Ráðherra heldur að Mjólkursamsalan sé saklaus

Gunnar Bragi er fyrr­ver­andi starfs­maður Kaup­fé­lags Skag­firð­inga sem er hlut­hafi í Mjólk­ur­sam­söl­unni. Sagður náinn Þórólfi Gísla­syni kaup­fé­lags­stjóra og stjórn­ar­manni í MS.

Ráðherra heldur að Mjólkursamsalan sé saklaus

Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, efast um að Mjólk­ur­sam­salan hafi í raun og veru gerst sek um brot á sam­keppn­is­lögum. Þetta kom fram í við­tali við ráð­herr­ann í kvöld­fréttum Stöðvar 2 í gær, en Gunnar Bragi er fyrr­ver­andi starfs­maður Kaup­fé­lags Skag­firð­inga sem er hlut­hafi í Mjólk­ur­sam­söl­unni og hags­muna­að­ili í mál­inu.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur sektað Mjólk­ur­sam­söl­una um 480 millj­ónir króna vegna alvar­legra brota á sam­keppn­is­lögum og mis­notk­unar á mark­aðs­ráð­andi stöðu sinni. Gunnar Bragi, sem er æðsta stjórn­vald á sviði land­bún­að­ar­mála á Íslandi, efast hins vegar um að ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins stand­ist skoðun.

Áður en Gunnar Bragi hóf afskipti af land­spóli­tík starf­aði hann meðal ann­ars á versl­un­ar­sviði Kaup­fé­lags Skag­firð­inga árin 2000 til 2002 og þar á eftir sem fram­kvæmda­stjóri Ábæjar til 2007. Greint hefur verið frá því í fjöl­miðlum að ráð­herr­ann sé náinn Þórólfi Gísla­syni kaup­fé­lags­stjóra sem situr í stjórn Mjólk­ur­sam­söl­unnar. Haft var eftir Jóni Sig­urðs­syni, fyrr­ver­andi for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, í Frétta­tím­anum á dög­unum að Þórólfur hefði bein­línis haft Gunnar Braga í vas­anum.

„Mjólk­ur­sam­salan er fyr­ir­tæki sem er eins og allir vita í ein­ok­un­ar­stöðu. Um það gildir ákveðnar reglur og þeim ber að fara eftir þeim,“ sagði Gunnar Bragi í við­tal­inu á Stöð 2 í gær. „Það kemur í ljós hvort þeir hafi brotið af sér eða ekki. Ég hef síður trú á því að þeir hafi brotið af sér, þetta er fyr­ir­tæki sem í gegnum tíð­ina hefur sýnt sam­fé­lag­inu mikla ábyrgð.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár