Sagan á bakvið bónorð ársins: Ákvað að biðja hans á fimmta degi

Inga Auðbjörg Krist­jáns­dóttir segir sög­una á bak­við umtal­að­asta YouTube mynd­band vik­unnar. Við­brögðin hafa verið engu lík.

Sagan á bakvið bónorð ársins: Ákvað að biðja hans á fimmta degi
Inga Auðbjörg Krist­jáns­dóttir

Umtal­að­asta mynd­band vik­unnar er án efa mynd­bandið af því þegar Inga Auðbjörg Krist­jáns­dóttir, vara­for­maður Ungra jafn­að­ar­manna, bað Helga Hrafn Gunn­ars­son, þing­mann Pírata, um að ganga í hjóna­band fyrr í mán­uð­inum. Inga bjó til svo­kallað flas­hmob, eða leift­urlýð, þar sem hópur fólks byrjar að dansa að því er virð­ist upp úr þurru á opin­berum vett­vangi. Hún birt­ist síðan sjálf í miðri þvög­unni og bar upp bón­orðið. Gjörn­ing­ur­inn var gerður í skátakast­ala í smá­bænum Rieneck í Þýska­landi þar sem hjóna­leysin sóttu skáta­mót helg­ina fyrir páska. „Þetta er skáta­mót sem ég hef farið á síð­ustu tíu ár fyrir full­orðna lista­skáta. Ég tók Helga með mér í fyrsta skipti í fyrra og honum fannst ægi­lega gaman þrátt fyrir að vera ekki skáti. Við fórum svo aftur í ár,“ segir Inga í sam­tali við Stundina. Hún segir fólkið sem sótti skáta­mótið vera hennar bestu vini og því hafi verið hægur leikur að fá það í lið með sér. 

Hér má sjá afraksturinn:

Windows Customer Report kom til bjargar

„Ég var löngu búin að ákveða að gera flash-mob og var búin að segja öllum í kringum mig að ég ætl­aði að gera þetta um pásk­ana. Það var því eng­inn séns fyrir mig að bakka út úr því þegar á hólm­inn var komið. Svo átti ég til þennan dans, ef ég á að segja alveg eins og er, og við æfðum hann dag­inn áður á meðan Helgi var að læra esper­antó. Þetta er ein­fald­ari dans en hann lítur út fyrir að vera,“ segir Inga hóg­vær.

Eftir gjörn­ing­inn safn­aði Inga saman upp­tökum af gjörn­ingnum og ákvað að klippa sjálf saman mynd­bandið fræga. Það gekk hins vegar ekki þraut­ar­laust fyrir sig. „Forritið „krass­aði“ eftir sex tíma klippi­vinnu,“ segir hún hálf­glettin. „En Windows Customer Report bjarg­aði mér. Ég bjóst ekki við að það myndi gera eitt eða neitt að gagni.“

Í háska á Hverfisgötu

Helgi Hrafn Gunnarsson
Helgi Hrafn Gunn­ars­son Þing­mann­inum var komið skemmti­lega á óvart um pásk­ana.

Eins og frægt er orðið vakti upp­á­tæki Ingu tals­verða athygli eftir að mynd­band­inu var dreift á net­inu. Inga segir við­brögðin hafa verið mjög mikil, sér­stak­lega á sam­fé­lags­miðlum en hún hefur einnig fundið fyrir athygl­inni í hinu dag­lega amstri. „Einn var næstum því búinn að keyra yfir mig á Hverf­is­göt­unni því hann bara varð að stoppa og heilsa,“ segir Inga en henni var sem betur fer ekki meint af. 

„Ástæðan fyrir því að ég setti þetta á netið er fyrst og fremst sú að ég vildi leyfa vinum mínum og fjöl­skyldu, sem ekki áttu tök á því að vera á skáta­móti í Þýska­landi um pásk­ana, að sjá þetta.“

Ákvað þetta á fimmta degi

Eitt af því sem hefur vakið athygli er sú stað­reynd að Inga var sú sem bar upp bón­orðið í sam­band­inu, en ekki Helgi. „Það er merki­legt hvað það er við­tekið í sam­fé­lag­inu að konur eigi að vera þiggj­endur og karl­menn ger­endur í þessu. Kannski ekki eins mikið á Íslandi. Flestir í kringum mig hafa bara tekið sam­eig­in­lega ákvörðun um að ganga í hjóna­band. En ef þú til dæmis gúgglar „Should a woman propose?“ þá færðu bara „nei, nei, nei, þú gætir alveg eins skorið af honum typpið! Hann verður nið­ur­lægður.“

„Við erum bara búin að vera saman í tvö ár, en þetta er bara svo „meant to be“.

Inga seg­ist hafa ákveðið á fimmta degi sam­bands­ins að hún ætl­aði að biðja Helga. „Ég held ég hafi komið því til skila snemma að það kæmi aldrei til greina að hann fengi að biðja mín. En hann er búinn að „hinta“ að því nokkrum sinnum að það sé nú farið að draga á lang­inn. Við erum bara búin að vera saman í tvö ár, en þetta er bara svo „meant to be“. Maður veit það þegar maður veit það.“

Skipulagt hjónaband

Þrátt fyrir að vera bæði boð­berar nýrra tíma í stjórn­málum kynnt­ust Inga og Helgi með heldur gam­al­dags hætti. „Mamma hans ákvað að við ættum að vera saman. Þetta er í raun­inni „arranged marri­age“,“ segir Inga og hlær. „Hún bauð mér í mat­ar­boð og við höfum bara verið saman síðan í þessu mat­ar­boði.“

Þegar Inga og Helgi kynnt­ust fyrir tveimur árum var hún kosn­inga­stjóri hjá Ungum jafn­að­ar­mönnum og gegnir nú stöðu vara­for­manns Ungra jafn­að­ar­manna. Hafa ólíkar flokkslínur engin áhrif á sam­bandið?
„Við erum sam­mála um að hafa áhuga á póli­tík,“ útskýrir Inga. „Ég held að ungt fólk sem hefur áhuga á póli­tík sé mjög oft sam­mála, þvert á flokka, um flest mál. Ég hef alveg drukkið bjór með sjálf­stæð­is­manni og við vorum sam­mála um hvað þurfi fyrir ungt fólk.“

Að lokum, hvenær verður síðan stóri dag­ur­inn? „Ég veit það ekki,“ svarar Inga. „Einhvern tíma árið 2016 geri ég ráð fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár