Sendi Austurríkismönnunum mynd af sér að borða pizzu

Íslenskum konum blöskrar ummæli aust­ur­rískra tón­leika­gesta. Sögðu íslenskar stelpur of feitar því þær væru svo sólgnar í skyndi­bit­ann. Þórdís Sif Guð­geirs­dóttir svar­aði með því að senda mönn­unum mynd af sér að borða pizzu.

Þórdís Sif Guð­geirs­dóttir tók sig til og sendi Aust­ur­rík­is­mönnum, sem segja íslenskar stelpur of feitar, mynd af sér að borða skyndi­bita. Tilefnið er frétt á vef Vísis þar sem rætt er við Aust­ur­rík­is­menn­ina Thomas Meneweger og Peter Kreyci sem eru staddir hér á landi til þess að sækja tón­list­ar­há­tíð­ina Iceland Airwaves. Haft er eftir þeim að þeir séu ekk­ert sér­stak­lega spenntir fyrir íslenskum stelpum. „Íslenski vinur okkar sagði í gær að íslensku stelp­urnar væru orðnar alltof feitar. Ástæðan er víst sú að þær eru sólgnar í skyndi­bit­ann,“ segir Peter. Blaða­maður Vísis varð ekki lítið hissa á þessum við­brögðum og horfði spurn­ar­augum á Peter þar sem hann japlar á frönskum kart­öflum.

„Ég er ekki stelpa!“ svar­aði hann.

Mikil umræða varð um frétt­ina inni á íslenska kvenna­sam­fé­lag­inu Beauty tips í gær, lok­uðum Facebook hóp sem telur rúm­lega 30 þús­und með­limi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár