„Þetta þýðir að við getum sofið í nótt“

Hæl­is­leit­end­urnir ekki sendir úr landi í nótt. Voru að borða kveðju­kvöld­verð þegar sím­tal barst frá Útlend­inga­stofnun.

„Þetta þýðir að við getum sofið í nótt“

Ákvörðun um að senda þrjá hæl­is­leit­endur til Ítalíu klukkan fimm í nótt hefur verið dregin til­baka. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá mönn­unum þremur kom sú ákvörðun á ell­eftu stundu eða um klukkan átta í kvöld, rúmum tutt­ugu klukku­tímum áður en hand­taka átti menn­ina og flytja úr landi.
 
Stundin fjall­aði um mál þeirra í dag og ræddi meðal ann­ars við Christian Boadi en hann hefur búið á Íslandi í tæp fjögur ár, er með atvinnu- og dval­ar­leyfi hér á landi og starfar sem aðstoð­ar­kokkur á veit­inga­staðnum Lækj­ar­brekku. Honum, líkt og hinum tveimur hæl­is­leit­end­unum, var gef­inn 48 klukku­stundir til þess að pakka sínum eigum saman, kveðja vini og vanda­menn, hætta í vinn­unni og gefa sig fram við lög­reglu. Christian var eyði­lagður vegna máls­ins og taldi ekk­ert annað bíða eftir sér á Ítalíu en matar- og hús­næð­is­leysi en hann hafði lifað á göt­unni á Ítalíu áður en hann kom hingað til lands fyrir tæpum fjórum árum.
 
En það voru fleiri en Christian og hæl­is­leit­end­urnir sem voru eyði­lagðir vegna máls­ins því þeir eiga stóran hóp af vinum, kunn­ingjum og sam­starfs­fé­lögum hér á landi. Einn þeirra er vinnu­veit­andi hans Christian en sá er eig­andi Lækj­ar­brekku og heitir Jón Tryggvi Jónsson. Christian hefur unnið hjá Lækj­ar­brekku frá því í ágúst á síð­asta ári og hefur staðið sig með prýði sem aðstoð­ar­kokkur.
 
„Þetta eru frá­bærar fréttir. Við vorum bara að borða kveðju­kvöld­verð­inn þegar við fengum þetta sím­tal sem var eins og himna­send­ing,“ segir Jón Tryggvi sem ætl­aði ásamt starfs­fólki sínu að mæta fyrir utan heim­ili Christian klukkan fimm í nótt og standa við bakið á honum.
 
„Þetta þýðir að við getum sofið í nótt. Það er samt bara hálfur slagur unn­inn því nú þarf að sækja um end­ur­skoðun á ákvörðun inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins til kæru­nefndar útlend­inga­mála. Við ætlum að fylgja þessu eftir alla leið. Það er engin spurn­ing,“ segir Jón Tryggvi.
 
Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Útlend­inga­stofnun höfðu lög­menn hæl­is­leit­end­anna þriggja, sem stóð til að flytja úr landi í nótt, ekki óskað eftir end­ur­upp­töku mála þeirra hjá kæru­nefnd­inni eftir að dómur Hæsta­réttar lá fyrir. Taldi stofn­unin sann­gjarn­ast að láta menn­ina ekki líða fyrir það og hvatti lög­fræð­inga þeirra til þess að sækja um end­ur­upp­töku og var beiðni um flutn­ing mann­anna frestað þar til afstaða kæru­nefnd­ar­innar liggur fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár