Sunny Sweetness ákærð fyrir líflátshótun gegn framkvæmdastjóra barnaverndar

Sunna Guðrún Eaton, sem vakti mikla athygli í upp­hafi árs, hefur verið ákærð fyrir líf­láts­hótun í garð fram­kvæmda­stjóra Barna­verndar. Hún hefur auk þess verið ákærð fyrir æru­meið­andi aðdrótt­anir í hennar garð og heldur fram alvar­legum aðdrótt­unum í nýlegu mynd­bandi.

Sunny Sweetness ákærð fyrir líflátshótun gegn framkvæmdastjóra barnaverndar
Sunny Sweetness Sunna Guðrún Eaton hefur verið ákærð af Rík­is­sak­sókn­ara. Mynd: YouTube

Sunna Guðrún Eaton, sem vakti mikla athygli fyrr á þessu ári vegna mynd­bands þar sem hún gagn­rýnir íslenska femínista, hefur verið ákærð af Rík­is­sak­sókn­ara fyrir líf­láts­hót­anir í garð fram­kvæmda­stjóra Barna­verndar Reykja­víkur, Halldóru Drafnar Gunn­ars­dóttur. Hún er ákærð fyrir brot gegn vald­stjórn og æru­meið­andi aðdrótt­anir gegn Halldóru.

Myndband Sunnu, sem kallar sig Sunny Sweetness, „fem­inists in Iceland“ fór eins og eldur í sinu um sam­fé­lags­miðla í upp­hafi árs. Sunnar tjáir sig um Barna­vernd Reykja­víkur ítrekað í nýlegum mynd­böndum og telur hún sig ofsótta af stofn­un­inni. Í þessu sama mynd­bandi ræðst hún á Halldóru Dröfn. Sunna kaus að tjá sig ekki málið þegar Stundin sótt­ist eftir við­brögðum hennar.  

Hótaði að pynta starfsmanninn

Um er að ræða þrjú mis­mun­andi atvik sem Sunna Guðrún er ákærð fyrir. Samkvæmt ákæru á Sunna að hafa hótað Halldóru ofbeldi og líf­láti sum­arið 2012 ef hún hefði afskipti af sínum málum. Í ákæru kemur fram að annar starfs­maður Barna­verndar var við­staddur þegar sú hótun fór fram. Seinna atvikið var 8. febr­úar árið 2013 en þá er Sunna sögð hafa hótað Halldóru ofbeldi og líf­láti á ný í sím­tali við annan starfs­mann Barna­verndar Reykja­víkur. Sunna er sögð hafa lýst því yfir að Halldóra væri „erkió­vinur sinn og fórn­ar­lamb sitt og kvaðst ætla pynta Halldóru Dröfn þangað til hún deyi.“ Þriðja atvikið var svo 12. apríl árið 2013 en sam­kvæmt ákæru sendi Sunna tvö sms skeyti á Halldóru úr far­síma­núm­eri sínu þann dag. Samkvæmt ákæru var efni skeyt­anna stutt: „Barna­ræn­ingi“ ann­ars vegar og „Skíta­mella“ hins vegar.

Fékk kvíðahnút að sjá bréf frá Reykjavíkurborg

Þann 28. apríl birti Sunna Guðrún mynd­band á Youtube sem ber heitið „Child protective services in Reykja­vik“, þar sem hún bæði gagn­rýnir Barna­vernd Reykja­víkur og segir sína hlið á mál­inu. „Ég var alltaf svo hrædd við að fara í póst­kass­ann minn og sjá bréf frá Reykja­vík­ur­borg. Ég þekki margar mæður sem eru hræddar við að fara í póst­kass­ann sinn því þær eru hræddar um að ein­hver hafi til­kynnt þær til Barna­verndar. Ég skal segja ykkur það, í Skand­in­avíu til­kynnir fólk mann ef maður segir haltu kjafti eða hækkar róm­inn við barnið,“ segir Sunna meðal ann­ars í mynd­band­inu.

„... í Skand­in­avíu til­kynnir fólk mann ef maður segir haltu kjafti eða hækkar róm­inn við barnið“

Hún seg­ist alltaf hafa áhyggjur af því að lenda upp á kant við ein­hvern myndi við­kom­andi til­kynna sig til Barna­verndar. „Ég hlakka til að fara í póst­kass­ann minn til að sjá hvaða hálf­viti hefur til­kynnt mig vegna ein­hvers. Það er fokk­ing gaman. Ég verð spennt. Ég fæ ekki lengur kvíða­hnút í mag­ann þegar ég sé bréf frá Reykja­vík­ur­borg. Ég vil sjá núna hvað fólk er að segja um mig. Ég hef ekk­ert að gera svo það veitir mér spennu,“ segir Sunna síðar í sama mynd­bandi.

Lýsir atvikinu

Um mitt mynd­band lýsir Sunna raunar hennar hlið á mál­inu sem hún hefur nú verið ákærð fyrir. „Þau tóku börn vegna þess að ég fékk flog og var í upp­námi. Ég braut eitt­hvað og öskr­aði. Þau létu hand­taka mig, fyrsta skipti sem ég hef verið hand­tekin og sett í fanga­klefa í nokkra klukku­tíma. Þegar ég kom út höfðu þeir farið í leik­skól­ann og tekið börnin,“ segir Sunna. Því næst ræðst hún á Halldóru Dröfn, fram­kvæmda­stjóra Barna­verndar Reykja­víkur, og birtir mynd af henni. Hún segir Halldóru Dröfn stýra glæpa­sam­tökum sem kalli sig Barna­vernd Reykja­víkur.

Viðurkennir sök í Youtube-myndbandi

 „Á Íslandi, ef þú sýnir ein­hvers konar ósam­vinnu­þýði eða til­finn­ingar vegna þess sem Barna­vernd geri manni, ef maður sýnir þeim reiði þá segja þeir að maður sé ekki í til­finn­inga­legu jafn­vægi,“ segir Sunna. Hún dregur því næst upp bréf frá Rík­is­sak­sókn­ara og ræðir ákæruna. „Ég hef sagt henni hvað mér finnst um hennar ill­virki, ég hef ekk­ert gott um hana að segja [...] Ég kann­ast ekki við að hafa hótað henni, en ég veit að ég hef sagt henni hvað mér finnst um hana,“ segir Sunna. Hún stendur við orð sín um að hún telur Halldóru vera „barna­ræn­inga“ en kann­ast ekki við að hafa skrifað „skíta­mella“ í sms-skeyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár