Spyr hvort útvista megi starfsemi eftirlitsstofnana til einkaaðila

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur áhyggjur af „eft­ir­lits­iðn­að­inum“ og spyr hvort ráð­herra hafi látið kanna kosti þess og galla að útvista starf­semi ein­stakra eft­ir­lits­stofn­ana að hluta eða öllu leyti.

Spyr hvort útvista megi starfsemi eftirlitsstofnana til einkaaðila

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur lagt fram fyr­ir­spurnir til fimm ráðu­neyta þar sem því er meðal ann­ars velt upp hvort komið hafi til álita að útvista starf­semi eft­ir­lits­stofn­ana hins opin­bera.

„Hefur ráð­herra látið kanna kosti þess og galla að útvista starf­semi ein­stakra eft­ir­lits­stofn­ana að hluta eða öllu leyti? Telur ráð­herra að slík útvistun geti verið skyn­sam­leg?“ spyr Óli. 

Þing­mað­ur­inn er einn þeirra áhrifa­manna í Sjálf­stæð­is­flokknum sem talað hefur hvað harð­ast fyrir einka­væð­ingu, meðal ann­ars í heil­brigð­is­kerf­inu. Þá hefur hann beitt sér gegn því að hið opin­bera verji miklum fjár­munum til eft­ir­lits­stofn­ana. Í umræðum um neyt­enda­mál á Alþingi þann 16. októ­ber 2013 sagð­ist Óli Björn hafa miklar áhyggjur af „eft­ir­lits­iðn­að­inum sem er orð­inn alveg gríð­ar­lega stór iðn­aður“. Hann sagði brýnt að ná fram auknu hag­ræði og sveigj­an­leika í eft­ir­lits­kerf­inu og hvatti Össur Skarp­héð­ins­son, þáver­andi þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, til að ræða við „for­ráða­menn fyr­ir­tækja um þann kostnað sem þau verða fyrir við að sinna opin­beru eft­ir­liti sem verður stöðugt meira og meira og dýr­ara og dýr­ara“.

„Ég hef nefni­lega áhyggjur af því sem gerst
hefur hér á síð­ustu árum þegar kemur að eft­ir­lits­iðn­að­inum sem er orð­inn alveg
gríð­ar­lega stór iðn­aður.“

„Við eigum að gera okkur grein fyrir því að fjöldi eft­ir­lits­stofn­ana hefur ekk­ert með það að gera hvort hags­munir neyt­enda séu tryggðir. Fjöldi eft­ir­lits­stofn­ana hefur ekk­ert með það að gera að tryggja hér eðli­lega og sann­gjarna sam­keppni,“ sagði Óli Björn. 

Í fyr­ir­spurnum sínum til ráðu­neyta í dag spyr Óli Björn hvaða stofn­anir sinna eft­ir­liti á þeirra vegum. Þá er spurt um kostnað og mögu­leik­ann á útvistun:

Hver hafa verið árleg fram­lög rík­is­sjóðs til hverrar stofn­unar árin 2010–2016? 

Hverjar hafa verið árlegar sér­tekjur hverrar stofn­unar árin 2010–2016? 

Hver var heild­ar­fjöldi starfs­manna hverrar stofn­unar í lok árs 2010 og árs­lok 2016? 

Hefur eft­ir­liti eða ein­stökum verk­efnum eft­ir­lits­stofn­ana verið útvi­stað? Ef svo er, hverju hefur verið útvi­stað? 

Hefur ráð­herra látið kanna kosti þess og galla að útvista starf­semi ein­stakra eft­ir­lits­stofn­ana að hluta eða öllu leyti? Telur ráð­herra að slík útvistun geti verið skyn­sam­leg? 

Hugtakið útvistun er þýð­ing á enska orð­inu „outsourcing“ og lýsir því þegar stofnun felur utan­að­kom­andi aðilum, svo sem einka­fyr­ir­tækjum, að sinna til­tek­inni þjón­ustu fyrir sig eða verk­efnum gegn greiðslu. Í útvist­un­ar­stefnu rík­is­ins, sem sam­þykkt var í stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins árið 2006, er útvistun lýst sem þjón­ustu „sem ríkið kaupir af utan­að­kom­andi aðilum, þ.e. ein­stak­lingum, fyr­ir­tækjum, sjálfs­eign­ar­stofn­unum, félaga­sam­tökum eða sveit­ar­fé­lögum, hvort sem um er að ræða þjón­ustu sem keypt er vegna verk­efna sem ríkið sinnir sjálft eða þjón­ustu sem verk­taka er falið að veita almenn­ingi og fyr­ir­tækjum“. Markmið stefn­unnar var „gott sam­starf við einka­að­ila um úrlausn opin­berra verk­efna þar sem ríkið er ávallt upp­lýstur kaup­andi“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár