Reglur um skattagrið geti ýtt undir skattaundanskot

Hagfræðingar segja að skatta­grið geti gert skatt­undanskot og geymslu fjár í skatta­skjólum eftirsóknar­verðari en ella. Óljóst er hvort reglur um skatta­grið verði settar áður en kjör­tímabilinu lýkur.

Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, og Jóhannes Hraun­fjörð Karlsson hagfræðingur telja að skatta­grið geti gert skatta­undanskot og tilfærslu fjár í skatta­skjól eftirsóknar­verðari en slík háttsemi er nú þegar. Þetta kemur fram í grein sem birtist á Vísindavef Háskóla Íslands á dögunum, en þar svara þeir spurningunni „Hversu gagnleg eru skatta­grið til þess að auka skattskil og skatt­tekjur?“.

Hagfræðingarnir nefna í svari sínu að sá sem felur fé í skatta­skjóli geti ekki notað þá fjármuni með sama hætti og þá fjármuni sem geymdir eru á löglega vísu, hérlendis og erlendis. „Þessi staðreynd ætti að hafa letjandi áhrif á þá sem gætu freistast til að skjóta fjármunum undan skatti og geyma í skatta­skjóli. Ef skatt­þegar telja líklegt að skatta­grið verði veitt öðru hvoru dregur væntanlega úr þessum latningaráhrifum. Þannig má leiða að því rök að skatta­grið geti gert skatt­undanskot og geymslu fjár í skatta­skjólum eftirsóknar­verðari en ella,“ skrifa þeir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár