Stjórnvöld fæla flóttamenn frá Noregi

Hryll­ings­sögur eru sagðar á síðu sem norsk stjórn­völd halda úti á Facebook. Þar segja stjórn­völd, á nokkrum tungu­málum, frá köldum mót­tökum í land­inu, hertri lög­gjöf þeirra, og því að hæl­is­leit­endur séu í auknu mæli farnir að snúa til baka, frá Noregi, vegna þess hve von­laust sé að fá hæli þar.

Stjórnvöld fæla flóttamenn frá Noregi
Flótta­fólk. Hæl­is­leit­endur eiga, sam­kvæmt stjórn­völdu, ekki einusinni að reyna að koma til lands­ins.

Aftur heim.
Aftur heim. Síðar er farið að segja frá því að óham­ingu­samir flótta­menn snúi aftur heim vegna þess hvernig mót­tökur þeir fá.

Norsk stjórn­völd halda úti síðu á Facebook þar sem þeir reyna að fæla flótta­menn frá því að koma til lands­ins. Síðan, sem ber heitið „Strang­ari reglu­gerðir varð­andi flótta­menn í Noregi“ var stofnuð 6. nóv­em­ber í fyrra. Fyrsta til­kynn­ingin sem sett var inn á síð­una, dag­inn sem hún var opnuð, listar upp reglu­gerðir sem stjórn­völd hafa sett á til þess að hefta flæði flótta­manna til Noregs.  Þar kemur fram að bætur til flótta­fólks verði minnk­aðar um 20%, að tím­inn sem fólk þarf að hafa verið í Noregi til þess að fá var­an­legt dval­ar­leyfi verði lengdur úr þremur árum í fimm, í stað­inn verði gefin út tíma­bundin dval­ar­leyfi og allar til­raunir reyndar til að senda fólk úr landi, og að lög sem auð­velda sam­ein­ingu fjöl­skyldna flótta­fólks verði þrengd.

Norska ljónið.
Norska ljónið. For­síðu­myndin er ljónið sem prýðir skjalda­merki lands­ins, með öxina reidda til höggs.
 

 Fyrstu inn­leggin á síð­unni eru á ensku, en nokkrum dögum síðar fóru að birt­ast inn­legg á öðrum tungu­málum, bæði rúss­nesku, norsku og arab­ísku. Lang­flest inn­legg núna eru á arab­ísku, og er það alltaf vísað í síður norskra stjórn­valda, þar sem sagt er frá hertum reglum, slæmum aðbún­aði flótta­fólks í Noregi, og frá­sagnir af flótta­mönnum sem hafa verið fluttir úr landi. 

Arabíska.
Arabíska. Upp­lýs­ingar á síð­unni er að finna á ýmsum tungu­málum, en er arab­íska þó algeng­ust.

Matargjafir útiloka frekari aðstoð

Á síð­unni er vísað í upp­lýs­ingar stjórn­valda um að flótta­fólk sem komi frá Rúss­landi verði sent aftur þangað, einnig verði allir þeir sem ekki hafi undir höndum vega­bréf og nákvæm skjöl til að skýra ferðir sínar sendir til baka. Sér­stak­lega er tekið fram að flótta­fólk fái ekki pen­inga frá stjórn­völdum, en í staðin kort sem ein­ungis er hægt að nota til þess að versla mat, og ekk­ert annað. Flótta­fólk sem þiggur mat­ar­gjafir frá flótta­manna­búðum úti­loki með því frek­ari aðstoð frá stjórn­völdum. 

Mikilvægar upplýsingar.
Mik­il­vægar upp­lýs­ingar. Síða stjórn­valda fer ekki í neinar graf­götur með sinn áróður.
 

40 breyt­ingar á norskri lög­gjöf, sem allar miða að því að “þrengja flótta­manna­lög­gjöf­ina og gera það óaðl­að­andi að sækja um hæli í Noregi”

Úr landi.
Úr landi. Reglu­lega koma inn á síð­una sögur af þeim flótta­mönnum sem stjórn­völdum hefur tek­ist að fá flutta úr land­inu.
 

Í byrjun jan­úar á þessu ári var svo til­kynnt um 150 blað­síðna skjal, sem inni­heldur 40 breyt­ingar á norskri lög­gjöf, sem allar miða að því að “þrengja flótta­manna­lög­gjöf­ina og gera það óaðl­að­andi að sækja um hæli í Noregi”. Einnig er tekið fram, á nokkrum mis­mun­andi tungu­málum, að vegna hertrar lög­gjafar séu flótta­menn í auknum mæli að snúa frá land­inu. 

Þremur dögum eftir að síðan var opnuð kom inn á hana til­kynn­ing um að öllum kommentum við færslur á henni verði eytt, vegna óvið­eig­andi ummæla sem þar hafi komið fram.

Ummælum eytt.
Ummælum eytt. Stuttu eftir opnun síð­unnar kom þessi færsla um að öllum ummælum verði eytt vegna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár