Í þröngri stöðu Staða Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­son á for­manns­stóli Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur þrengst veru­lega síð­ustu daga og vikur. Hann fund­aði með þing­flokki Fram­sókn­ar­flokks­ins í gær, mið­viku­dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

Síðustu dagar Sigmundar

For­ystu­menn í Fram­sókn­ar­flokknum reyna nú hvað þeir geta að gera Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni ljóst að hann eigi þann eina kost vænstan að stíga til hliðar sem for­maður flokks­ins. Hann er sagður hafa gert afdrifa­rík mis­tök þegar hann tal­aði ítrekað niður lof­orð Sigurðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra um haust­kosn­ingar. Ekkert hefur heyrst frá for­mann­inum síðan Lilja Alfreðs­dóttir og Gunnar Bragi Sveins­son fund­uðu með honum á heim­ili Sig­mundar.

Staða Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur þrengst veru­lega síð­ustu daga. Aukinn þrýst­ingur er innan úr flokknum á að hann stígi úr stóli for­manns. Harður kjarni stuðn­ings­manna vill hins vegar sjá hann áfram í for­ystu þrátt fyrir að mjög hafi fjarað undan stuðn­ingi. Þá er ekk­ert sem bendir til ann­ars en að Sig­mundur ætli að halda ótrauður áfram. Stundin hefur rætt við sextán ein­stak­linga úr öllum kjör­dæmum lands­ins, sem sinna trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn, þeirra á meðal ráð­herra, þing­menn og sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa, en vegna þeirrar við­kvæmu stöðu sem er uppi kusu sumir að koma ekki fram undir nafni.

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra fund­uðu með Sigmundi Davíð á heim­ili hans í Garðabæ síð­ast­lið­inn föstu­dag. Ekki er hægt að full­yrða um efni fund­ar­ins en rætt er um að for­ystu­sveit flokks­ins sé að reyna að koma Sigmundi í skiln­ing um það sem flestir aðrir vita; að á þessum tíma­punkti sé það besta í stöð­unni fyrir hann að stíga til hliðar og rýma þannig um fyrir öðrum fram­bjóð­endum, en Sigurður og Lilja hafa gefið það út að þau muni ekki bjóða sig fram gegn sitj­andi for­manni.

Við­mæl­endur Stund­ar­innar segja að það gefi auga leið að þau lýsi yfir stuðn­ingi við for­mann­inn opin­ber­lega. Allt önnur saga hvað þau segja undir fjögur augu. Gunnar Bragi lýsti yfir ein­dregnum stuðn­ingi við Sigmund Davíð í við­tali á Rás 2 í gær­morgun en opn­aði jafn­framt í fyrsta skipti á þann mögu­leika að Sig­mundur stígi til hliðar. Athygli vekur að ekk­ert hefur heyrst frá for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins á opin­berum vett­vangi síðan á föstu­dag en hann hafði haldið áherslum sínum mjög á lofti í fjöl­miðlum dag­ana og vik­urnar þar á undan.

Við­mæl­andi, sem starfað hefur innan Fram­sókn­ar­flokks­ins um ára­bil, full­yrðir að Lilja og Gunnar Bragi hafi farið á fyrr­nefndan fund með vit­und og vilja Sigurðar Inga. „Það segir nefni­lega eng­inn Sigurði Inga fyrir verkum. Það var bana­biti Sig­mundar Davíðs að hann ætl­aði að reyna að stjórna Sigurði Inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár