Ragnheiður Elín mætir ekki á fund hjá atvinnumálanefnd

Ráðherra hefur verið boðuð á fund til að skýra 700 millj­óna styrk til fisk­eldi­fé­lags í eigu Eng­ey­ings. Lands­sam­band fisk­eld­is­stöðva hefur gagn­rýnt styrk­inn harð­lega. „Full­kom­lega galið," segir Kristján Möller, nefnd­ar­maður.

Ragnheiður Elín mætir ekki á fund hjá atvinnumálanefnd
Samn­ingur und­ir­rit­aður Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra und­ir­rit­aði fjár­fest­ing­ar­samn­ing við Matorku ehf. þann 27. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra hefur nú í tvígang hundsað boð um að mæta fyrir atvinnu­vega­nefnd til að skýra fjár­fest­inga­samn­ing sem ríkið gerði við fisk­eld­is­fé­lagið Matorku. Samn­ing­ur­inn var vegna fyr­ir­hug­aðrar fisk­eld­is­stöðvar í Grinda­vík og var und­ir­rit­aður þann 27. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Styrk­ur­inn er metin upp á um 700 millj­ónir og skipt­ist ann­ars vegar í um 400 millj­ónir í formi skattaí­viln­ana og afslætti af opin­berum gjöldum, og hins vegar svo­kall­aðan þjálf­un­ar­styrk upp á tvær millj­ónir evra eða um 300 millj­ónir.

Helsti eig­andi Matorku er Eng­ey­ing­ur­inn Benedikt Ein­ars­son Sveins­son, frændi Bjarna Bene­dikts­sonar. Málið hefur verið umdeilt innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins og hefur Lands­sam­band fisk­eld­is­stöðva gagn­rýnt styrk­inn harð­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár