„Klámsýning“ Reykjavíkurdætra rædd á stjórnarfundi RÚV

Stjórn­ar­maður RÚV segir með ein­dæmum að svona atriði hafi verið sýnt á rík­is­fjöl­miðl­inum og ætlar að kalla á eftir við­brögðum útvarps­stjóra. Hann er einnig ósáttur við frétta­flutn­ing á RÚV og talar um „gulu pressu frétta­mennsku“.

„Klámsýning“ Reykjavíkurdætra rædd á stjórnarfundi RÚV

Kristinn Dagur Giss­ur­ar­son, stjórn­ar­maður RÚV og bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kópavogi, seg­ist ætla að kalla á eftir við­brögðum frá Magnúsi Geir Þórð­ar­syni útvarps­stjóra á stjórn­ar­fundi RÚV í dag vegna fram­komu Reykja­vík­ur­dætra í Vikunni, sjón­varps­þætti Gísla Marteins Bald­urs­sonar, síð­ast­liðið föstu­dags­kvöld. Kristinn segir að um hafi verið að ræða „hálf­gerða klám­sýn­ingu“ og að svona „eigi ekki að koma fyrir á rík­is­fjöl­miðli“. Þetta sagði Kristinn í síð­deg­is­út­varpi Útvarps Sögu í gær. „Ég verð að segja það alveg hreint út hér að þetta er með ein­dæmum að svona efni skuli hafa verið sýnt á rík­is­fjöl­miðl­inum, í fjöl­skyldu­þætti,“ segir hann. 

Ósáttur við fréttastofu RÚV
Ósáttur við frétta­stofu RÚV Kristinn Dagur Giss­ur­ar­son, stjórn­ar­maður hjá RÚV, segir of mikið um „gulu pressu frétta­mennsku“ á RÚV.

Kristinn segir enn­fremur að starfs­maður RÚV hafi farið „út af spor­inu hvað varðar dag­skrár­gerð­ar­stefnu þessa rík­is­fjöl­mið­ils“. Þá fer Kristinn hörðum orðum um Gísla Martein. „Það er líka svo­lítið skrítið að starfs­maður RÚV, sem er á einum heitasta útsend­ing­ar­tíma, sé fram­sögu­maður í heitum málum úti í bæ og er þar að lýsa hörðum, póli­tískum skoð­unum. Þetta er nátt­úr­lega ekki alveg í lagi í mínum huga. Starfs­menn sem eru að vinna hjá fjöl­miðli, tala nú ekki um rík­is­fjöl­miðli, verða að gæta sín aðeins.“

„Þetta er með ein­dæmum að svona efni skuli hafa verið sýnt á rík­is­fjöl­miðl­inum.“ 

Aðspurður hvort stjórn RÚV geti dregið þennan dag­skrár­gerð­ar­mann til ábyrgðar segir Kristinn svo ekki vera, en stjórnin geti „rekið útvarps­stjór­ann“. 

Kristinn segir þetta ekki í fyrsta skipti sem sam­bæri­leg mál hafa komið upp á RÚV. „Það hafa of mörg svona mál komið upp,“ segir hann. „Munið ekki eftir þegar var verið að tala um í ein­hverjum íþrótta­þætti, ef ég man rétt, hel­för­ina eða nas­isma?“ spyr hann og er lík­lega að vísa í ummæli Björns Braga Arn­ar­sonar um íslenska hand­boltalands­liðið árið 2014. Þess má geta að íþrótta­deild RÚV baðst afsök­unar á ummæl­unum á sínum tíma. 

Hjólar í Gísla Martein
Hjólar í Gísla Martein Kristinn Dagur segir Gísla Martein hafa farið „út af spor­inu hvað varðar dag­skrár­gerð­ar­stefnu þessa rík­is­fjöl­mið­ils“ með því að sýna atriði Reykja­vík­ur­dætra.

Lágkúrulegar fréttir á RÚV

Kristinn hjólar einnig í frétta­stofu RÚV og segir rík­is­fjöl­miðil þurfa að passa upp á ímynd­ina. „Ég verð nú að segja það að ég hef nú látið í mér heyra á stjórn­ar­fundum um að mér finnst RÚV á stundum um of ástunda það sem er kallað gulu pressu frétta­mennsku,“ segir hann og bætir því jafn­framt við að hann geti nefnd fjöl­mörg dæmi þess efnis, en nefnir hins vegar engin dæmi. „Það er verið að varpa fram fréttum sem eru þess eðlis að þær eiga ekk­ert að vera í rík­is­fjöl­miðlum. Þetta eru svona „lág­kúru­legar fréttir“.“

Þátta­stjórn­andi spurði í fram­hald­inu hvort stjórn RÚV gæti haft afskipti af dag­skránni. „Nei,“ svarar Kristinn. „En stjórnin mótar dag­skrár­gerð­ar­stefn­una og á að hafa, sam­kvæmt lögum, aðild að því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár