Mynd: Birtíngur

Lögreglan logar

Umdeildir stjórn­un­ar­hættir nýs lög­reglu­stjóra og síend­ur­teknar stöðu­veit­ingar án aug­lýs­inga hafa valdið ólgu og van­líðan meðal starfs­fólks lög­reglu­emb­ætt­is­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Gríð­ar­legrar óánægju gætir innan lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna starfs­hátta Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra og Öldu Hrannar Jóhanns­dóttur aðal­lög­fræð­ings emb­ætt­is­ins. Á meðal þess sem veldur starfs­mönnum emb­ætt­is­ins van­líðan eru umdeildir stjórn­un­ar­hættir lög­reglu­stjór­ans, en í þessu sam­hengi nefna lög­reglu­menn bræðisköst, und­ir­róður, nið­ur­lægj­andi fram­komu og sam­ráðs­leysi. „Ég myndi ekki ganga svo langt að kalla það ein­elti, en þarna er samt ákveðið mynstur sem hlýtur að falla undir ein­elt­istil­burði,“ segir einn af heim­ild­ar­mönnum Stund­ar­innar en nokkrir starfs­menn hyggj­ast leita til Vinnu­eft­ir­lits­ins ef ástandið batnar ekki. 

Um tutt­ugu starfs­menn lög­regl­unnar hafa leitað til Lands­sam­bands lög­reglu­manna auk þess sem sjö starfs­menn, meðal ann­ars stjórn­endur, hafa kvartað til inn­an­rík­is­ráð­herra og fundað í ráðu­neyt­inu um stöðu mála. Jafn­framt hefur lands­sam­bandið sent umboðs­manni Alþingis bréf þar sem hann er beð­inn um að rann­saka hvort ítrek­aðar stöðu­veit­ingar án aug­lýs­inga stand­ist lög og sam­ræm­ist vönd­uðum stjórn­sýslu­háttum.

Innan ákæru­deildar lög­reglu bein­ist óánægjan ekki síst að Öldu Hrönn Jóhanns­dóttur, aðal­lög­fræð­ingi sem var aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri um tíma. Því er meðal ann­ars haldið fram að hún skipti sér meira af störfum ákæru­sviða og ein­stökum málum en eðli­legt geti talist í ljósi þess að hún fer ekki lengur með eig­in­legt ákæru­vald sam­kvæmt saka­mála­lögum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár