Nafnlaus hópur gefur útskriftarnemum „Þjóðarpláguna Íslam“ að gjöf

Útgef­andi bók­ar­innar Þjóð­ar­plágan Íslam fær stuðn­ing frá nafn­lausum aðilum til að dreifa bók­inni til þeirra sem útskrif­ast með fram­halds­menntun úr háskóla. Hann seg­ist vilja upp­lýsta umræðu um „eitt helsta vanda­mál, sem steðjar að heim­inum nú um stundir“. Nemendur eru hvattir til að gefa bók­ina að lestri loknum.

Félagið Tján­ing­ar­frelsið gefur alls þús­und útskrift­ar­nemum frá háskólum lands­ins síð­ast­liðið vor, með masters eða dokt­ors­próf, bók­ina umdeildu „Þjóð­ar­plágan Íslam“ eftir norska blaða­mann­inn Hege Storhaug. Nemendur fengu bók­ina senda með pósti í dag. Í bréfi sem fylgdi bók­inni segir að ósk félags­ins sé að þeir sem fá bók­ina að gjöf gefi bók­ina áfram eftir að hafa lesið hana „svo að sem flestum gef­ist kostur á því að kynna sér efni hennar.“ Bókin eigi erindi til allra sem vilja ástunda upp­lýsta umræðu um „eitt helsta vanda­mál, sem steðjar að heim­inum nú um stundir.“

##

Undir bréfið skrifar Valdimar H. Jóhann­es­son, for­maður Tján­ing­ar­frels­is­ins. „Nokkrum aðilum, sem vilja fá að vera nafn­lausir, fannst skipta máli að háskóla­fólk fengi tæki­færi til þess að kynna sér þessa hlið mál­anna og töldu að háskóla­fólk almennt hefði und­ar­legan hroka gagn­vart þessu mál­efni og neit­uðu að horfast í augu við harðar stað­reyndir sem þetta mál snýst um. Þess vegna leit­uðu þeir til okkar með þeirri beiðn að við afhentum þús­und bækur til þeirra sem hafa útskrif­ast síð­ast­liðið vor úr háskólum lands­ins 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár