Segir grafið undan stuðningi hins opinbera við húsnæðisöflun og barnauppeldi

Árni Páll gagnrýnir ríkis­stjórnina harðlega vegna þróunar vaxta- og barnabóta. Bjarni Benediktsson segir hins vegar að minna þurfi að létta undir með fólki en áður vegna betra árferðis í efnahags­málum.

Harkalega var deilt um barna­bætur, vaxta­bætur og lífeyris­greiðslur í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma á Alþingi í gær. 

„Þegar horft er á þróun vaxtabóta og barnabóta blasir við mjög uggvekjandi mynd,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar og benti á að meðallaun full­vinnandi manneskju hefðu á síðasta ári verið 555 þúsund krónur á mánuði. 

„Þau meðallaun hafa hækkað það sem af er þessu ári. Vaxta­bætur hjóna verða nú að engu þegar meðal­tekjur hvors um sig ná 590 þúsund krónur. Ef bæði hjón eru með meðal­tekjur fá þau engar vaxta­bætur,“ sagði hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár