavæðingar

Sigríður Á. Andersen, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir tæki­færi fel­ast í þeirri erf­iðu stöðu sem upp er komin í kjöl­far upp­sagna hjúkr­un­ar­fræð­inga við Land­spít­ala. Tæki­færin séu utan veggja rík­is­spít­ala og þau þurfi hjúkr­un­ar­fræð­ingar að grípa. Þetta segir Sigríður í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. 

„Með auk­inni þátt­töku heil­brigð­is­starfs­fólks utan rík­is­kerf­is­ins fær ríkið líka þá sam­keppni og aðhald sem nauð­syn­leg er“

„Fjölgun fyr­ir­tækja í hvers kyns heil­brigð­is­þjón­ustu hefur ekki bara í för með sér tæki­færi fyrir lækna heldur einnig fyrir hjúkr­un­ar­fræð­inga og aðra starfs­menn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Þessum tæki­færum utan rík­is­rekst­urs­ins þarf hins vegar að fjölga. Það gerir eng­inn nema heil­brigð­is­stétt­irnar sjálfar sem best þekkja spurn­ina eftir nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu. Með auk­inni þátt­töku heil­brigð­is­starfs­fólks utan rík­is­kerf­is­ins fær ríkið líka þá sam­keppni og aðhald sem nauð­syn­leg er til þess að geta staðið undir starf­semi þar sem flestir eru ánægðir, sjúk­lingar og starfs­menn,“ skrifar Sigríður Á. Andersen meðal ann­ars. 

Yfir þrjú hundruð hafa sagt upp

Yfir þrjú hund­ruð manns hafa sagt upp störfum á Land­spít­al­anum, þar af eru 258 hjúkr­un­ar­fræð­ingar. Yfirmenn á spít­al­anum hafa full­yrt að hann muni ekki geta starfað ef til þess­ara upp­sagna kemur. Bandalag háskóla­manna og Félag íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga standa bæði í mála­ferlum við ríkið vegna laga sem sett voru á verk­föll þeirra en gerð­ar­dómur á að skera úr um hver laun félaga í báðum félögum verða. Sem kunn­ugt er felldu hjúkr­un­ar­færð­ingar í síð­ustu viku kjara­samn­ing sem skrifað var undir í júní síð­ast­liðnum. 

Meðal leiða sem stjórn­völd hafa til skoð­unar, til að bregð­ast við ástand­inu á Land­spít­al­anum, er að ráða erlenda hjúkr­un­ar­fræð­inga til starfa. Þetta stað­festi Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í við­tali á RÚV í síð­ustu viku. Innan heil­brigð­is­stétta horfa hins vegar margir út fyrir land­stein­ana. Það sem af er ári hefur verið sótt um hjá land­lækni um 525 vott­orð um stað­fest­ingu á starfs­leyfum sem þarf til að sækja um vinnu í löndum innan evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins. Til sam­an­burðar voru 432 slík leyfi gefin út í fyrra. 

Meðal þeirra sem hafa gagn­rýnt stefnu stjórn­valda í þessum mála­flokki er Jón Þór Ólafsson, sem nýlega hætti þing­mennsku fyrir hönd Pírata. „Þessi rík­is­stjórn teflir heil­brigð­is­þjón­ust­unni í hættu til að geta teflt fram einka­væð­ingu sem lausn. - Mjög hættu­legur leikur,“ sagði hann á Facebook-síðu sinni í síð­ustu viku. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár