Stjórnendur RÚV sprengja fjárlagaramma

Svört skýrsla. Unnið eftir röngum áætl­unum. Ungt fólk hætt að horfa. Stefnir í tap­rekstur áfram. RÚV ohf. hefur tapað 813 millj­ónum frá 2007. Rekstur óhag­stæð­ari en hjá 365. Sligandi skuldir

Stjórnendur RÚV sprengja fjárlagaramma
Svart útlit Rekstur RÚV og efna­hagur er í ólestur ef marka má nýja skýrslu. Stjórn­mendur vinna sam­kvæmt röngum áætl­unum. Mynd: Kristinn Magnússon

Ný skýrsla nefndar Eyþórs Arnalds leiðir í ljós að rekstur RÚV ohf. frá stofnun félags­ins árið 2007 hefur ekki verið sjálf­bær. Skýrslan er kolsvört og í raun áfell­is­dómur yfir stjórn­endum félags­ins fyrr og nú. Halla­rekstur hefur verið fjár­magn­aður með auknum rík­is­fram­lögum. Þá er því lýst í skýrsl­unni að áætl­anir árs­ins í ár séu mið­aðar við hækkun útvarps­gjalds sem ekki hafi orðið að veru­leika. Þar stefnir því í óefni. Næsta ár lítur illa út hvað rekstur varðar. Sligandi skuldir eru á félag­inu og rekst­ur­inn í ólestri ef litið er til áætl­ana.

Nefndin gerði sam­an­burð á rekstri RÚV og á útvarps- og sjón­varps­sviði 365. Það leiddi í ljós að RÚV er rekið með mun meiri til­kostn­aði og því óhag­stæð­ari. Þá er því lýst að lög­bundið eft­ir­lit með rekstr­inum er ekki virkt. 

Samkvæmt skýrsl­unni er fram­tíðin hjá RÚV dökk. Mikil breyt­ing í hegðun neyt­enda hefur orðið til þess að mik­ill sam­dráttur er í áhorfi á hefð­bundna sjón­varps­dag­skrá. Ungt fólk í hópi áhorf­enda hefur í mestum mæli yfir­gefið RÚV. Nefndin lætur í ljósi það álit að nauð­syn­legt sé að end­ur­skoða hlut­verk RÚV í ljósi þess­arar stöðu. Gera verði nýjan þjón­ustu­samn­ing í sam­ræmi við lög nr. 23/2013 og í honum verði skil­greind sú þjón­usta sem RÚV ber að sinna og hvaða fjár­munir eigi að koma fyrir þá þjón­ustu út samn­ings­tím­ann. Með þeim samn­ingi náist að ramma betur inn hlut­verk, skyldur og for­gangs­röðun RÚV.

Skýrslu­höf­undar láta í ljósi efa­semdir um að ohf. rekstr­ar­formið sé heppi­legt fyrir starf­semi RÚV þar sem reynslan sýni að félagið er ekki rekið með tak­mark­aðri ábyrgð þegar ávallt er gert ráð fyrir að rík­is­sjóður rétti af fjár­hag félags­ins. Þá er bent á það að óhag­stæður samn­ingur hefði verið gerður við Vodafone. Stjórn­völd hefðu getað lokið ljós­leið­ara­væð­ingu lands­ins fyrir sömu fjár­hæð og Vodafone fékk fyrir samn­ing­inn. Þá er sett spurn­ing­ar­merki við að  RÚV sé á aug­lýs­inga­mark­aði. Spurt er hvort RÚV sé best til þess fallið að „ná fram mark­miðum rík­is­ins sem snúa að íslenskri menn­ingu, tungu og lýð­ræð­isum­ræðu”. Loks velta skýrslu­höf­undar því upp hvort hægt að fá betri nýt­ingu á fjár­veit­ingar rík­is­sjóðs til stofn­un­ar­innar.

Skýrsl­una má lesa í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

RÚV

FréttirRÚV

Útvarps­stjóri mót­mælti mögu­legum 388 millj­óna nið­ur­skurði hjá RÚV

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri brást illa við mögu­legum nið­ur­skurði hjá Rík­is­út­varp­inu á fjár­lögum fyrir næsta ár. Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vil­hjálmur Árnason, vildi taka fé af RÚV og styrkja N4 og var þetta rætt innan fjár­laga­nefndar. Stefán vill ekki ræða sam­töl sín við Lilju Alfreðs­dóttur ráð­herra en seg­ist standa vörð um RÚV á hverjum degi.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár