Landhelgisgæslan siglir til Færeyja til að taka olíu á lægra verði

Aðeins 4% þeirrar olíu sem skip Landhelgis­gæslunnar hafa tekið síðustu fjögur ár hefur verið keypt á Íslandi. Hagstæðara er að kaupa olíu í Færeyjum og hefur íslenska ríkið fyrir vikið orðið af rúmum 300 milljónum í olíugjöld.

Varðskipið Þór
Varð­skipið Þór Var með flesta úthalds­daga á tíma­bil­inu sem um ræðir, eða 672.

Landhelgis­gæslan hefur undan­farin fjögur ár að langmestu leyti keypt olíu á íslenska flotann í Færeyjum, þar sem hún greiðir lægra verð fyrir olíuna en hér á landi.

Þar að auki hefur gæslan með þessu komist hjá því að greiða olíugjald hér á landi og hefur ríkið þannig orðið af rúmlega 300 milljónum króna.

Upplýsinga­fulltrúi gæslunnar, Sveinn H. Guðmarsson, segir að sú stefna hafi verið mörkuð að gæta skuli ráðdeildar og aðhalds í rekstrinum. Jafnframt hafi gæslan getað fjölgað úthalds­dögum varð­skipanna vegna þess sparnaðar sem hlotist hafi af þessum olíu­kaupum.

80% í Færeyjum, 2% á Íslandi

Í svari Sigríðar Á. Andersen dómsmála­ráðherra við fyrir­spurn vara­þingmanns Pírata, Gunnars I. Guðmunds­sonar, um úthalds­daga Landhelgis­gæslunnar, kemur fram að frá árinu 2013 hafa skip gæslunnar keypt um 80% af allri olíu í Færeyjum. Aðeins um 4% olíunnar hafa verið keypt á Íslandi.

Alls tók gæslan 5.270.288 lítra af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár