Sjanghæ-ferð og eðalvín vegna Sorpustöðvar í Álfsnesi

Kynntu sér tækni­lausn kanadísks fyr­ir­tækis eftir að hafa ákveðið að semja við Aikan

Sjanghæ-ferð og eðalvín vegna Sorpustöðvar í Álfsnesi
Titr­ingur vegna stöðvar í Álfsnesi Verklag Sorpu í tengslum við fyr­ir­hug­aða gas- og jarð­gerð­ar­stöð í Álfsnesi hefur vakið tals­verða athygli. Mynd: Af vef Sorpu

For­svars­menn kanadíska fyr­ir­tæk­is­ins Herhof Canada Technik (HCT) telja að Sorpa hafi komið óheið­ar­lega fram þegar full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins voru sendir til Þýska­lands til að skoða verk­smiðjur HCT. Yfir­lýstur til­gangur heim­sókn­ar­innar, þann 13. maí í fyrra, var að skoða tækni­lausn­irnar sem HCT hefur upp á að bjóða vegna fyr­ir­hug­aðrar gas- og jarð­gerð­ar­stöðvar Sorpu í Álfsnesi. Daginn áður hafði þó Sorpa ákveðið að ganga til samn­inga við annað félag, Aikan í Danmörku. 

„Við höfðum áhuga á að kynn­ast tækni­lausn fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir Björn H. Hall­dórs­son, fram­kvæmda­stjóri Sorpu í sam­tali við Stundina. Aðspurður hvort HCT hefði verið ljóst, þegar ferðin var farin, að Sorpa hafði þá þegar ákveðið að semja við Aikan segir Björn: „Já, þeim var gert ljóst, þegar eig­endur gerðu eig­enda­sam­komu­lag í hverju það fælist, gas og jarð­gerð­ar­stöð.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár