Barnavernd stöðvaði flutning barnanna úr landi

Fjöl­skyldan sem vísa átti úr landi í lög­reglu­fylgd í nótt er ekki farin úr landi, þar sem barna­vernd fór fram á frestun. Meðal þeirra sem lög­regla átti að fylgja úr landi eru tvö smá­börn sem fædd­ust á Íslandi og hafa búið hér alla sína tíð.

Barnavernd stöðvaði flutning barnanna úr landi

Brott­flutn­ingi fjöl­skyldu sem stóð til að vísa úr landi í nótt að beiðni Útlend­inga­stofn­unar var frestað eftir inn­grip frá barna­vernd. Í fjöl­skyld­unni eru tvö ung börn sem eru fædd og upp­alin hér á Íslandi, þau Hanif sem er tveggja ára og Jónína sex mán­aða. Faðir barn­anna, Abdelwahab Saad, flúði póli­tískar ofsóknir frá heima­land­inu Togo fyrir tíu árum síðan. Fyrir tveimur árum síðan kom hann til Íslands með eig­in­konu sinni Fadilu. 

Fadila grét hástöfum á meðan aðgerðir lög­reglu stóðu yfir eins og sjá má á með­fylgj­andi mynd­bandi sem sam­tökin Ekki fleiri brott­vís­anir birtu í morgun. „Ég ætla að biðja press­una um að vin­sam­leg­ast yfir­gefa stað­inn núna,“ segir einn lög­reglu­manna, en fjöl­skyldan hafði boðið gestum til sín til að veita sér styrk og fjöl­miðlum til að bera atburð­inum vitni. Bæði fjöl­miðlar og gestir voru reknir út af lög­reglu. „Hvernig getið þið sofið á nótt­unni?“ grætur vinur fjöl­skyld­unnar.

Í ljósi aðstæðna var full­trúi frá barna­vernd­ar­nefnd Reykja­nes­bæjar kall­aður á stað­inn til þess að aðstoða við brott­vís­un­ina. Á meðan fleygðu lög­reglu­menn eigum fjöl­skyld­unnar í ferða­töskur og svarta rusla­poka. Þegar full­trúi barna­vernd­ar­nefndar kom á stað­inn bað hann lög­regl­una, í ljósi aðstæðna, að slá aðgerð­inni á frest. Barna­vernd­ar­nefnd hefur hins vegar enga heim­ild til að stoppa brott­vís­anir og stendur brott­vís­unar­úr­skurður fjöl­skyld­unnar því enn. „Við vitum ekki hvað mun ger­ast næst,“ segir vinur fjöl­skyld­unnar í sam­tali við Stundina.

Börnin fædd hér á landi

Stundin hefur áður fjallað um fjöl­skyld­una en fjöl­skyldu­fað­ir­inn Abdelwahab Saad flúði frá heima­landi sínu, Togo, fyrir tíu árum síðan vegna póli­tískra ofsókna. Hann og eig­in­kona hans, Fadila, hafa nú dvalið hér á landi í tvö ár og eiga tvö börn, ann­ars vegar tveggja ára son­inn Hanif, sem er nýbyrj­aður á leik­skóla og hins vegar sex mán­aða gamla dóttur sem heitir Jónína. Jónína er nefnd eftir íslenskri ljós­móður sem reynd­ist þeim vel. Bæði Hanif og Jónína eru með íslenska kenni­tölu og hafa búið á Íslandi frá fæð­ingu. Um einmitt þetta snýst umrætt vafat­riði um því í ákvæði útlend­inga­lag­anna er kveðið svo á um að óheim­ilt sé að vísa frá eða úr landi útlend­ingi sem hafi frá fæð­ingu átt hér óslitið fasta búsetu sam­kvæmt Þjóðskrá.

Það liggur skýrt fyrir að börnin hafi átt hér óslitið fasta búsetu en það hafi þau það hins­vegar ekki gert sam­kvæmt Þjóðskrá. Ástæðan er að hæl­is­leit­endur fá ekki gefna neina stöðu hjá Þjóðskrá. Börnin hafi fengið það sem kall­ast „utan­skrár kennitala“ og það sé skrán­ing utan Þjóð­skrár og því hafi þau ekki rétt sam­kvæmt þessu ákveðna ákvæði að vera hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár