Þrengt að möguleikum hælisleitenda á að fá réttaráhrifum frestað

„Þess ber að geta að kostn­aður við hvern umsækj­anda í þjón­ustu er 8.000 kr. fyrir hvern dag,“ segir í frum­varpi Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra þar sem lagt er til að girt verði var­an­lega fyrir að kærur hæl­is­leit­enda fresti rétt­ar­á­hrifum ákvörð­unar Útlend­inga­stofn­unar um brott­vísun í til­vikum þar sem hæl­is­um­sókn hefur verið metin ber­sýni­lega til­hæfu­laus og umsækj­andi kemur frá landi sem er á lista stofn­un­ar­innar yfir örugg ríki.

Þrengt að möguleikum hælisleitenda á að fá réttaráhrifum frestað

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp þar sem lagt er til að girt verði var­an­lega fyrir að kærur hæl­is­leit­enda fresti rétt­ar­á­hrifum ákvörð­unar Útlend­inga­stofn­unar um brott­vísun í til­vikum þar sem hæl­is­um­sókn hefur verið metin ber­sýni­lega til­hæfu­laus og umsækj­andi kemur frá landi sem er á lista stofn­un­ar­innar yfir örugg ríki. Með þessum laga­breyt­ingum yrði fest í sessi sú regla sem lög­fest var til bráða­birgða síð­asta haust og Stundin fjall­aði um.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er bent á að hæl­is­um­sóknum fólks frá öruggum ríkjum, einkum Makedóníu og Albaníu, hafi fjölgað umtals­vert. Með frum­varp­inu sé stefnt að því að lág­marka dval­ar­tíma fólks­ins á Íslandi. Fullyrt er að þrátt fyrir þetta sé „hvorki slegið af kröfum til rétt­látrar máls­með­ferðar né rétti umsækj­anda um alþjóð­lega vernd til að fá ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar end­ur­skoð­aða af kæru­nefnd útlend­inga­mála“. Þá er tekið sér­stak­lega fram að „kostn­aður við hvern umsækj­anda í þjón­ustu“ sé „8.000 kr. fyrir hvern dag sem þeir dvelja í þjón­ustu“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár