Óréttlætanlegt að ferðamenn fái afslátt af neyslusköttum meðan innviðirnir grotna niður vegna álags

Oddný G. Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, svarar gagn­rýni fram­kvæmda­stjóra Kynn­is­ferða á stefnu­mál flokks­ins.

Oddný G. Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir van­hugsað að veita ferða­mönnum sér­stakan afslátt af neyslu­sköttum, nú þegar ferða­þjón­ustan er orðin stærsta atvinnu­greinin og inn­viðir eru að gefa eftir vegna álags.

Kristján Dan­í­els­son, fram­kvæmda­stjóri Kynn­is­ferða, gagn­rýndi Sam­fylk­ing­una nýlega í við­tali við Við­skipta­blaðið og var­aði við hug­myndum um að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu upp í efra þrep. Kynn­is­ferðir ehf. er í eigu for­eldra og frænd­fólks Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, en fyrsta frum­varpið sem Bjarni lagði fram sem fjár­mála­ráð­herra árið 2013 var laga­breyt­ing um að fallið yrði frá áformum fyrri rík­is­stjórnar um hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu. Ákvörð­unin var umdeild enda hefur atvinnu­greinin vaxið gríð­ar­lega und­an­farin ár vegna fjölg­unar ferða­manna. 

Oddný segir í sam­tali við Stundina að styrkja þurfi inn­viði til að ferða­þjón­ustan megi blómstra áfram sem atvinnu­grein. Aðeins þannig muni fjár­fest­ing­arnar sem ráð­ist hefur verið í borga sig til lengri tíma. „Það þarf að halda við veg­unum og auka umferð­ar­ör­yggi um allt land. Það þarf að efla lög­gæsl­una og sjúkra­flutn­inga enda hefur álag marg­fald­ast vegna fjölg­unar ferða­manna. Það þarf að efla heilsu­gæsl­una, einkum bráða­mót­tökur þar sem álagið er mest,“ segir hún og bætir því við að byggja þurfi upp góða aðstöðu á ferða­manna­stöðum og laða fólk að fleiri stöðum en nú er gert.

„Almennt þrep virð­is­auka­skatts er 24%. Allt sem stjórn­völd telja rétt­læt­an­legt að gefa und­an­þágu frá almenna þrep­inu er með 11% eða 0% virð­is­auka­skatti. Und­an­þága er til að mynda á mat­væli því það er allra hagur. Bóka­þjóðin setur bækur í unda­þágu­þrepið og orku­sölu og það er skilj­an­legt. Og svo fá þeir ferða­menn líka afslátt sem versla sér gist­ingu á Íslandi, kaupa sér afþr­ey­ingu og far með rútum eins og Kynn­is­ferðir reka. Þann afslátt mátti rétt­læta þegar að við vildum með honum laða fleiri ferða­menn til lands­ins,“ segir Oddný. 

„Nú þegar að ferða­þjón­ustan er orðin stærsta atvinnu­greinin og inn­viðir að gefa eftir vegna álags þá er ómögu­legt að rétt­læta afslátt af neyslu­sköttum 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár