Mynd: Pressphotos

Skýrslan sem kjósendur máttu ekki sjá lýsir „aflandsvæðingu“ og aðgerðaleysi í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins 

Skýrslan er áfell­is­dómur yfir stjórn­völdum sem huns­uðu ráð­legg­ingar sér­fræð­inga og létu hjá líða að sporna gegn stór­felldri aukn­ingu skattaund­an­skota á útrás­ar­tím­anum. Á þessum árum fór Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með fjár­mála­ráðu­neytið en Bjarni Bene­dikts­son seg­ist ekki hafa viljað að skýrslan væri sett í „kosn­inga­sam­hengi“.

Skýrsla starfs­hóps um aflandseignir Íslend­inga hefur að geyma gagn­rýni á þá stefnu sem rekin var á árunum fyrir hrun á sviði skatta­lög­gjafar og skatta­eft­ir­lits.

Varpað er ljósi á and­vara- og aðgerða­leysi íslenskra stjórn­valda gagn­vart stór­felldri aukn­ingu skattaund­an­skota og notkun Íslend­inga á aflands­fé­lögum, einkum á útrás­ar­ár­unum þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór með fjár­mála­ráðu­neytið.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, tók ákvörðun um að fresta birt­ingu skýrsl­unnar fram yfir þing­kosn­ingar, en efnt var til haust­kosn­inga í kjöl­far umfjöll­unar um Panama-skjölin og harðra við­bragða almenn­ings við upp­lýs­ingum um tengsl þriggja ráð­herra við aflands­fé­lög. 

Í skýrsl­unni er fjallað um „afland­svæð­ingu“ á Íslandi sem „skil­getið afkvæmi fjár­mála­þensl­unnar“ og rakið hvernig ráð­legg­ingar sér­fræð­inga um að inn­leiða svo­kall­aða CFC-lög­gjöf í takt við þró­un­ina í nágranna­lönd­unum voru huns­aðar í rík­is­stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Fram kemur að á sama hátt og Rann­sókn­ar­skýrsla Alþingis leiddi í ljós ákveðin lausa­tök í opin­berri umgjörð um fjár­mála­kerfið hafi íslensk skatta­lög „gefið meira svig­rúm til flutn­ings eigna úr lög­sög­unni með lög­legum hætti en víða ann­ars staðar“. Auk þess hafi eft­ir­fylgni og gagna­skrán­ing ekki haldið í við hraðan vöxt fjár­magns­flutn­inga.

Fyrir vikið hafi gríð­ar­legum fjár­munum verið skotið undan skatti og sam­fé­lagið orðið af tugum millj­arða. 

Umfang íslenskra aflandseigna „einstakt í heiminum“

Stökk­breyt­ing varð á flæði fjár til aflands- og lág­skatta­svæða á fyrsta ára­tug þess­arar aldar. Fjöldi aflands­fé­laga í eigu Íslend­inga fer­tug­fald­að­ist frá 1999 fram að hruni og eignir í stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg 46-föld­uð­ust á sama tíma­bili.

„Eins og Panama­skjölin gefa til kynna var umfang afland­svæð­ingar íslensks efna­hags­lífs ein­stakt í heim­inum á þessum tíma. Afl­vak­inn var íslenska fjár­má­laun­d­rið og drif­kraft­ur­inn skatta­hag­ræð­ing og virk mark­aðs­setn­ing íslenskrar sér­banka­þjón­ustu í Lúx­em­borg,“ segir í for­mála skýrsl­unnar og fram kemur að sér­stöðu íslenskra þegna meðal ann­arra þjóða á þessu sviði megi „rekja beint til hinnar hröðu fjár­mála­væð­ingar sam­fé­lags­ins á árunum 2003-2008, en íslensk lög­gjöf og stjórn­kerfi voru hvorki undir hana búin né brugð­ust við henni í tíma.“ 

Á þessu tíma­bili voru fyrst Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og svo Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin við völd. Fjár­mála­ráðu­neytið heyrði undir ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fyrst Geir H. Haarde og svo Árna M. Mathiesen. 

Ráðleggingar sérfræðinga voru hunsaðar

Eitt af því sem fundið er að í skýrsl­unni er hve seint Íslend­ingar inn­leiddu svo­kall­aða CFC-lög­gjöf. Skamm­stöf­unin CFC stendur fyrir controlled for­eign companies en slík lög­gjöf er alþekkt úrræði á sviði skatta­réttar sem heim­ilar skatta­yf­ir­völdum í heima­landi að skatt­leggja tekjur félaga á lág­skatta­svæðum með tekjum þeirra skatt­borg­ara sem eiga eða stjórna félög­unum.  

„Sem dæmi má nefna að Banda­ríkin inn­leiddu CFC-lög­gjöf á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar og Danir, Svíar og Norðmenn fyrir 2004, en henni er ætlað að hindra leynd og skattsnið­göngu með mála­mynda­eign­ar­haldi í gegnum aflands­svæði. Á Íslandi tóku regl­urnar aftur á móti ekki gildi fyrr en 2011, þegar allt var um garð gengið,“ segir í skýrsl­unni. 

Frumvarp um CFC-lög­gjöf­ina var sam­þykkt á Alþingi í apríl 2009, fáeinum mán­uðum eftir að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar fór frá völdum. Hug­myndin að setn­ingu slíkra laga hafði þó komið fram mörgum árum fyrr eins og lýst er í skýrsl­unni:

Geir H. Haarde og Árni M. Mathiesen gegndu emb­ætti fjár­mála­ráð­herra á árunum fyrir hrun

„Í skýrslu starfs­hóps um umfang skattsvika á Íslandi frá des­em­ber 2004, sem fjár­mála­ráð­herra lagði fyrir Alþingi á 131. lög­gjaf­ar­þingi 2004-2005, kom m.a. fram að hraða þyrfti setn­ingu svo­kall­aðra CFC-ákvæða (e. Controlled Foreign Companies) í íslenska skatta­lög­gjöf til að koma í veg fyrir mögu­leg skatt­svik með stofnun aflands­fé­laga í skatta­skjólum. Þrátt fyrir þessi til­mæli starfs­hóps­ins virð­ist sem stjórn­völd hafi á þessum tíma haft efa­semdir um nauð­syn þess að setja slíka lög­gjöf.“ Starfs­hóp­ur­inn telur „sterk rök hníga hins vegar til þess að meiri festa hefði verið á umgengni íslenskra aðila við aflands­fé­lög hefði þessi lög­gjöf verið tekin upp hér á landi á þeim tíma sem það var lagt til“. Í Banda­ríkj­unum hafi sam­svar­andi lög­gjöf verið tekin upp löngu fyrir alda­mót og á hinum Norð­ur­lönd­unum strax í upp­hafi ald­ar­innar, árin 2002 og 2003.

„Á Íslandi er það aftur á móti ekki fyrr en með lögum nr. 46/2009 sem sam­þykkt voru á Alþingi 15. apríl 2009, sem CFC-ákvæðið kemur inn í tekju­skattslögin.“ Þá hafi reglu­gerð sem lýtur að fram­tali sam­kvæmt CFC-regl­unum ekki litið dags­ins ljós fyrr en á árinu 2013. Það beri ekki vitni um að þessi þáttur í skatta­legu eft­ir­liti hafi verið fram­ar­lega í for­gangs­röð stjórn­valda. 

Hefði CFC-löggjöf unnið gegn útlánaþenslunni?

„Það er mat starfs­hóps­ins að hefði CFC-lög­gjöfin verið inn­leidd fyrr, eða á þeim tíma sem slíkt var lagt til í fyrsta skipti og lög­unum fram­fylgt af ein­urð, hefði það auð­veldað honum það verk­efni til mik­illa muna að leggja mat á umfang eigna­um­sýslu á aflands­svæðum,“ segir í skýrsl­unni.

„Með til­liti til þess mála­mynda­fjár­magns­flótta sem hér átti sér stað á árunum 2003-2008, má segja að stjórn­völd hafi að þessu leyti byrgt brunn­inn þegar barnið var dottið ofan í. Ólíklegt er að fjár­magns­flótt­inn hefði orðið eins mik­ill ef hér hefðu gilt sömu reglur og á hinum Norð­ur­lönd­unum.“

„Má segja að stjórn­völd hafi að þessu leyti byrgt brunn­inn þegar barnið var dottið ofan í“

Þá er getum leitt að því að fjár­mála­hrunið árið 2008 hefði orðið væg­ara, þ.e. „fallið“ orðið „minna“ ef ráð­legg­ingum sér­fræð­inga um setn­ingu CFC-lög­gjafar hefði verið fylgt: „Þessir fjár­magns­flutn­ingar léku veiga­mikið hlut­verk í fjár­mála­væð­ingu fyrsta ára­tugar ald­ar­innar. Því má jafn­vel leiða getur að því að ef þetta hefði verið gert fyrr hefði eigna­verðs- og útlána­þensla þessa tíma­bils orðið væg­ari en raunin varð og fallið minna.“

Bjarni, Ólöf og meirihluti þingflokksins voru
fjarverandi atkvæðagreiðsluna um CFC-löggjöf

Þegar CFC-lög­gjöfin var inn­leidd í íslenskan rétt á Alþingi þann 15. apríl 2009, ásamt fleiri úrræðum til að styrkja skatt­fram­kvæmd og sporna gegn skaattaund­anskotum, voru tutt­ugu þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins fjar­ver­andi atkvæða­greiðsl­una.

Hvorki Bjarni Bene­dikts­son né Ólöf Nordal, núver­andi for­ystu­menn flokks­ins, voru við­stödd atkvæða­greiðsl­una en þau eiga það sam­eig­in­legt að tengj­ast aflands­fé­lögum sem koma fyrir í Panama-skjöl­unum.  Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, núver­andi þing­kona Við­reisnar, var vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á þessum tíma og var einnig fjar­ver­andi atkvæða­greiðsl­una. 

Lög­gjöfin var, að mati skatt­rann­sókn­ar­stjóra, til þess fallin að draga úr und­an­skotum og hvata til þess að færa fjár­magn til lág­skatta­svæða. Reglu­bundin upp­lýs­inga­gjöf banka og fjár­mála­fyr­ir­tækja til íslenskra skatt­yf­ir­valda var aukin og lögð skylda á íslenska gjald­endur að veita skatt­yf­ir­völdum upp­lýs­ingar um við­skipti sem dótt­ur­fé­lög þeirra eða útibú eiga við íslenska skatt­þega. Þá var hert á kröfum um skil fjár­mála­fyr­ir­tækja á upp­lýs­ingum til skatt­yf­ir­valda um afleiðu­við­skipti, eigna­stýr­ingu, milli­göngu­starf­semi og fleira, skatt­yf­ir­völd fengu aukin úrræði til eft­ir­lits og rann­sókna og unnið var gegn mögu­leikum end­ur­skoð­enda og lög­manna til að neita skatt­rann­sókn­ar­stjóra um afhend­ingu gagna og upp­lýs­inga við rann­sókn skattsvika­mála. 

Rík­is­skatt­stjóri og skatt­stjórar allra umdæma fögn­uðu frum­varp­inu og hvorki Rík­is­end­ur­skoðun né Seðla­banki Íslands gerðu athuga­semdir við það. Við­skipta­ráð Íslands, Samtök atvinnu­lífs­ins, Lög­manna­fé­lag Íslands og Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja gagn­rýndu hins vegar ýmis ákvæði þess og töldu að frum­varpið þyrfti frek­ari skoð­unar við. 

Tjónið af skattasamkeppni

Þegar rætt var um mál­efni tengd skatta­skjólum á Alþingi þann 7. apríl í fyrra sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra að hann teldi „rétt að blanda ekki saman um of umræð­unni um skatta­sam­keppni og vand­anum við lág­skatta­svæði sem eru nýtt í þeim til­gangi að fela eigna­tekjur, skatt­skyldan hagnað o.s.frv.“ Þá sagð­ist hann gruna að þeir Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna, hefðu ólíka afstöðu til alþjóð­legrar skatta­sam­keppni. 

„Ég held að ég og hv. þing­maður séum ekki á sama bát, séum ekki sam­mála um alþjóð­lega skatta­sam­keppni, vegna þess að ég tel að hún geti verið af hinu góða. Írar eru til að mynda með 6,25% tekju­skatt á fyr­ir­tæki sem stunda rann­sóknir og þróun á Írlandi. Ég held að átak Norð­ur­land­anna snúi ekki að því að upp­ræta slíka hluti. Það er nú bara það sem ég vildi segja um þann þátt máls­ins,“ sagði Bjarni. 

Írland er eina þró­aða ríkið í heim­inum sem inn­heimtir lægri fyr­ir­tækja­skatta en Ísland. Í skýrslu sam­tak­anna Oxfam sem skilað var í des­em­ber síð­ast­liðnum er Írland flokkað sem ein af 15 alræmd­ustu skattaparadísum í heimi, á pari við Cayman-eyjar og Bresku Jóm­frúr­eyj­arnar. Haft er eftir Jim Clarken, fram­kvæmda­stjóra Oxfam á Írlandi á vef Irish Times að þar sé rekin „skelfi­leg skatta­stefna sem stuðli að auknum ójöfn­uði með því að leyfa ein­hverjum fjár­sterk­ustu fyr­ir­tækjum í heimi að kom­ast hjá því að greiða með sann­gjörnum hætti til sam­neysl­unnar“.

Í skýrslu starfs­hóps­ins er vikið að alþjóð­legri skatta­sam­keppni og horft til „þess óbeina tjóns sem ekki kemur til vegna rýrnunar á skatt­stofnum, heldur vegna þess að stjórnvöld eru þvinguð til þess að lækka skatt­hlutföll í sam­keppni um skatt­stofna við aflands- og lágskatta­svæði.“ Bent er á að „nýlegar aðgerðir OECD og ein­stakra ríkja, þ.á m. Íslands, miða að því að vinda ofan af því mis­rétti sem hlýst af alþjóð­legri skatta­sam­keppni ríkja gagn­vart stór­fyr­ir­tækjum og ofur­ríkum ein­stak­lingum“.

Þá er vikið stutt­lega að fyr­ir­tækja­skatt­lagn­ingu á Írlandi og bent á að „fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins sektaði á dög­unum alþjóð­legt stór­fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar á Írlandi um 13 ma. evra (1.700 ma.kr.) fyrir að ástunda háþró­aða gerð milli­verð­lagn­ingar sem fyr­ir­tækið, og reyndar írsk stjórn­völd líka, töldu fylli­lega lög­lega.“ 

Fram kemur að það sé „líklega ekki til­viljun að skatt­hlutföll fjármagnstekju­skatts og tekju­skatts fyr­ir­tækja hafa hríðfallið um allan heim á sama tíma og alþjóðlegum fjármálaum­svifum á lágskatta­svæðum hefur vaxið fiskur um hrygg“ og eft­ir­far­andi mynd af þróun fyr­ir­tækja­skatta dregin upp. Myndin hér að ofan sýnir hve ötul­lega íslensk stjórn­völd unnu að því að létta sköttum af fyr­ir­tækjum á útrás­ar­ár­unum.

Vildi ekki setja skýrsluna í „kosningasamhengi“

Samkvæmt nið­ur­stöðum skýrsl­unnar má ætla að í lok árs­ins 2015 hafi upp­safnað umfang eigna og umsvifa Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 legið á bil­inu 350-810 millj­örðum króna. Þá er talið að tekju­tap hins opin­bera vegna van­tal­inna eigna kunni að nema allt frá 2,8-6,5 millj­örðum árlega miðað við gild­andi tekju­skattslög. Bent er á að þró­unin á hinum Norð­ur­lönd­unum hafi verið ólík afland­svæð­ing­unni á Íslandi. Því vakni óhjákvæmi­lega sú spurn­ing „hvort hægt hefði verið að draga úr eða kom­ast hjá þessum mikla fjármagns­flótta með því að fylgja líkri stefnu og þau gerðu“. 

Bjarni Bene­dikts­son, starf­andi fjár­mála­ráð­herra og verð­andi for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, hefur við­ur­kennt að hafa sjálfur tekið ákvörðun um að fresta birt­ingu skýrsl­unnar fram yfir kosn­ingar. Þá hefur hann sagst ekki hafa viljað setja skýrsl­una í „kosn­inga­sam­hengi“. Sem fyrr segir hefur hún að geyma gagn­rýni á þá stefnu sem rekin var á sviði skatta­lög­gjafar og skatta­eft­ir­lits á árunum fyrir hrun þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var við völd á Íslandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráðherra hafði réttarstöðu rannsóknarþola
FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráð­herra hafði rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, setti fram alvar­legar ásak­anir á hendur Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra í Silfrinu síð­ustu helgi. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sér ekki heim­ilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola eftir kaup á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga og upp­ljóstr­anir Panama­skjal­anna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár