Sigmundur uppsker stuðning og úthrópanir: „Lokaðu hurðinni almennilega á eftir þér“

Færsla Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þar sem hann boðar kosn­ingar ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styðji hann ekki áfram, vekur mis­jöfn við­brögð.

Sigmundur uppsker stuðning og úthrópanir: „Lokaðu hurðinni almennilega á eftir þér“

Viðbrögð fólks við upp­gjörs­færslu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar ein­kenn­ast ýmist af ánægju, ótta og reiði. Sig­mundur boðar að hann muni boða til kosn­inga ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styður hann ekki sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann seg­ist stoltur af verkum sínum og að hann muni halda áfram, hljóti hann stuðn­ing til þess.

Forseti Íslands hefur hins vegar stoppað Sigmund Davíð af og synjað honum um heim­ild til að boða til kosn­inga.

„Lokaðu hurð­inni almenni­lega á eftir þér. Viljum ekki trekk á eftir. Bless,“ segir Lilja Líndal Sig­urð­ar­dóttir.

„Gangi þér vel. Þú mátt ekki bug­ast. Því ef það yðri kosið nú yrði ringul­reið. Klárum kjör­tíma­bilið og kjósum svo þannig virkar lýð­ræðið,“ segir Einar Magn­ús­son.

„Það verður að klára málið og leið­rétta kjör aldr­aða og öryrkja,“ segir Sigrún Ellen Ein­ars­dóttir, honum til stuðn­ings. „Gangi þér sem allra best og alls ekki segja upp þú ert sá eini sem hefur talað fyrir bænda­stétt­ina i sam­bandi við Haga og fleira ... það hafa allir sínar skoð­anir á þessu máli mér finst bara að þetta sé rætt mál búið að gera grein fyrir þessu skattar borg­aðir þá finst mer að þeir í þing­hús­inu sem eru að kasta steinum ur gler­húsi megi aðeins hægja á og líta á sjálfan sig,“ segir Sylvia Magn­ús­dóttir.

„Stuðningsmannahópur þinn er miklu stærri en þig grunar“

Kári S. Lárusson, harður stuðn­ings­maður Sig­mundar, sem vill leggja niður Rík­is­út­varpið þar sem það sé „veru­lega ógeð­felld stofnun“ þar sem „vinstri menn af verri sort­inni [hafi] hreiðrað þar um sig eins og búr­hænur í arfa­garði og stunda þaðan heift­úð­ugar árásir á gott fólk sem skarar fram úr eða er til sóma fyrir land sitt og þjóð“, hvetur Sigmund áfram. 

„Sig­mundur, - haltu þínu striki og hafðu engar áhyggjur af hávaða­fólki. Þú hefur staðið þig afburða vel í starfi fyrir land og þjóð. Atburðir síð­ustu daga hafa í engu breitt þeirri skoðun minni. Mér er slétt sama hvar þið hjónin geymið fjár­muni ykkar og hef meira en fullan skiln­ing á því að fólk hafi pen­inga sína ekki í íslenzkum bönkum. Þeir hafa ekki hagað sér með þeim hætti und­an­farin ára­tug að nokkur minnsta ástæða sé til að eiga við þá við­skipti. Ég er flokks­bund­inn Sjálf­stæð­is­maður og er veru­lega óánægður með minn gamla flokk. Þess vegna var það fagn­að­ar­efni þegar loks­ins kom for­sæt­is­ráð­herra til starfa sem hafði dug og þor til að láta til sín taka. Og þú mátt bóka það, að stuðn­ings­manna­hópur þinn er miklu stærri en þig grunar. Og hafðu í huga, - að stundum er sókn bezta vörnin.“

„Er ekki lengur reiður út í þig“

„Gerðu þér og öðrum sóma og segðu upp,“ segir Guð­laugur Jónsson í vin­sæl­ustu ummæl­unum við færslu Sig­mundar.

„Þú ert svo veru­leika­fyrtur að maður er ekki lengur reiður út í þig, þvert á móti vor­kenni ég þeirri per­sónu sem þú hefur að geyma! segir Sverrir Gauti Hilm­ars­son.

„Þegiðu,“ segir annar. Enn annar bendir á að árangur rík­is­stjórn­ar­innar sé óháður því hvort hann eigi að segja af sér eða ekki. „Sig­mundur, burt séð því hvernig þessi rík­is­stjórn hefur staðið sig og hvaða góðu málum hún vill koma í gegn: Drullaðu þér.“

„Vík burt Satan !!!!“ hrópar Páll Helmut Guð­jóns­son.

Ester Bibi heldur því fram að Sig­mundur hafi lítið efnt af lof­orðum sínum. „Flest kosn­inga­lof­orð, sem þú varst kos­inn út á, komust nákvæm­lega ekk­ert áleiðis. Þar má nefna stóra verð­trygg­ing­ar­málið sem beið þess að vera tekið fyrir á þingi í óra­tíma og þegar það mál var loks­ins tekið fyrir (að frum­kvæði stjórn­ar­and­stöðu) fórst þú fram og tókst ekki þátt! Ég vil biðja þig eins vin­sam­lega og ég á til að segja af þér. Þú hefur svikið alla þjóð­ina en mest þína eigin kjós­endur!“

Sigmundur hlýðir á vantraust
Sig­mundur hlýðir á van­traust Í gær mættu yfir 20 þús­und manns á mót­mæli gegn skatta­skjóls­máls­ins og hlust­aði Sig­mundur á umræður þing­manna um van­traust.

Hefði átt að gera þetta fyrr

Vil­hjálmur Ingi Sig­urð­ar­son bendir á að Sig­mundur hefði átt að grípa fyrr til heið­ar­legrar umræðu: „Þetta hefð­irðu mátt gera fyrir löngu að tjá þig svona heið­ar­lega um málið. Held bara að það sé of seint fyrir þig að ávinna þér traust gagn­vart almenn­ing sem hefur látið heldur betur í sér heyra og er óánægt. Ykkur í rík­is­stjórn­inni hefur tek­ist margt gott og unnið vel í mörgum málum en heið­ar­leiki og hrein­skilni er það sem þjóðin vill og krefst af stjórn­mála­mönnum eftir hrun. Þú hefur því miður leynt upp­lýs­ingum og ekki komið hreint fram og fólki svíður það. Sýndu þá dreng­skap og segðu af þér sem for­sæt­is­ráð­herra.. Má ég svo biðja fólk um að sýna kurt­eisi og aðgát í nær­veru sálar. Þið mynduð örugg­lega ekki sýna þessa hegðun við hann face 2 face. Kurteisi kostar ekk­ert...“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár