Lagabreytingar ýta eldra fólki úr vinnu

Breytingar á lögum um almanna­tryggingar, sem taka gildi um áramótin, gera eldri borgurum nánast ókleift að vinna samhliða lífeyris­greiðslum. „Verið er að stela af eldri borgurum,“ segir maður sem hættir að vinna um áramótin vegna fjár­hags­legra áhrifa breytinganna.

Eldri borgarar
Eldri borg­arar munu hverfa af vinnu­mark­aði, gangi spár gagn­rýnenda laga­breyt­ing­anna eftir. Mynd: Shutterstock

Fjöldi eldri borgara hyggst yfirgefa vinnu­markaðinn eftir áramótin vegna þess að Alþingi samþykkti breytingar á lögum um almanna­tryggingar sem gera þeim óhagstætt að stunda vinnu.

Breytingarnar, sem taka gildi um áramót, munu hafa í för með sér að frítekju­mark er lækkað svo mikið að nánast tilgangs­laust er fyrir fólk að reyna að starfa meðfram lífeyris­greiðslum. Þannig mun ríkið taka minnst 820 krónur af hverjum 1000 krónum eftir að þeir ná 25 þúsund króna frítekju­marki. 

„Ég get ekki hugsað mér að sitja heima og gera ekki neitt,“ segir Carl Bjarni Rasmusson, sem neyðist til að hætta að vinna.

Sagðir hagnast á breytingunum

 

Stjórn­völd hafa haldið því fram að verið sé að auka framlög til eldri borgara um 11 milljónir, en gagn­rýnendur laga­breytinganna segja eldri borgara sjálfa standa straum af þeim kostnaði.

Frítekju­markið í núverandi lögum er 109 þúsund krónur. Fyrir hverja krónu umfram 109 þúsund sem eldri borgari vinnur sér inn eru lífeyris­greiðslur hans svo skertar um eina krónu. Svokallað „krónu á móti krónu“. Með nýju lögunum er hins vegar frítekju­markið lækkað niður í 25 þúsund krónur, eftir það tekur við skerðing upp á 45%, sem svo stig­hækkar í 100% þegar viðkomandi er kominn í 531.406 krónur í heildar­tekjur.

Skerðingin sem tekur gildi um áramótin, virkar í einföldu máli þannig að fyrir hverjar 1.000 krónur sem eldri borgari vinnur sér inn umfram 25 þúsund krónur eru fyrst teknar 450 krónur af honum í skerðingu og svo 370 krónur í skatt. Þá eru eftir 180 krónur. Eldri borgarar sem Stundin ræddi við segja að með breytingunum sé hreinlega verið að þvinga fólk sem vill stunda vinnu út af atvinnu­markaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár