„Þessi sæta stelpa er tilvalin í fermingarpakkann“

Ásta á Dals­mynni aug­lýsir hvolpa handa ferm­ing­ar­börnum. Dýra­rétt­ar­lög­fræð­ingur gagn­rýnir sölu­mennsk­una. „Ég fékk sjálf hest í ferm­ing­ar­gjöf,“ segir Ásta.

„Þessi sæta stelpa er tilvalin í fermingarpakkann“

Hunda­rækt­unin Dals­mynni Hundagall­erí ehf. aug­lýsir hvolpa sem til­valdir séu í ferm­ing­ar­pakk­ann. Mynd er birt af French Bulldog. „Þessi sæta stelpa er til­valin í ferm­ing­ar­pakk­ann,“ segir á Facebook-síðu rækt­un­ar­innar sem er í eigu sömu aðila og Hunda­rækt­unin Dals­mynni á Kjal­ar­nesi. Áður hafði rækt­unin aug­lýst hvolpa sem jóla­gjafir. Talsverð umræða hefur orðið um þessi mál á net­inu. „Þið vitið að dýr eru EKKI hlutir sem á að gefa sem pakka, er það ekki öruggt,“ spyr Unnur Birna Björns­dóttir, í athuga­semd við aug­lýs­ing­una sem birt­ist á Facebook. 

Tilvalin í fermingarpakkann
Tilvalin í ferm­ing­ar­pakk­ann Ásta seg­ist ekki sjá neitt athuga­vert við að aug­lýsa hunda handa ferm­ing­ar­börnum.

Hrollvekjandi sölumennska

Árni Stefán Árnason, lög­fræð­ingur sem sér­hæfir sig í dýra­rétti, vekur athygli á mál­inu á Facebook-síðu sinni. „...Það sem er mest svekkj­andi er hvað fólk er almennt steinsof­andi, afskipta­laust en samt æst í að lesa slúður og sem mest af því. Þegar vegið er að dýrum nán­ast heldur fólk kjafti í stað þess að tala máli þeirra. Óþolandi Íslend­ingar,“ skrifar hann í ahuga­semd. Margir taka undir með honum og talað er um að sölu­mennska af þessu tagi sé „hroll­vekj­andi“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár