Mynd: Sigtryggur Ari / DV

Sannfæringarkraftur Gunnars Smára

Karl Th. Birg­is­son hefur fylgst með kafla­skrifum Gunnars Smára Egils­sonar í íslenskri fjöl­miðla­sögu, allt frá því að hann fór að vinna fyrir hann á Press­unni árið 1991. Af öllum þeim hug­myndum sem Gunnar Smári hefur hrint í fram­kvæmd lifa Frétta­blaðið og Vísir.is lengst, en sann­fær­ingin, sann­fær­ing­ar­kraft­ur­inn og engar efa­semdir ein­kenna Gunnar Smára. Og vita­skuld reikni­vélin og Excel-skjölin til að telja fólki trú um að sann­fær­ingin skili líka arði. Sem hún gerir í fæstum til­vikum.

Fyrstu kynni mín af Gunnari Smára Egils­syni eru eft­ir­minni­leg. Þau voru um jóla­leytið 1991. Hann vildi ráða mig í vinnu.

Eða ég vinna hjá honum sem blaða­maður á Press­unni, sem var þá viku­blað og hann rit­stjóri. Þegar við hitt­umst var þó óljóst hvorum megin áhug­inn var meiri.

Ég þekkti blaðið og efn­is­tökin og hugn­að­ist þokka­lega, þótt sumt fynd­ist mér of gult sem birt­ist í Press­unni. Var of fínn með mig, nýkom­inn úr námi frá Banda­ríkj­unum, og hefði frekar viljað vinna hjá New York Times en New York Post.

En Smári var sann­færður og sann­fær­andi, um að Pressan væri bezta og nauð­syn­leg­asta blað sem hefði verið gefið út á Íslandi. Þess vegna ætti ég að vera með í því liði. Mig vant­aði líka vinnu og stassjónin væri upp­full af frá­bæru fólki. Þetta síð­ast­nefnda var rétt og rúm­lega það.

Smári var síð­hærður og með tagl. Hitt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár