Konurnar kærðar fyrir rangar sakagiftir

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður og verj­andi ann­ars sak­born­inga í nauðg­un­ar­máli í Hlíðum, segir ábyrgð Frétta­blaðs­ins mikla. Frétta­blaðið krafið um tutt­ugu millj­ónir krónur og afsök­un­ar­beiðni. Aðstoð­ar­rit­stjóri segir fjöl­mið­il­inn ekki bera ábyrgð á atburða­rás gær­dags­ins.

Konurnar kærðar fyrir rangar sakagiftir

Vil­hjálmur H. Vil­hjáms­son, lög­maður og verj­andi ann­ars sak­born­inga í umdeildu nauðg­un­ar­máli, lagði í gær fram kæru á hendur stúlk­unum tveimur sem kærðu tvo menn fyrir nauðgun í síð­asta mán­uði. Þær eru kærðar fyrir rangar saka­giftir. Vil­hjálmur sagði frá þessu í við­tali í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun.

„Ég veit ekk­ert hvað býr í heila­bú­inu á stúlkum sem ákveða að saka menn að ósekju um slíka hluti. Ég get ekki sett mig inn í það hug­ar­á­stand,“ sagði Vil­hjálmur meðal ann­ars, þegar hann var spurður að því af hverju stúlk­urnar ættu að ljúga þessu upp á menn­ina. Þá hefur hann einnig krafið Frétta­blaðið um tutt­ugu millj­ónir króna í miska­bætur. 

„Ég veit ekk­ert hvað býr í heila­bú­inu á stúlkum sem ákveða að saka menn að ósekju um slíka hluti.“

Fanney Birna Jóns­dóttir, aðstoð­ar­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, var einnig í við­tali í Morg­un­út­varp­inu. Hún sagði Frétta­blaðið standa við for­síðu­frétt gær­dags­ins og vís­aði í yfir­lýs­ingu Krist­ínar Þor­steins­dóttur aðal­rit­stjóra Frétta­blaðs­ins í þeim efnum. Þá vísar hún í við­tal Frétta­blaðs­ins við Öldu Hrönn Jóhanns­dóttur, yfir­lög­reglu­fræð­ing á skrif­stofu lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í morgun þar sem hún segir að hug­tök á borð við „útbúin til nauð­gana“ og „raðnauð­garar“ séu mats­kennd. Í frétt­inni hafi komið fram að í íbúð­inni hafi fund­ist tæki og tól sem hafi verið notuð í ofbeld­istil­gangi og þessar stað­hæf­ingar hafi Frétta­blaðið hafi fengið stað­fest af fleiri en einum heim­ilda­manni. 

Fanney Birna sagði Frétta­blaðið ekki ábyrgt á þeirri atburða­rás sem varð í gær en mikil reiði greip um sig í kjöl­far frétt­ar­innar. Rúmlega þrjú þús­und manns hafa nú deilt mynd af mönn­unum tveimur sem grun­aðir eru um nauðgun á Facebook og þá mættu um fimm hund­ruð manns til mót­mæla fyrir utan lög­reglu­stöð­ina að Hverf­is­götu í gær og mót­mæltu vinnu­brögðum lög­regl­unnar í kyn­ferð­is­brota­málum. Fanney Birna segir það hafa verið síð­ustu sten­ingu frétt­ar­innar, ekki fyr­ir­sögn­ina, sem hafi vakið mesta athygli, að menn­irnir hafi ekki verið úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald. 

Haldlögðu tölvu, svipu og keðjur

Vil­hjálmur segir gögn liggja fyrir í mál­inu sem sýni fram á að mað­ur­inn og önnur stúlkan hafi átt í miklum og góðum sam­skiptum um mán­að­ar­skeið, þar á meðal eftir að kyn­mök áttu sér stað. Í seinna mál­inu, þar sem skjól­stæð­ingur Vil­hjálms er kærður ásamt öðrum manni fyrir nauðgun, er honum gefið að sök að hafa skipað kon­unni að hafa munn­mök við hinn mann­inn. Menn­irnir hafa hins vegar báðir hafnað þess­ari lýs­ingu alfarið. Þá segir hann atvik dag­inn eftir sýna fram á að allt hafi leikið í lyndi. „Fólkið snæddi þarna saman morg­un­mat. Stúlkan hafði brotið hæl á skemmt­ana­líf­inu á skónum sínum um kvöldið og fór út í skóm og bol af öðrum kærðu. Allt lék í lyndi,“ full­yrðir Vil­hjálmur. „Þetta er auð­vitað mjög sér­stakt, svo ekki sé fast­ara að orði kveðið, og í engu sam­ræmi við þær svaka­legu lýs­ingar í Frétta­blað­inu. Sem er auð­vitað alveg með ólík­indum.“ Þess ber að geta að Vil­hjálmur hefur ekki fengið gögn máls­ins afhent hjá lög­reglu. Hann tók við sem verj­andi ann­ars manns­ins seinni part­inn í gær. 

„Stúlkan hafði brotið hæl á skemmt­ana­líf­inu á skónum sínum um kvöldið og fór út í skóm og bol af öðrum kærðu. Allt lék í lyndi.“

Að sögn Vil­hjálms voru þrír hlutir hald­lagðir af lög­reglu í íbúð­inni í Hlíðunum; tölvu, gamla svipu sem afi hús­ráð­anda átti og keðjur af box­púða kærða. „Annað var ekki hald­lagt og íbúðin er að öðru leyti óhreyfð,“ segir hann í ummælum við mynd­band sem hann birti á Facebook í gær­kvöld. Mynd­bandið á að sýna fram á venju­lega 35 fer­metra íbúð en ekki íbúð útbúna fyrir nauðg­anir eins og Frétta­blaðið full­yrti í for­síðu­frétt í gær. 

Um þá stað­reynd að menn­irnir voru ekki úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald segir Vil­hjálmur: „Ég held að lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem er með mjög marga færa lög­fræð­inga á sínum snærum hafi ein­fald­lega áttað sig á því að þeir voru ekki með neitt mál í hönd­unum. Síðan kemur upp ein­hvers konar múgæs­ingur í kringum þetta.“

Hann segir við­brögð lög­reglu í gær, að fara aftur yfir málið og kanna hvort mis­tök hafi verið gerð við rann­sókn þess, hafi verið til þess að sefa reiði eig­enda umræð­unnar. „Eigendur umræð­unnar eru auð­vitað þessir þrýsti­hópar sem hafa verið að þrýsta á og skipu­leggja þennan úti­fund. Halda þessum málum á lofti; Druslu­gangan, Stígamót og svo mætti lengi áfram telja. Það eru auð­vitað allir skít­hræddir við þetta lið.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár