Erna Margrét Oddsdóttir hefur ásamt móður sinni opnað svokallaða „Vape-Shop“ eða Rafsígarettubúð við Ingólfstorg í Reykjavík. Búðin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi enda er verslun með nikótínlyf ólögleg. Erna lætur það þó ekki stoppa sig og segist hafa fulla trú á því að þeim lögum verði breytt fljótlega. Á meðan bjóða þær mæðgur uppá nikótínfrían „smók“.
Vill skapa vettvang fyrir áhugafólk
„Við mamma uppgötvuðum þetta fyrir rúmum þremur árum, á ferð um Bretland. Við keyptum okkur hvor sína rafrettuna í ferðinni og þá var bara ekki aftur snúið,“ útskýrir Erna hvar við sitjum í stofurými verslunar þeirra mæðgna. Andrúmsloftið er létt með ferskum ávaxtakeim, enda situr hópur ungra manna rétt hjá og púar ávaxtareik í loftið af miklum móð.
„Við ætlum að gera svona „vapers-lounge“ einskonar reykbar hér,“ segir Erna og baðar út höndunum til útskýringa. „Hugmyndin er að hingað geti áhugafólk komið, sótt þekkingu, smíðað búnað og reykt í friði,“ bætir hún við og útskýrir að í kringum gufureykingarnar hafi myndast lítil, – en ört stækkandi hreyfing.
„Mér leið eins og stórglæpon.“
„Við erum smá hópur sem erum búin að gufa lengi. Við skiptumst á upplýsingum, rannsóknum og ítarefni sem snýr að þessu áhugamáli okkar. Umræðan er nefnilega oft á miklum villgötum hvað þessar reykingar varðar. Ég er búin að gufa í þessi þrjú ár og það þarf enginn að segja mér að þetta sé nálægt því að vera jafn vont fyrir mig og sígarettur. Það bara er ekki séns.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.









































Athugasemdir