„Ham­ingjan er dauf“ Steinari Braga rit­höf­undi þykir óham­ingjan for­vitni­legt ástand. Ham­ingjan sé aftur á móti dauf og vilji lítið annað en nýjar gard­ínur og hægt við­hald á því sem fyrir er. Mynd: Kristinn Magnússon

Ekkert breytist hjá kátu fólki

„Af hverju er alltaf svona mik­ill drungi í bók­unum þínum?“ er spurn­ing sem Steinar Bragi hefur fengið eftir hvert ein­asta útgefna verk. Hann hefur aldrei fengið spurn­ing­una oftar en nú, sem kemur honum i opna skjöldu. Sjálfur taldi hann sig nefni­lega hafa skrifað gáska­fullt verk, fullt af lífs­gleði og húmor.

„Hæ, er ekki best að henda við­tal­inu? Ég var ekki þarna, rign­ing í of marga daga eða of mörg bóka­flóð, ég er far­inn að upp­lifa þau eins og ein­hver hafi gleymt að senda mig heim úr skóla­kerf­inu og ég er fastur í munn­legum prófum en man ekki lengur fagið sem verið er að spyrja mig útúr. Ég ætla að skrifa færri bækur í fram­tíð­inni og gefa þær ekki út.“

Þessi skila­boð sendi Steinar Bragi dag­inn eftir að við hitt­umst á kaffi­húsi niðri við höfn. Þá var klukkan hálf þrjú en hún hefði alveg eins getað verið ell­efu að morgni eða fimm um eft­ir­mið­dag. Eins og marga daga á undan var dimmt yfir frá morgni til kvölds og rign­ing úti. Það var annað yfir­bragð yfir Steinari Braga en síð­ast þegar við hitt­umst til að tala um bók eftir hann. Þá var hann sól­brúnn í nýjum skóm úr krókó­díla­leðri. Nýkominn heim úr Asíu­reisu, óvenju frísk­legur og nýbú­inn að gefa frá sér skáld­sögu. Síðan eru liðin fimm ár, hann hefur farið í gegnum skilnað, ferð­ast um heim­inn, gefið frá sér eina skáld­sögu og kannski aðra undir nafn­inu Eva Magn­ús­dóttir, og nú nýlega smá­sagna­safnið Allt fer. Tryggir les­endur Steinars Braga kalla það eitt af hans allra bestu verkum og fyrir það er hann til­nefndur til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna í flokki fag­ur­bók­mennta. Í þetta sinn er hann lík­ari okkur hinum Reyk­vík­ing­unum í útliti og fasi, dálítið grár á lit­inn og geispandi. Honum fannst hann ekki hafa margt að segja en ég er ósam­mála, svo ég skrifa við­talið í óþökk hans og vona að les­endur séu mér sam­mála.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár