Ætla að selja Þórsberg á milljarða eftir að öllum var sagt upp

Öllum starfs­mönnum Þórs­bergs var sagt upp í byrjun vik­unnar. Viðræður standa yfir við Odda um kaup á afla­heim­ildum Þórs­bergs segja fram­kvæmda­stjórar beggja fyr­ir­tækj­anna. Söluverð gæti numið um þremur millj­örðum króna.

Ætla að selja Þórsberg á milljarða eftir að öllum var sagt upp
Stærsti vinnu­veit­and­inn Upp­sagnir starfs­manna Þórs­bergs þýða að 26 ein­stak­lingar á Tálkna­firði missa vinn­una. Útgerðin er stærsti atvinnu­rek­and­inn þar.

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Oddi hf. á Pat­reks­firði á nú í við­ræðum við eig­endur Þórs­bergs á Tálkna­firði um  að kaupa eignir fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta stað­festa þeir Guðjón Ind­riða­son, fram­kvæmda­stjóri Þórs­bergs, og Sigurður Vigg­ós­son, fram­kvæmda­stjóri Odda hf. í sam­tali við Stundina.

Öllum 26 starfs­mönnum Þórs­bergs var sagt upp störfum í byrjun vik­unnar en um er að ræða stærsta atvinnu­rek­and­ann á Tálkna­firði.  Oddi er í 32 sæti yfir stærstu kvóta­eig­endur á Íslandi með 0,6 pró­sent kvót­ans og eða ríf­lega 2600 þork­sí­gildistonn á meðan Þórsberg er í 47 sæti með 0,3 pró­sent kvót­ans eða rúm­lega 1200 tonn. Oddi mun því fara upp nærri 4000 tonn af kvóta af við­skipt­unum verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala útgerðarfyrirtækja

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu