Óttarr Proppé ánægður með rökstuðning ráðherra – segir að Bókin um veginn sé líka stutt

Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra seg­ist ánægður með rök­stuðn­ing Sigríðar Á. Andersen fyrir því að víkja frá til­lögum dóm­nefndar um skipun dóm­ara við Lands­rétt.

Óttarr Proppé ánægður með rökstuðning ráðherra – segir að Bókin um veginn sé líka stutt
Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra seg­ist sáttur við rök­stuðn­ing dóms­mála­ráð­herra í Lands­rétt­ar­mál­inu. Mynd: skjáskot/ruv

Óttarr Proppé, heil­brigð­is­ráð­herra og for­maður Bjartrar fram­tíðar, seg­ist ánægður með rök­stuðn­ing Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra fyrir því að vikið verði frá til­lögum dóm­nefndar um skipan dóm­ara við Lands­rétt. Þetta kom fram í ræðu hans á Alþingi áðan.

Óttarr sagði Sigríði hafa rök­stutt fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd að hún telji að fleira eigi að koma til álita þegar skipað er í dóm­inn, meðal ann­ars dóm­ara­reynslu. „Ég tek undir og sam­þykki þá rök­semd­ar­færslu,“ sagði Óttarr. Þá sagði hann einnig nauð­syn­legt að horfa til kynja­sjón­ar­miða við skipun dóm­ara við Lands­rétt. Dóms­mála­ráð­herra hefur lýst sig mót­fallna slíkri nálgun.

Þegar Óttari var bent á að rök­stuðn­ingur Sigríðar fyrir til­lögu sinni væri stuttur og ekki sér­lega ítar­legur sagð­ist Óttarr gefa lítið fyrir blað­síðu­töl. „Rök­stuðn­ingur er ekki endi­lega betri ef hann er á fleiri blað­síðum eða verri ef hann er á færri blað­síðum. Margar af þeim merk­ustu upp­lýs­ingum, bókum og svo fram­vegis sem ég hef lesið, segjum t.d. bara Bókin um veg­inn, eru mjög stuttar... og mikið, t.d. íslenska stjórn­ar­skráin, líka nýja íslenska stjórn­ar­skráin, eru til­tölu­lega stutt plögg en þau skipta samt miklu máli,“ sagði hann. Óttarr sagð­ist í grunn­inn vera „sáttur við að ráð­herra hafi rök­stutt sína til­lögu“. 

Á meðal þeirra sem dóms­mála­ráð­herra vill ekki skipa sem dóm­ara við Lands­rétt, þrátt fyrir mat dóm­nefnd­ar­innar, er Eiríkur Jónsson en hann var í sjö­unda sæti hjá nefnd­inni og er með meiri dóm­ara­reynslu en aðrir á lista ráð­herr­ans. Jóhannes Karl Sveins­son hæsta­rétt­ar­lög­maður er á meðal þeirra sem hefur bent á, í umsögn við til­lögu Sigríðar, að hróker­ingar ráð­herra geti ekki byggt á því að hún hafi talið dóm­ara­reynslu eiga að hafa meira hæfi en nefndin ákvað, enda hafi Eiríki verið skipt út á meðan aðrir umsækj­endur með minni dóm­ara­reynslu voru látnir í friði. 

Mikill titr­ingur hefur verið vegna máls­ins, en afgreiðslu þess var frestað í eftir langan þing­fund í nótt. Málið hefur vakið mikla athygli en til­laga Sigríðar felur í sér að fjórir umsækj­endur af þeim fimmtán sem dóm­nefnd taldi hæf­asta verði ekki skip­aðir dóm­arar en aðrir fjórir umsækj­endur verði skip­aðir í þeirra stað. Óttarr sagði ljóst miðað við umræð­una á Alþingi í dag að það væri ekki í aug­sýn að það mynd­ist breið póli­tísk sátt um málið. 

Þá sagði hann hlut­verk Alþingis ekki vera að vera ný mats­nefnd í mál­inu, heldur felist ákvörðun þing­manna í því að vera neit­un­ar­vald, það er að sam­þykkja eða hafna til­lögu ráð­herra. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár