Panama-skjölin: Systkinin fjögur með félög í skattaskjóli

Skatta­yf­ir­völd á Tortóla reyndu að fá upp­lýs­ingar um fjár­hags­stöðu félags Karls Wernerssonar á Tortólu. Karl segir skatta­yf­ir­völd á Íslandi hafa skoðað skatt­skil fyr­ir­tæk­is­ins án frek­ari aðgerða. Þrjú af systk­inum Karls stofn­uðu fyr­ir­tæki í gegnum Mossack Fonseca en eitt þeirra, Ingunn Wernersdóttir, fékk tæpa fimm millj­arða króna þegar hún seldi Karli og Stein­grími Wernerssonum hlut sinn í Milestone árið 2005. Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri segir upp­lýs­inga­skipta­samn­inga við lág­skatta­ríki hafa gert mikið gagn.

Panama-skjölin: Systkinin fjögur með félög í skattaskjóli
Nýr samn­ingur við Tortóla hafði áhrif Nýr upp­lýs­inga­skipta­samn­ingur á milli Íslands og Tortólu hafði þau áhrif að skatta­yf­ir­völd á Tortólu leit­uðu eftir upp­lýs­ingum um fyr­ir­tæki Karls Wernerssonar. Karl seg­ist hafa veitt íslenskum skatta­yf­ir­völdum þessar upp­lýs­ingar beint. Karl sést hér á mynd með bróður sínum Stein­grími og for­stjóra fjár­fest­ing­ar­bank­ans Askar Capital, Tryggva Þór Her­berts­syni, sem var hluti af Milestone-sam­stæð­unni.

Fjögur systk­ini, flest búsett á Íslandi og með skatta­legt heim­il­is­festi hér á landi, stofn­uðu aflands­fé­lög utan um við­skipti sín. Ingunn, Anna Margrét, Stein­grímur og Karl Wernersbörn koma öll, hvert með sínu lagi, fyrir í Panama-skjöl­unum svoköll­uðu, en mest áber­andi er Karl Wernersson, fjár­festir og eig­andi Lyfja og heilsu. Karl segir í sam­tali við Stundina að með því að stofna aflands­fé­lag hafi hann náð, með full­kom­lega lög­legum hætti, að kom­ast í þá stöðu að sleppa við að borga fjár­magnstekju­skatt af einu félagi sem hann átti á Tortólu. Systir hans, Ingunn, á miklar eignir eftir hluta­bréfa­við­skipti við bræður sína, sem Hæsti­réttur dæmdi ólög­leg á dög­unum, og á hún að minnsta kosti tvö félög í skatta­skjóli. Hún virð­ist meðal ann­ars hafa stofnað félög til að sýsla með fé sem fékkst úr við­skiptum við bræður hennar.

Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum í Panama-skjöl­unum svoköll­uðu frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca sem lekið var til þýska blaðs­ins Süddeutsche Zeitung. Stundin vinnur fréttir upp úr Panama-skjöl­unum í sam­starfi við fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Reykja­vík Media ehf. 

Skattayfirvöld gátu ekki fengið upplýsingar

Í Panama-skjöl­unum er að finna fjöl­þættar upp­lýs­ingar um skatta­skjóls­við­skipti Werners-systk­in­anna. Þar kemur meðal ann­ars fram að skatta­yf­ir­völd á eyj­unni Tortólu á Bresku Jóm­frú­areyjum reyndu að fá upp­lýs­ingar frá panamísku lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca í árs­lok 2013 um fjár­hags­stöðu og skatt­skil fyr­ir­tækis á Tortólu sem er í eigu Karls Wernerssonar. Þetta gekk hins vegar ekki þar sem Mossack Fonseca bjó ekki yfir neinum upp­lýs­ingum um fjár­hags­mál­efni fyr­ir­tækis Karls, Nordic Pharma Invest­ments, þrátt fyir að hafa stofnað fyr­ir­tækið fyrir hann og þrátt fyrir að stjórn­ar­menn þess væru á vegum lög­manns­stof­unnar. Skatta­yf­ir­völd á Tortólu sendu beiðn­ina vegna spurn­inga frá íslenskum skatta­yf­ir­völdum og reyndi Mossack Fonseca bæði að fá upp­lýs­ingar frá Karli sjálfum og frá eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Arena Wealth Manag­ment í Lúx­em­borg sem unnið hefur fyrir Karl. 

Karl segist hafa svarað skattayfirvöldum

Í sam­tali við Stundina segir Karl Wernersson að skatta­yf­ir­völd á Íslandi hafi á þessum tíma, síðla árs 2013 og í byrjun árs 2014, verið að skoða skatta­skil Nordic Pharma Invest­ments en að þeirri skoðun hafi síðan lokið án aðgerða af hálfu íslenskra skatta­yf­ir­valda. Í skrif­legu svari til blaðs­ins segir hann nánar um þetta atriði:  „Fyr­ir­spurn skatta­yf­ir­valda á Tortóla sem þú minnt­ist á er vænt­an­lega til­komin vegna fyr­ir­spurnar íslenskra skatta­yf­ir­valda. Ákvörðun var tekin um að svara íslenskum skatta­yf­ir­völdum beint og hefur það verið gert á full­nægj­andi hátt. Á ein­hverjum tíma­punkti var Nordic Pharma til skoð­unar hjá íslenskum skatta­yf­ir­völdum, en með bréfi hefur þeirri skoðun form­lega verið lokið.“

Stundin getur ekki fengið stað­fest­ingu frá emb­ætti rík­is­skatt­stjóra um hvort þessi orð Karls eru sönn eða ekki þar sem trún­aður ríkir um slíkar upp­lýs­ingar. Þetta kemur fram í svari frá Skúla Eggert Þórð­ar­syni rík­is­skatt­stjóra.

Stór vandamál á Íslandi og víða um heim 

Í fjöl­miðlum hefur komið fram að Skúli Eggert Þórð­ar­son hafi óskað eftir því að emb­ætti hans fái aðgang að Panama-skjöl­unum til að athuga hvort upp­lýs­ingar þar geti nýst skatt­inum við að hafa uppi á földum eignum í skatta­skjólum. Í svari Skúla Eggerts er ljóst að skatta­skjól­svæð­ingin á Íslandi, sem hófst upp úr síð­ustu alda­mótum í gegnum íslenska banka eins og Lands­bank­ann og Kaupþing, hefur verið stórt vanda­mál fyrir skatta­yf­ir­völd og leitt til fjár­hags­legs tjóns fyrir ríkið sem erfitt er að meta til fulls. „Sú lenska sem byrj­aði hérna í kringum síð­ustu alda­mót þegar fjár­mála­fyr­ir­tæki byrj­uðu að bjóða upp á þessa þjón­ustu hefur leitt til mik­ils tekju­staps hjá hinu opin­bera. Það er eng­inn vafi á því,“ segir Skúli Eggert. 

Á þessum tíma­punkti er ekki ljóst hvort og hvernig emb­ætti hans getur nýtt sér Panama-skjölin við skatt­heimtu og/eða rann­sóknir á skatta­laga­brotum. Alþjóð­legu blaða­manna­sam­tökin ICIJ sem halda utan um gögnin hafa hins vegar gefið það út að hluti gagn­anna verði gerður opin­ber þann 9. maí.

Annað dæmi um afleið­ingar Panama-skjal­ana er að fjár­mála­eft­ir­litið í New York-fylki í Banda­ríkj­unum hóf í lok apríl rann­sókn á þrettán erlendum bönkum sem not­uðu lög­manns­stof­una Mossack Fonseca til að stofna skúffu­fyr­ir­tæki fyrir við­skipta­vini sína í skatta­skjólum. Lands­banki Íslands er ekki þar á meðal þar sem bank­inn var ekki með starf­semi í New York-fylki og stofn­aði aðal­lega skatta­skjóls­fé­lög fyrir við­skipta­vini sína í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt í Lúx­em­borg. Lands­bank­inn var hins vegar einn af þeim tíu bönkum í heim­inum sem not­aði Mossack Fonseca hvað mest til að stofna skatta­skjóls­fyr­ir­tæki fyrir við­skipta­vini sína. Fjár­mála­eft­ir­litið í New York rann­sakar hins vegar sænsku stór­bank­anna fjóra, Nordea, Hand­els­banken, SEB og Swedbank, meðal ann­arra. Margir Íslend­ingar hafa verið við­skipta­vinir Nordea-bank­ans eftir banka­hrunið 2008 og stofnað félög í skatta­skjólum í gegnum hann, meðal ann­ars Ingunn Wernersdóttir. 

Stofn­ana­legar afleið­ingar Panama-skjal­anna gætu því orðið mjög miklar á heims­vísu og leitt til rann­sókna skatta­yf­ir­valda og eftir atvikum ákæru­valds­ins á skattaund­anskotum. 

„Á einhverjum tíma var Nordic Pharma til skoðunar hjá íslenskum skattayfirvöldum.“

Tengist mörgum félögum á lágskattasvæðum

Áður­nefnt félag Karls Wernerssonar á Tortólu, Nordic Pharma Invest­ments, er hins vegar bara eitt af nokkrum sem hann á eða teng­ist á lág­skatta­svæðum. Stundin hefur áður greint frá fyr­ir­tækjum eins og Dialog Holdings Global Limited, Leiftra ltd. á Tortólu, Leiftra ltd. á Seychelles-eyjum og Milestone Import&Export á Tortólu.

Í Panama-skjöl­unum er einnig að finna fyr­ir­tæki sem heita nöfnum eins og Inglewood Corporate Holdings Limited, Stockel Invest­ments Limited og Viscount Consultants Limited. Nordic Pharma var hins vegar umsvifa­meira en flest hinna aflands­fé­laga Karls Wernerssonar og er í gögn­unum meðal ann­ars að finna lána­samn­inga á milli félags­ins og Lands­bank­ans í Lúx­em­borg. Þá kemur fram í gögn­unum að Nordic Pharma Invest­ments er ennþá starf­andi og fékk Karl end­ur­nýjað pró­kúru­um­boð fyrir félagið til fimm ára árið 2012.  

Beiðnin um upplýsingar um félag Karls byggði á nýjum samningi

Upp­lýs­ing­arnar um til­raunir skatta­yf­ir­valda á Íslandi og Tortólu sýna hvað það getur verið erfitt fyrir skatta­yf­ir­völd að fá upp­lýs­ingar um fyr­ir­tæki í skatta­skjólum jafn­vel þó að í gildi séu upp­lýs­inga­skipta­samn­ingar á milli Íslands og við­kom­andi ríkis, líkt og til dæmis gildi um Tortólu. Ísland gerði um 40 upp­lýs­inga­samn­inga við lága­skatta­ríki á árunum eftir hrunið 2008 líkt og raunar fjöl­mörg önnur ríki gerðu fyrir til­stuðlan Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar, OECD. Eins og sagði á vef­svæði fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um vorið 2013 þá bætt­ust þessir samn­ingar við tví­skött­un­ar­samn­inga og aðra alþjóða­samn­inga þar sem einnig var kveðið á um upp­lýs­inga­skipti í skatta­málum.  Upp­lýs­ing­arnar sýna að á end­anum gátu skatta­yf­ir­völd á Tortólu bara reynt að fá upp­lýs­ing­arnar frá Mossack Fonseca sem sá um umsýslu félags Karls Wernerssonar en vegna þess að panamíska lög­fræði­stofan var ekki með þessar upp­lýs­ingar undir höndum þá þurfti Karl að veita þær sjálfur. 

Í bréfi skatta­yf­ir­valda á Tortóla var beðið um fjár­hags­upp­lýs­ingar um Nordic Pharma Invest­ments á árunum 2005 til 2008. Beðið var um árs­reikn­inga og stað­fest­ingu á skatt­greiðslum og eins stað­fest­ingu á milli­færslum frá og til félags­ins. Í bréf­inu kom fram að ef ekki yrði orðið við beiðn­inni gæti það leitt til sektar upp á 100 þús­und doll­ara, tæp­lega 20 millj­óna króna.

Í lok árs 2013, þegar Mossack Fonseca átti að skila upp­lýs­ingum um fjár­hags­stöðu félags Karls til skatta­yf­ir­valda, hafði starfs­mönnum á lög­fræði­skrif­stof­unni hins vegar ekki tek­ist að ná tali af Karli Wernerssyni eða starfs­mönnum Arena Wealth Mana­gement til að fá upp­lýs­ingar um félagið frá þeim eins og sagði í tölvu­póst­inum: „Við­skipta­vin­ur­inn svarar ekki tölvu­póstum okkar og skrif­stofu hans hefur verið  lokað yfir hátíð­arnar. Ég mun reyna að ná þeim í síma. […] Ég fór á skrif­stofu þeirra í gær en hvorki Þor­steinn né Guðjón [starfs­menn Arena Wealth Mana­gement] voru þar. Ég ætla að reyna að hringja í far­sím­ana þeirra þar sem skrif­stofur þeirra verða ekki opnar í dag.“ 

Í sam­tali við Stundina, sem lesa má í heild sinni með grein­inni, segir Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri að upp­lýs­inga­skipta­samn­ing­arnir hafi hjálpað íslenskum skatta­yf­ir­völdum mikið á síð­ustu árum. Skúli Eggert getur hins vegar ekki tjáð sig um mál ein­staka skatt­greið­enda eins og áður segir. 

Tvö félög í skattaskjóli
Tvö félög í skatta­skjóli Ingunn Wernersdóttir stofn­aði tvö félög í gegnum Mossack Fonseca og á hún í dag í við­skiptum við Nordea-bank­ann í Lúx­em­borg og sér sá banki um eigna­stýr­ingu fyrir hana. Þá var hún líka skráður hlut­hafi í Tortóla­fé­lag­inu Milestone Import Export ltd. til árs­ins 2005 þegar hún seldi bræðrum sínum sinn hlut í félag­inu.

Föðurarfur í skattaskjóli

Þrjú af systk­inum Karls eiga eign­ar­halds­fé­lag í skatta­skjólum sem koma fram í Panama-skjöl­unum, eins og áður segir. Komið hefur fram áður í mörgum fjöl­miðlum að Karl Wernersson og Stein­grímur Wernersson áttu fyr­ir­tæki í skatta­skjólum. Meðal ann­ars fyr­ir­tækið Leiftra ltd. og Milestone Import Export ltd. á Tortóla­eyju. Leiftra ltd. var meðal ann­ars móð­ur­fé­lag trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvár á Íslandi á árunum fyrir hrunið. Þá áttu bræð­urnir líka sitt félagið hvort á Seychelles-eyjum en þessi fyr­ir­tæki komu fyrir í Panama-skjöl­unum. Karl átt félag sem heitir Dialog Holding ltd. og Stein­grímur Wernersson fyr­ir­ækið Fargo Holding. Þessi fyr­ir­tæki bræðr­anna voru stofnuð á árunum fyrir hrunið 2008.

Werners-systk­inin eru börn apó­tek­ar­ans Werners Rasm­us­sonar sem var einn af eig­endum Pharmaco og Delta auk Ing­ólfs­apó­teks, sem síðar varð Lyf og heilsa. Pharmaco og Delta urðu síðar að sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­inu Actavis og efn­að­ist Werner mjög á við­skiptum sínum með hluta­bréf í lyfja­fyr­ir­tækjum. Wernersbörnin eru því erf­ingjar fjöskyldu­auð­æva. Ekki þarf að koma á óvart að nöfn félaga sem tengj­ast Karli Wernerssyni koma oft­ast fyrir í skjöl­unum af nöfnum þeirra systk­ina þar sem hann er lang umsvifa­mestur þeirra í við­skiptum.

Öll systk­inin, fyrir utan Stein­grím, eru búsett á Íslandi og með skatta­lega heim­il­is­festi þar. 

Vegabréf Karls og Önnu
Vegabréf Karls og Önnu Myndir af vega­bréfum Karls og Önnur Wernersbarna sjást hér en þau er að finna í Panama­skjöl­unum. Af lestri gagn­anna að dæma eru vega­bréfin notuð til að sýna fram á að við­kom­andi ein­stak­lingar séu eig­endur aflands­fé­laga, til að mynda í sam­skiptum við skatta­yf­ir­völd.

Ingunn stofnaði fyrirtæki í skattaskjóli eftir hrun

Panama-skjölin opin­bera líka að bæði Ingunn Wernersdóttir og Anna Margrét Wernersdóttir stofn­uðu skúffu­fyr­ir­tæki í skatta­skjólum í gegnum Mossack Fonseca. Ingunn stofn­aði tvö skúffu­fyr­ir­tæki í gengum Mossack Fonseca um vorið 2010 og fékk pró­kúru­um­boð yfir þeim báðum. Þessi félög heita Birchfield Properties S.A. og Zaniskari Corp. Bæði fyr­ir­tækin voru skráð í Panama. 

Anna Margrét Wernersdóttir átti hins vegar fyr­ir­tækið Unza Capital S.A. sem stofnað var árið 2006 og fékk pró­kúru­um­boð yfir fyr­ir­tæk­inu í júní árið 2006.  Eign­ar­hald Önnur Mar­grétar á félagi í skatta­skjóli vekur sér­staka athygli þar sem hún hefur ekki verið þekkt fyrir að stunda fjár­fest­ingar í gegnum tíð­ina, öfugt við systk­ini sín þrjú. Anna Margrét starfar sem kenn­ari. Í sam­tali við Stundina vill hún ekki ræða fjár­fest­ingar sínar í Unzu Capital S.A. „Ég hef ekk­ert um þetta að segja. Takk fyrir. Bless,“ sagði Anna Margrét þegar Stundin hafði sam­band við hana. 

Átti í viðskiptum við bræður sína fyrir 4,8 milljarða

Eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum átti Ingunn Wernersdóttir í rúm­lega 4,8 millj­arða króna við­skiptum við bræður sína Karl og Stein­grím í árs­lok 2005 vegna kaupa þeirra hluta­bréfum hennar  í Tortóla-félög­unum Leiftra ltd. og Milestone Import Export ltd. Þessi félög héldu utan um hluta­bréf í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Milestone ehf. á íslandi.

Við­skiptin gengu í stuttu máli út á það að bræð­urnir voru að kaupa  upp hluta­bréf hennar í fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Milestone og skyldum félögum sem stofnuð höfðu verið utan um föð­ur­arf þeirra. Ingunn vildi hins vegar ekki vera með í fjár­fest­ingum Milestone enda gat hún fengið gott verð fyrir hluta­bréf sín.

Karl og Stein­grímur létu Milestone ehf. hins vegar greiða 4,8 millj­arða fyrir þessi hluta­bréf Ingunnar og voru þeir ákærðir ásamt nokkrum aðilum vegna þess­ara við­skipta um sum­arið 2013. Meg­in­efni ákærunnar er grunur um umboðs­svik þar sem Karli og Stein­grími hafi ekki verið heim­ilt að láta Milestone borga fyrir hluta­bréf sem þeir voru sjálfir að kaupa per­sónu­lega. Hér­aðs­dómur sýkn­aði þá í lok árs 2014 en emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara áfrýj­aði dómnum til Hæsta­réttar Íslands. Mál­flutn­ingur var í mál­inu í Hæsta­rétti Íslands í apríl síð­ast­liðnum og féll dómur í því þann 28. apríl þar sem nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms var snúið.

Fengu langa fangelsisdóma

Karl Wernersson fékk þriggja og hálfs árs dóm í mál­inu og Stein­grímur Wernersson tveggja ára dóm. Guð­mundur Ólason, fyrr­ver­andi for­stjóri Milestone, var einnig dæmdur. Í dómi Hæsta­réttar Íslands voru brot þeirra sögð „óskamm­feilin“:  „Við ákvörðun refs­ingar ákærðu Karls, Stein­gríms og Guð­mundar er til þess að líta að brot þeirra sam­kvæmt I. kafla ákæru sner­ust um mjög háar fjár­hæðir, sem lán­ar­drottnar Milestone ehf. fóru þegar upp var staðið á mis við að fá notið til greiðslu krafna sinna. Brot þessi voru skipu­lögð og drýgð í sam­verkn­aði af óskamm­feilni.“

Ingunn Wernersdóttir á því veru­lega fjár­muni eftir þessi við­skipti við bræður sína og virð­ist hún hafa stofnað fyr­ir­tækin tvö í Panama til að koma að eigna­um­sýslu með að minnsta kosti hluta þess­ara eigna sinna. Tekið skal fram að rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara og mála­ferlin gegn Karli og Stein­grími snéru ekki með neinum hætti að Ingunni Wernersdóttur og heldur hún þeim fjár­munum sem hún fékk í við­skipt­unum.

Umboð systkinanna
Umboð systk­in­anna Karl Wernersson var, og er lík­lega enn, með pró­kúru­um­boð fyrir félagið Nordic Pharma Invest­ments, líkt og sést hér. Systkini hans þrjú voru einnig með pró­kúru­um­boð fyrir félög sem stofnuð voru í gegnum Mossack Fonseca.

Á í viðskiptum við Nordea í Lúxemborg og fékk endurnýjað prókúruumboð

Engar fjár­hags­upp­lýs­ingar um félög Ingunnar Wernersdóttur í Panama koma hins vegar fram í skjöl­unum. Þó er ljóst að hún er ennþá með pró­kúru­um­boð fyrir Birchfield Properties S.A. og ekk­ert í gögn­unum bendir til að pró­kúru­um­boð hennar fyrir Zaniskari Corp. hafi verið aft­ur­kallað. 

Ingunn Wernersdóttir er orðin við­skipta­vinur sænska Nordea-bank­ans í Lúx­em­borg sem sér um eigna­stýr­ingu fyrir hana og bað starfs­maður bank­ans, Sveinn Helgason, um að pró­kúru­um­boð Ingunnar fyrir félagið yrði end­ur­nýjað í mars í fyrra. Þá voru fimm ár liðin frá því að Ingunn hafði síð­ast fengið pró­kúru­um­boð fyrir félagið og þurfti að end­ur­nýja umboðið. Þetta er nýjasti skjalið í gögnum Mossack Fonseca sem snertir Ingunni Wernersdóttur. 

Í tölvu­pósti frá Mossack Fonseca til Sveins í fyrra sagði: „Ég er ekki viss um hvort þú sért sá sem sér um við­skipti neð­an­greindra félaga þannig að ég myndi kunna að meta það ef þú gætir skoðað málið og sent það þá til við­eig­andi aðila ef svo ber undir.“

Sveinn svar­aði því til að tvö þeirra fyr­ir­tækja sem Mossack Fonseca spurði um væru við­skipta­vinir hans en eitt þeirra félaga er Birchfield Properties S.A. „Tvö þeirra eru við­skipta­vinir mínir en þessir tölvu­póstar eiga að fara til Lars Lindveds og hans fólks,“ en Lars þessi er yfir­maður í eigna­stýr­ing­ar­deild Nordea bank­ans í Lúx­em­borg. 

Sveinn segist ekki mega tjá sig

Í sam­tali við Stundina segir Sveinn Helgason að hann megi ekki tjá sig um vinnu sína fyrir Nordea-bank­ann í Lúx­em­borg. Einn stærsti frétta­punkt­ur­inn í Svíþjóð úr Panama-skjöl­unum hefur verið hvernig Nordea-bank­inn í Lúx­em­borg hefur aðstoðað við­skipta­vini sína við að stofna skúffu­fyr­ir­tæki á aflands­svæðum í gegnum Mossack Fonseca. Bankinn hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir þetta í Svíþjóð en til sam­an­burðar má nefna að Lands­bank­inn á Íslandi seg­ist ekki hafa komið að því að stofna slíkt aflands­fé­lög fyrir við­skipta­vini sína eftir hrunið árið 2008. „Lands­bank­inn hf. hefur ekki stofnað slík félög eða átt þátt í að stofna slík félög,“ sagði í svari frá bank­anum til Stund­ar­innar í apríl. Stofnun slíkra aflands­fé­laga virð­ist því til­heyra for­tíð­inni hjá íslenskum bönkum, miðað við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar. 

Sveinn Helgason seg­ist hins vegar ekki getað gefið upp fyrir hversu marga Íslend­inga hann vinnur nú um stundir. „Ég er því miður þannig í sveit settur að ég get ekki svarað neinum spurn­ingum varð­andi mín við­skipti hér. Hvort sem þau eru eða eru ekki þá er ég bara bund­inn þannig vinnu­reglum í starfi mínu fyrir bank­ann. Mér er ekki heim­ilt að ræða við aðra aðila utan bank­ans,“ segir Sveinn en af tölvu­pósti hans að dæma er ljóst að hann sinnir við­skiptum í gegnum aflands­fé­lag Ingunnar Wernersdóttur í Panama. Nordea-bank­inn sænski er því ekki hættur umsýslu með félög og eignir í skatta­skjólum líkt og upp­lýs­ingar benda til að íslenskir bankar hafi gert. 

„Þetta er auð­vitað eitt stærsta vanda­málið sem verið hefur í skatt­fram­kvæmd­inni hér á landi.“

Þurfti að endurnýja prókúru sína til að lýsa kröfu í bú Landsbankans

Ingunn hefur því flutt sig til Nordea-bank­ans en systir hennar Anna Wernersdóttir sinnti sínum við­skiptum í Panama í gegnum lög­fræð­ing­inn Lindu Bents­dóttir í Hamra­borg í Kópavogi. Linda hefur í gegnum árin unnið náið með Ingunni Wernersdóttur eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum. Linda Björk var meðal ann­ars fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­fé­lags Ingunnar, Inn fjár­fest­ingar ehf., en það félag átti meðal ann­ars 1500 millj­óna króna inni­stæður í Lúx­em­borg árið 2009, líkt og kom fram í DV árið 2011. Á móti þeim inni­stæðum voru skuldir upp á álíka háa upp­hæð.

Í Panama-skjöl­unum kemur fram að Linda Bents­dóttir hlut­að­ist til um að Anna Wernersdóttir fengi skjöl frá Mossack Fonseca um félagið UNZA Capital S.A. í Panama árið 2011 vegna þess að hún þurfti þau til að lýsa kröfu í bú Lands­bank­ans í Lúx­em­borg fyrir hönd félags­ins. „Við­skipta­vinur minn, Anna Wernersdóttir, eig­andi UNZA Capital S.A. mun ekki halda áfram að nota fyr­ir­tækið. Hún þarf þessi skjöl fyrir Lands­bank­ann í Lúx­em­borg. Getur þú útvegað henni stimplað upp­runa­legt afrit af vottun um stöðu félags­ins  og pró­kúru­um­boðið eða þarf hún að senda bank­anum upp­runa­legu skjölin?,“ segir í tölvu­pósti frá Lindu til Mossack Fonseca árið 2011. Eftir að Anna Margrét hafði fengið þessi gögn frá Mossack Fonseca var félag hennar lagt niður. 

Linda Bents­dóttir neitar að upp­lýsa um við­skipti UNZA Capital S.A. í sam­tali við Stundina. „Þetta eru nátt­úru­lega bara trún­að­ar­upp­lýs­ingar sem ég get ekki svarað. Ég get ekk­ert verið að ræða um hvað ég geri í mínu starfi. Þú hlýtur að skilja það.“ Í tölvu­póstum Lindu til Mossack Fonseca kemur fram að Anna vissi ekki hvert hún ætti að snúa sér varð­andi mál­efni UNZA Capital S.A. þar sem Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hefði séð um fjár­fest­ingar fyrir hana í gegnum félagið en sá banki er sem kunn­ugt er í slita­með­ferð og býður ekki lengur upp á eigna­stýr­ingu. Lögmanni Önnu var því bent á að hafa sam­band beint við Mossack Fonseca. 

Steingrímur keypti bát af Tortólafélagi

Í Panama-skjöl­unum kemur fram að Stein­grímur Wernersson var með að minnsta kosti tvö félög í skatta­skjólum. Annars vegar Pargo Inc. á Tortóla og hins vegar Fargo Holdings sem skráð var á Seychelles-eyjum. Stein­grímur virð­ist hins vegar hafa hætt að nota félögin fyrir um tíu árum síðan, öfugt við bróður sinn Karl sem not­að­ist við slík félög að minnsta kosti svo seint sem árið 2014 sam­kvæmt Panama-gögn­unum.

Engar fjár­hags­upp­lýs­ingar koma fram um félög Stein­gríms í Panama-skjöl­unum fyrir utan það að Stein­grímur keypti bát af gerð­inni Sealine F34 Almira af Pargo Inc. fyrir rúm­lega 135 þús­und pund, eða 15 millj­ónir króna,  í sept­em­ber árið 2005. 

Stein­grímur hefur dregið sig alfarið út úr íslensku við­skipta­lífi, öfugt við Karl sem er for­stjóri og eig­andi Lyfja og heilsu í dag, og hefur hann verið búsettur í London síð­ast­liðin ár. Stundin náði ekki í sam­bandi við Stein­grím í gegnum breskan far­síma hans. 

Skila­boðum var komið til Ingunnar Wernersdóttur um að Stundin hefði áhuga á að ræða við hana um félög hennar í Panama-skjöl­unum en hún hafði ekki sam­band við blaða­mann til að ræða málið. 

Eins og sést af þess­ari grein eru flestir sem tengj­ast þeim félögum sem fjallað er um hér ekki vilj­ugir til að ræða um félög sín í skatta­skjólum eða tengsl sín við slíkt félög - fyrir utan Karl Wernersson.

 

Svör Karls Wernerssonar við spurningum Stundarinnar um félög hans í Panama-skjölunum:

„Inglewood.

Stofnað árið 2001. (Fyrir 15 árum síðan). Eign­ar­hald á skráðum og óskráðum hluta­bréfum flutt þangað. Þessi ákvörðun var end­ur­skoðuð 2005. Allar eignir Inglewood fluttar til Íslands inn í Milestone ehf. 2005. Engin starf­semi í Inglewood frá þeim tíma.

Nordic Pharma Invest­ment.

Stofnað árið 2002 (að mig minnir) fyrir 14 árum síðan. Megin starf­semi ávöxtun fjár á hávaxta­reikn­ingum og afleiðu­við­skipti í formi fram­virkra samn­inga. Íslensk skatta­lög fram til 1. sept­em­ber 2009 voru á þann veg að slíkar fjár­magnstekjur erlendra félaga voru und­an­þegnar skatti. Fyr­ir­spurn skatta­yf­ir­valda á Tortola sem þú minnt­ist á er vænt­an­lega til­komin vegna fyr­ir­spurnar íslenskra skatta­yf­ir­valda.  Ákvörðun var tekin um að svara íslenskum skatta­yf­ir­völdum beint og hefur það verið gert á full­nægj­andi hátt. Á ein­hverjum tíma­punkti var Nordic Pharma til skoð­unar hjá íslenskum skatta­yf­ir­völdum, en með bréfi hefur þeirri skoðun form­lega verið lokið.

Pargo hefur ekki verið í minni eigu.

Viscount kann­ast ég ekki við.

Lög­gjaf­inn setur skattalög bæði fyrir ein­stak­linga og fyr­ir­tæki. Lög um skatt­skil fyr­ir­tækja eru bæði umfangs­mikil og flókin. Í þeim er að finna alls konar heim­ildir um skatt­frelsi og heim­ildir til frestunar skatt­greiðslna. Ef vilji lög­gjafans stæði til ann­ars en þess sem lögin heim­ila, væru lögin vænt­an­lega með öðru sniði.

Vinna við end­ur­skoðun, gerð árs­reikn­inga og gerð skatt­fram­tala fyr­ir­tækja er unnin af lög­giltum endur­skoð­endum. Nær und­an­tekn­ing­ar­laust þegar skatt­fram­töl eru frá­gengin, leit­ast lög­giltir end­ur­skoð­endur fyr­ir­tækja við að lág­marka skatt­greiðslur innan ramma skatta­laga. Hingað til hafa þessi vinnu­brögð ekki sætt alvar­legri gagn­rýni.“

 

„Þetta hefur skapað gríðarleg vandamál“

„Þetta er tölu­vert breytt lands­lag miðað við það sem áður var fyrir ára­tug eða svo. Nú eru komnir þessir upp­lýs­inga­skipta­samn­ingar, “ segir Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri aðspurður um hversu mikil áhrif upp­lýs­inga­skipta­samn­ing­arnir við skatta­skjól og lág­skatta­svæði hafa haft á liðnum árum. Hann segir að auk hinna form­legu breyt­inga sem gerðar hafa verið um upp­lýs­inga­skipti á milli landa þá hafi einnig átt sér stað við­horfs­breyt­ing í löndum Evrópu. „En það sem skiptir kannski meira máli fyrir utan hina form­legu hlið er sú afstöðu­breyt­ing sem orðið hefur í þessum málum í Evrópu. 26 lönd héldu fund París í apríl þar sem eina fund­ar­efnið var Panama-skjölin og skatta­skjól. Það sem skiptir lang­mestu máli er þessi við­horfs­breyt­ing um að þetta sé ekki í lagi. Síðan erum við komin með fullt af samn­ingum og OECD-löndin líta þessi skatta­skjól miklu alvar­legri augum en áður og ekki bara OECD-löndin. Þannig að lands­lagið er mjög breytt. Þetta er auð­vitað eitt stærsta vanda­málið sem verið hefur í skatt­fram­kvæmd­inni hér á landi og víð­ast hvar erlendis, þessi afland­svæð­ing. Þetta hefur skapað gríð­ar­leg vanda­mál í skatt­fram­kvæmd­inni hérna. Sú lenska sem byrj­aði hérna í kringum síð­ustu alda­mót þegar fjár­mála­fyr­ir­tæki byrj­uðu að bjóða upp á þessa þjón­ustu hefur leitt til mik­ils tekju­staps hjá hinu opin­bera. Það er eng­inn vafi á því.“

Skúli Eggert segir að þó að upp­lýs­inga­skipta­samn­ing­arnir hafi hjálpað íslenskum skatta­yf­ir­völdum að fá upp­lýs­ingar frá löndum eins og Tortóla þá sé nokkuð mis­mun­andi á milli landa hversu auð­velt sé að fá upp­lýs­ingar frá þeim. „Upp­lýs­inga­skipta­samn­ing­arnir hafa hjálpað okkur tölu­vert á liðnum árum já. Það er hins vegar mis­erfitt á milli landa að fá upp­lýs­ingar frá þeim löndum sem um ræðir. Það fer svo­lítið eftir þeim hefðum sem eru ríkj­andi í hverju landi fyrir sig. Ég vil ekki nefna ein­stök lönd í þessu sam­hengi og skapa milli­ríkja­vanda­mál,“ segir Skúli Eggert í léttum dúr.

Skúli Eggert getur ekki tjáð sig um mál ein­stakra fjár­festa eða athafna­manna en hann segir að oft geti verið erfitt fyrir íslensk skatta­yf­ir­völd að fá gögn um starf­semi aflands­fé­laga frá eig­endum þeirra. Skúli Eggert segir að oft bíði menn með að skila gögnum um fyr­ir­tæki sín og félög þar til mál þeirra eru komin til yfir­skatta­nefndar til með­ferðar. Hann segir að til greina komi að hans mati að breyta skatta­lögum þannig að menn megi ekki skila gögnum svo seint. „Þegar verið er að kalla eftir ein­stak­lings­bundnum upp­lýs­ingum þá er það vegna þess að mál við­kom­andi eru komin í skoðun. Þetta snýst allt um það að ef aðil­inn leggur ekki fram gögnin þá getur það verið túlkað með þeim hætti að beita þurfi áætl­un­ar­heim­ildum skatta­laga. Það segir svo í skatta­lögum að ef gögn ber­ast ekki þá þurfi skatt­stjóri að áætla skatta við­kom­andi svo ríf­lega að það leiði ekki til lægri skatt­greiðslna. Við þessar aðstæður ger­ist það oft að gögn eru lögð fram á síð­asta stigi, það er að segja þegar mál við­kom­andi er komið til kasta yfir­skatta­nefndar. Það er alveg til athug­unar að setja ákvæði í lög sem sporna við þessu. Það er að segja að menn hafi bara ákveð­inn tíma til að skila gögnum þannig að menn geti ekki lagt fram gögn ein­hverjum árum síðar þegar mál eru komin á síð­asta stig. Þegar gögn eru lögð fram á síð­asta stigi þá eru mál­unum oft vísað aftur til með­ferðar hjá rík­is­skatt­stjóra þannig að þetta er ákveðin tví­verkn­aður. Þarna er fram­telj­and­inn að kanna hvað hann kemst upp með og svo þegar hann áttar sig á því, þegar málið er komið á síð­asta stig, að þetta horfir ekki vel þá er gripið til þess ráðs að draga fram gögn. Það eru þó nokkur dæmi um þetta og þá skap­ast alltaf grun­semdir um hvort gögnin séu til­búin. Þetta er einn af þessum punktum sem gott væri að fá umræðu um hvort ekki sé ástæða til að breyta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár