KK mótmælir misskiptingu: „Sárt að horfa upp á þetta því Ísland er ekki fátækt land“

Mót­mæl­endur Aust­ur­velli öskra: „Vanhæf rík­is­stjórn.“ Ræða Braga Páls: „Rík­is­stjórn þar sem Vigdís Hauks­dóttir er for­maður fjár­laga­nefndar er van­hæf rík­is­stjórn.“

KK mótmælir misskiptingu: „Sárt að horfa upp á þetta því Ísland er ekki fátækt land“
Mótmælt á Aust­ur­velli „Stöðvum arðránið,“ sagði Bragi Páll Sig­urðs­son í ræðu sinni í dag og fólkið öskr­aði van­hæf rík­is­stjórn. Mynd: Snorri Þór Tryggvason / www.borgarmynd.com

Á Aust­ur­velli hafa mót­mæl­endur safn­ast saman til þess að and­mæla gjörðum rík­is­stjórn­ar­innar, en þar var boðað til bylt­ingar, upp­reisnar, kl. 17. Á meðal þeirra sem fram koma eru þau KK, Valdimar, Jónína Björg Magn­ús­dóttir, auk þess sem Bragi Páll Sig­urð­ar­son rit­höf­undur fer með erindi sem og Sigríður Bylgja Sig­ur­jóns­dóttir.

Á meðan blaða­maður ræðir við KK öskrar fólk á staðnum end­ur­tekið: „Vanhæf rík­is­stjórn!“ undir for­ystu Braga Páls, líkt í bús­á­halda­bylt­ing­unni árið 2008.

Um leið og boðað var til bylt­ingar voru gefnar upp 99 ástæður til að mæta. Fyrr í dag höfðu 6.700 manns boðað komu sína, flestir sögðu ástæð­una vera spill­ingu og 1.300 nefndu mak­ríl­frum­varpið. „Íslenskar útgerðir mala gull. Eigendur þeirra fá gef­ins stærstu auð­lind þjóð­ar­innar, borga ekk­ert fyrir rent­una og fá að borga eins lítið í skatt og þeim dettur í hug. Útgerð­irnar halda að við getum ekki án þeirra verið. En það er akkúrat öfugt. Útgerð­irnar gætu aldrei starfað ef það væri ekki fyrir íslenskan almenn­ing. Íslenska sjó­menn og fólkið í fisk­vinnsl­unni. En í stað­inn fyrir að auð­lindin vinni í þágu þjóð­ar­innar þá er hún einka­eign örfárra mold­ríkra ein­stak­linga. Ég segi þjóð­nýtum þær. Fáum þennan pen­ing inn á okkar banka­reikn­ing. Stöðvum arðránið,“ sagði Bragi Páll í ræðu sinni.

„Núna eru engin úrræði fyrir ein­stæða móður með þrjú börn sem er verka­kona á lágum launum.“

Fiskurinn og vatnið eru sameign þjóðarinnar

Húsnæðismálin í ólestri
Hús­næð­is­málin í ólestri Kristján segir að svo lengi sem hann hafi munað eftir sér hafi hús­næð­is­mál hér á landi verið í ólestri. Það sé ekki boð­legt að fólk sé á valdi bank­anna alla ævi fyrir að koma sér upp þaki yfir höf­uðið.

Í sam­tali við Stundina, sagði Kristján Krist­jáns­son, betur þekktur sem KK, að mis­skipt­ing auðs væri ástæðan fyrir veru hans þar. Auður safn­að­ist saman á örfáar hendur og fólk væri reitt. „Mis­skipt­ing er vanda­mál á Íslandi, í Bret­landi og í Banda­ríkj­unum. Mis­skipt­ing auðs­ins er rótin að óánægju og upp­lausnar í sam­fé­lögum. Sameign okkar eins og heita vatnið og fisk­ur­inn á ekki að einka­væða. Það má ekki verða þannig að fjár­festar geti farið að leika sér að þessum hlutum eins og þeir eigi þetta prí­vat og per­sónu­lega. Það er reynsla af þessu öllu og hún er ekki góð.

Mis­skipt­ing hefur farið versn­andi. Þegar skattar hátekju­fólks og þeirra alrík­ustu eru lækk­aðir er það alltaf ávísun á mis­skipt­ingu. Þá þarf að sækja pen­ing­ana ann­ars staðar og það lendir á þeim sem síst skyldi.

Ef þú ætlar að hafa sam­fé­lag þá þarf það að upp­fylla grunn­skil­yrði. Ef þú ert að byggja hús þá þarftu að hafa góðan grunn. Ef þú ert að byggja sam­fé­lag þá eru grunn­skil­yrðin, hús­næði, fæði og klæði. Síðan byggir þú ofan á það og tryggir öryggi, starfs­ör­yggi, fjár­hags­legt öryggi, menntun og annað slíkt. Þú byggir ofan á þennan grunn.“

„Þetta gæti verið para­dís hérna.“

Húsnæðismálin í ólestri

„Eitt af því sem er ábóta­vant hjá okkur á Íslandi eru hús­næð­is­málin,“ segir Kristján. „Þau hafa verið í ólestri frá því að ég man eftir mér. Ég er 59 ára gam­all og ég er búinn að búa á Íslandi í 50 ár og alltaf hafa hús­næð­is­málin verið slæm. Um tíma voru verka­manna­bú­staðir en núna eru engin úrræði fyrir ein­stæða móður með þrjú börn sem er verka­kona á lágum launum. Ég skil ekki hvernig fólk kemst af.

Það er svo sárt að horfa upp á þetta því Ísland er ekki fátækt land. Það er til nóg af öllu hérna. Þetta eru afleið­ingar af mis­skipt­ingu, sem maður horfir upp á og það er sárt. Það finnst það öllum. Þess vegna er fólk komið hingað. Það er orðið þreytt á þessu. Þetta þarf ekki að vera svona. Þetta gæti verið para­dís hérna.

„Húsnæði á ekki að vera verk­færi fyrir auð­valdið, bank­ana til að ná tang­ar­haldi á okkur, en hús­næð­is­lánin fylgja okkur í gröf­ina.“

Menntun gæti verið mikið aðgengi­legri og þessar grunn­þarfir eins og hús­næði á ekki að vera verk­færi fyrir auð­valdið, bank­ana til að ná tang­ar­haldi á okkur, en hús­næð­is­lánin fylgja okkur í gröf­ina. Allt þitt líf eiga bank­arnir þig, af því að þú þarft að upp­fylla þetta grunn­skil­yrði og koma þaki yfir höf­uðið á þér. Þetta er bara eitt af mörgu, en það er mjög mikið órétt­læti í sam­fé­lag­inu.“

Segir forsætisráðherra sýna vanvirðingu

Misbauð vanvirðingin
Misbauð van­virð­ingin Jónína samdi Svei­attan þegar henni mis­bauð fram­ganga vinnu­veit­and­ans sem bauð starfs­fólk­inni upp á íspinna fyrir að leggja hart að sér til að auka fram­legð fyr­ir­tæk­is­ins.

Jónína Björg Magn­ús­dóttir söng tvö lög á mót­mæl­unum. Annars vegar lagið Svei­attan, en text­ann samdi hún við lag Braga Valdi­mars Skúla­sonar í Baggalúti, og hins vegar gam­alt her­stöðv­ar­and­stæð­inga­lag. „Mig lang­aði til að und­ir­strika að þeir sem svíkja lof­orðin sín fái það aftur í haus­inn. Laginu lýkur með þessum orðum: „Hefnist þeim sem svíkur sína huldu­mey, honum verður erf­iður dauð­inn.“ Almennt trúi ég því að það góða sem þú gefur út í heim­inn færðu til baka. Þegar ráða­menn koma kjána­lega fram og tjá sig illa og af van­virð­ingu við fólkið sem hefur kosið þá í þessa stöðu þá fái þeir það sama til baka. Í dag er vel tekið í trommur hér á Aust­ur­velli.

Fólk er greini­lega reitt vegna þeirrar van­virð­ingar sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur sýnt fólki þegar hann tjáir sig. Mér fannst líka mikil van­virð­ing fel­ast í því þegar hann rölti fram og fékk sér köku þegar hann átti að vera að svara óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi.

Ég er Íslend­ingur, ég borga launin hans. Hann á bara að vinna sína vinnu almenni­lega og gera það án þess að sýna fólki van­virð­ingu.

„Það á að virða hvern mann. Ég er ekki bara fisk­verk­un­ar­kona.“

Það á að virða hvern mann. Ég er ekki bara fisk­verk­un­ar­kona. Ég hef verið hel­vítis útlend­ingur í Svíþjóð í átta ár og þekki þá stöðu. Ég er líka amma og á sjö ömmu­börn, eitt lítið ljós á himni og það sjötta með lífi er vænt­an­legt á næst­unni. Ég ber hag þeirra fyrir brjósti. Ég ber hag sam­borg­ara minna fyrir brjósti, fólks sem getur ekki tjáð sig sjálft. Það er svo margt sem maður stendur fyrir, í orði og á borði, vona ég.

Ef fólk hefur ekki orku til að stíga upp verður ein­hver annar að gera það. Það þýðir ekk­ert að sitja úti í horni og skamm­ast yfir því að launin hækki ekki. Þú verður að gera það sem þú getur og grípa til aðgerða. Þú breytir engu á meðan þú situr við eld­hús­borðið með sígar­ett­una og kaffi­boll­ann. En þú getur kannski breytt ein­hverju ef þú stendur upp og gerir eitt­hvað, jafn­vel þótt það sé bara að fara niður á Aust­ur­völl og standa þar með fólki.“

Áttu að fá íspinna fyrir framlagið

Sjálf hefur hún vakið athygli fyrir fram­göngu sína á síð­ustu vikum. „Ég samdi text­ann við Svei­attan fyrir ári síðan þegar mér mis­bauð fram­ganga fyr­ir­tæk­is­ins. Við vorum að auka hagnað undir miklu álagi, með nýjar vélar og ekki búið að breyta hús­næð­inu í sam­ræmi við það. Um tíma gætti pirr­ings en það stóðu sig allir vel og þegar það fór að róast grín­að­ist fólk með það hvort það fengi ekki eitt­hvað fyrir. Jú, það var ís í boði. Ég hélt kannski að það væri eitt­hvað gott en þá var það íspinni. Ég er eig­in­lega fegin því þegar ég fer að yrkja þetta og fæ kjarkinn til að syngja það þá felur það kannski í sér ein­hverja lít­illækun fyrir þá sem ganga fram með þessum hætti.“

„Það er að setja þetta þjóð­fé­leg á haus­inn en ekki það að litli mað­ur­inn fái aðeins fleiri fiska á diskinn.“

Og hún er engan vegin hætt. „Ég mun syngja meira þegar tæki­færi gefst. En ég vona svo inni­lega að það fari að kom­ast á samn­ingar og að fólk fari að hugsa í krónu­tölum en ekki pró­sentum. Ef ég hækka um 20 pró­sent þá fæ ég kannski 220 þús­und útborgað. Einhver sem er með tvær millj­ónir á mán­uði hækkar á sama tíma um útborguð launin mín. Það er engan vegin sann­gjarnt. Það er að setja þetta þjóð­fé­leg á haus­inn en ekki það að litli mað­ur­inn fái aðeins fleiri fiska á diskinn.“

Vanhæf ríkisstjórn

Bragi Páll var með erindi á Aust­ur­velli þar sem hann sagði rík­is­stjórn­ina van­hæfa. Hér að neðan má lesa ræðu hans í heild sinni:

„Góðir Íslend­ingar.

Ástæðan fyrir því að við erum mætt hérna í dag er að okkur er full­kom­lega mis­boðið. Ég ætla hér að telja upp það sem ég tel vera helstu ástæð­urnar fyrir því.

Okkur langar kannski til þess að trúa því að við höfum búið við jöfn kjör, en án þess að ég ætli að fara of langt út í þá sálma hversu hand­ó­nýtt kerfi hið kap­ít­al­íska feðra­veldi er, þá hafa kjörin verið allt annað en jöfn.

„Útgerð­irnar gætu aldrei starfað ef það væri ekki fyrir íslenskan almenn­ing. Íslenska sjó­menn og fólkið í fisk­vinnsl­unni.“

Íslenskar útgerðir mala gull. Eigendur þeirra fá gef­ins stærstu auð­lind þjóð­ar­innar, borga ekk­ert fyrir rent­una og fá að borga eins lítið í skatt og þeim dettur í hug. Útgerð­irnar halda að við getum ekki án þeirra verið. En það er akkúrat öfugt. Útgerð­irnar gætu aldrei starfað ef það væri ekki fyrir íslenskan almenn­ing. Íslenska sjó­menn og fólkið í fisk­vinnsl­unni. En í stað­inn fyrir að auð­lindin vinni í þágu þjóð­ar­innar þá er hún einka­eign örfárra mold­ríkra ein­stak­linga. Ég segi þjóð­nýtum þær. Fáum þennan pen­ing inn á okkar banka­reikn­ing. Stöðvum arðránið.

Íslensku bank­arnir skila met­hagn­aði ár eftir ár. Þeir ræna íslenskan almenn­ing með ofur­vöxtum og okur­lánum, allt í skjóli þess að þeir séu okkur ómissandi. En það er akkúrat öfugt. Bank­arnir geta ekki án okkar verið! Þeir eiga að vinna fyrir okkur en eru í stað­inn að vinna fyrir örfáa ofur­ríka eig­endur sína. Þetta er óþol­andi!

Íslenska ríkið er ekki til nema vegna fólks­ins í land­inu. Alþing­is­menn eiga að vera að þjóna okkur en eru í stað­inn að þjóna hags­munum fjár­magns­eig­enda. Rík­is­stjórnin heldur að við getum ekki án hennar verið. Að án þess­ara van­hæfu þjófa þá færi hér allt á hlið­ina. En það er akkúrat öfugt. Við réðum þetta fólk. Þau eiga að vinna fyrir okkur. En í stað­inn eru þau að vinna fyrir kvóta­eig­endur og frændur sína. Og það er þess­vegna sem við erum að reka þau.

„Nú er Bjarni Ben að reyna að laga fylgi flokks­ins og ímynd sína með því að plata fólk með ein­hverri Diet útgáfu af stjórn­ar­skránni sem var stolið af okkur.“

Nú er Bjarni Ben að reyna að laga fylgi flokks­ins og ímynd sína með því að plata fólk með ein­hverri diet útgáfu af stjórn­ar­skránni sem var stolið af okkur.

Sumir segja að nýja stjórn­ar­skráin hafi einmitt verið samin til þess að kné­setja Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Er það svo slæmt? Nas­ista­flokk­ur­inn var bann­aður í Þýska­landi eftir seinna stríð. Það heppn­að­ist ágæt­lega hjá þeim.

En Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, hags­muna­sam­tök fjár­magns­eig­enda, sá hópur sem ber stærsta ein­staka ábyrgð á hrun­inu 2008, er enn starf­andi. Enn mjög öfl­ugur. Enn í óða önn að einka­væða alla helstu almanna­þjón­ustu í hend­urnar á auð­mönnum. Gefa rík­asta fólki lands­ins meiri kvóta. Og þetta kýs stór hluti þjóð­ar­innar.

Lengi skildi ég ekki afhverju sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk alltaf fjórð­ung atkvæða í kosn­ingum, en núna sé ég það. Að sjálf­sögðu vill skyn­samt fólk koma sér í mjúk­inn hjá þeim sem öllu ráða. Fólk sleikir bláa sjálf­stæð­is­fálk­ann í ömur­legri und­ir­gefni og von um að nokkrir brauð­molar falli í munn þess þegar hann hristir fjaðr­irnar. Lygar­arnir ljúga því að þeir muni bjarga hér öllu með ábyrgri pen­inga­stjórn og frösum eins og frelsi ein­stak­lings­ins. Botn­laust kjaftæði.

„Auðæfi ganga í erfðir. Fátækt gengur í erfðir. Leið­rétt­ing Sig­mundar Davíðs var jafn ömur­legur brand­ari.“

Mestu auð­æfi Íslands eru á örfárra höndum. Aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar síð­ustu miss­eri sýna að þær hendur kæra sig ekk­ert um að þess­ari stað­reynd sé breytt. Auðæfi ganga í erfðir. Fátækt gengur í erfðir. Leið­rétt­ing Sig­mundar Davíðs var jafn ömur­legur brand­ari í kosn­inga­bar­átt­unni og hún er í fram­kvæmd. Við erum að fylgj­ast með auð­vald­inu gera allt sem það getur til þess að verja og auka vald sitt. Rústa tekju­litlum fjöl­skyldum með hækkun mat­ar­skatta. Skera sér­stakan sak­sókn­ara á háls. Gefa rík­asta fólk­inu í land­inu ávinn­ing­inn.

Þegar máln­ingin flagnar, þá skröpum við hana af. Þegar bleyjan lyktar, þá skiptum við um hana. Ég er ekki með lausnir eða svör við því hvað eigi að taka við, enda er það okkar allra að ákveða. Og er eitt­hvað meira spenn­andi en sam­fé­lag fólks að rífa niður stétt­skipt hreysið sem það fékk í vöggu­gjöf, til þess að byggja saman upp rétt­látt sam­fé­lag?

Brjótum upp þennan ömur­lega víta­hring. Sýnum heim­inum. Verum for­dæmið. Því þrátt fyrir fámenni og galla erum við mjög fram­sækin þjóð. Hættum að kóa með lyg­urum og þjófum. Stöndum upp og tökum okkur í hönd valdið sem rétti­lega er okkar.

„Stöndum upp og tökum okkur í hönd valdið sem rétti­lega er okkar.“

Því rík­is­stjórn þar sem Bjarni Ben, mað­ur­inn sem getur ekki borg­aði í stöðu­mæli án þess að setja fyr­ir­tæki á haus­inn, er fjár­mála­ráð­herra er van­hæf rík­is­stjórn.

Rík­is­stjórn þar sem Sig­mundur Davíð er for­sæt­is­ráð­herra, skammar þjóð­ina fyrir dóna­skap og sakar hana svo um að vera veru­leikafirrta, er van­hæf rík­is­stjórn.

Rík­is­stjórn þar sem Gunnar Bragi reynir að hætta með ESB eins og penna­vin er van­hæf rík­is­stjórn.

Rík­is­stjórn þar sem Vigdís Hauks­dóttir er for­maður fjár­laga­nefndar er van­hæf rík­is­stjórn.

Rík­is­stjórn sem starfar í þágu auð­valds­ins en ekki þjóð­ar­innar er van­hæf rík­is­stjórn.“

„Við erum rík þjóð“ 

Hér er svo ræða Sigríðar Bylgju: 

„Góðan dag­inn elsku vinir

Lóan er komin og grasið grænkar, sól skín í heiði og lundin á að vera létt, full af til­hlökkun fyrir sumr­inu og öllum þeim ævin­týrum sem það ber í skauti sér. Hvað erum við þá að gera hérna? Í alvöru, hvað erum við að gera?

Jú, við erum að mót­mæla. Mótmæla rík­is­stjórn Íslands sem við sjáum núna að komst til valda á fölskum for­sendum. Líkt og úlfar í sauða­gæru laum­ast þau um og bíta þar sem þau geta.

„Það hrann­ast óveð­urs­ský fyrir ofan höf­uðið á mér þegar ég heyri enn eina frétt­ina af verkum rík­is­stjórn­ar­innar sem toppa hvert annað í fárán­leika.“

Það er erfitt að tapa ekki gleð­inni þegar nán­ast viku­lega ber­ast fréttir af hörm­ungum rík­is­stjórn­ar­innar. Það hrann­ast óveð­urs­ský fyrir ofan höf­uðið á mér þegar ég heyri enn eina frétt­ina af verkum rík­is­stjórn­ar­innar sem toppa hvert annað í fárán­leika.

Það er auð­velt að hætta að hlusta, setja sig í frétta­bann og fylgj­ast ekki með því hvaða glapræði rík­is­stjórn­inni hefur dottið til hugar þann dag­inn. En það megum við alls ekki gera. 

Spilling, Mak­ríl­frum­varpið, launa­ó­jöfn­uður, sið­blinda, skortur á virð­ingu við þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur, brotin kosn­inga­lof­orð, heil­brigð­is­kerfið nið­ur­brotið, umhverf­is­mál, engin tengsl við sam­fé­lagið. Þetta eru nokkur af þeim atriðum sem fólk nefndi á fés­bók­ar­við­burði fyrir þessa sam­komu hér á Aust­ur­velli.

Við erum hér sam­an­komin af ólíkum ástæðum en saman styðjum við hvert annað og sýnum það hér í dag. Við erum nefn­in­lega öll á sama báti. Við erum öll Íslend­ingar sem viljum lifa hérna og hrær­ast og geta notið lands­ins gæða. Saman. Því við erum sam­fé­lag.

 „Það er rétt­lát reiði sem við finnum fyrir og við megum svo sann­ar­lega tjá hana.“

Orðræða. Við verðum að fylgj­ast með henni á gagn­rýn­inn hátt. Við verðum að passa okkur að gleypa ekki við þeim vill­andi ummælum sem for­menn rík­is­stjórn­ar­innar ropa út úr sér til að fá okkur til að gleyma eða dreifa hug­anum frá því sem miður er að fara í sam­fé­lag­inu okkar. Það er rétt­lát reiði sem við finnum fyrir og við megum svo sann­ar­lega tjá hana. Sam­fé­lagið okkar logar í illindum og deilum sem rík­is­stjórnin virð­ist ekki hafa nokkurn áhuga á að hlusta á eða leysa úr. Við lifum í sam­fé­lagi sem er veikt og þarf að hlúa að- í raun­inni umturna.

Er það ósann­gjörn krafa að staðið sé við gefin lof­orð og að farið sé að lögum?

Er það ósann­gjörn krafa að fólk fái greidd lág­marks­laun sem duga fyrir fram­færslu?

Er það ósann­gjörn krafa að þjóðin njóti arðs af auð­lindum sínum?

Við erum rík þjóð. Hér ætti hver ein­asti Íslend­ingur að geta lifað í vellyst­ingum. En sam­fé­lagið okkar er órétt­látt, mis­skipt og okkur er ekki tryggður arður af auð­lind­unum okkar.

Nú þegar við stöndum hér saman hafa 39 þús­und manns skrifað undir áskorun til for­seta Íslands um að vísa hverjum þeim lögum í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem Alþingi sam­þykkir þar sem fisk­veiði­auð­lind­inni okkar er ráð­stafað til lengri tíma en eins árs, á meðan ekk­ert ákvæði um þjóð­ar­eign á auð­lindum hefur verið sett í stjórn­ar­skrá og þjóð­inni ekki verið tryggt fullt gjald fyrir afnot þeirra.

„Hugsið ykkur. Við erum að berj­ast við okkar eigin rík­is­stjórn um ráð­stöfun nátt­úru­auð­linda þjóð­ar­innar!“

Þið hafið bara engan rétt til að taka auð­lind­irnar okkar og gefa þær til nokk­urra útvaldra aðila!

Hugsið ykkur. Við erum að berj­ast við okkar eigin rík­is­stjórn um ráð­stöfun nátt­úru­auð­linda þjóð­ar­innar!

Í dag, líkt og síð­ustu tvær vikur, hefur staðið yfir umræða á Alþingi um ramma­á­ætlun, áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða. Rík­is­stjórnin er til­búin að brjóta það fag­lega ferli sem sam­þykkt var með lögum um ramma­á­ætlun til þess að styðja meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar og færa kosti, nátt­úruperlur okkar Íslend­inga, í nýt­ing­ar­flokk, þvert á fag­legt mat og án umfjöll­unar.

Sama hvar fólk er í flokk sett eða ef það stendur utan við stjórn­mála­flokka, þá getum við þó verið sam­mála um það að Alþingi eigi að virða sett lög. Það eru mjög brýn mál sem þarf að takast á við í sam­fé­lag­inu okkar en tím­anum er sóað í óþarfa þras vegna þess að meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar ætlar að fá sínu fram­gengt með frekju og yfir­gangi.

Nei nú þurfum við að standa saman öll sem eitt.

„Mig langar að minna á fólkið okkar. Það erum við. Fólkið. Amma og afi sem lifa á lús­ar­launum, líf­eyr­is­greiðslum, sem búið er að skerða marg­sinnis.“

Mig langar að minna á fólkið okkar. Það erum við. Fólkið. Amma og afi sem lifa á lús­ar­launum, líf­eyr­is­greiðslum, sem búið er að skerða marg­sinnis. For­eldr­arnir sem eru að svigna undan afborg­unum hús­næð­is­lána sem bara hækka og hækka, unga fólkið sem berst á leigu­mark­aði eða skoðar hvort WOW, Icelandair eða Norræna bjóði hag­stæð­ust kjörin úr landi. Laun­þegar sem standa í kjara­bar­áttu, þeirri und­ar­leg­ustu sem farið hefur fram hér á landi vegna ummæla for­sæt­is­ráð­herra.

Og á meðan við stöndum hér, fólkið, sitja ráða­menn og skilja ekk­ert í því hversu veru­leikafirrt við erum. Ef að veru­leik­inn okkar rímar ekki við veru­leika þeirra, þá er lík­lega far­sæl­ast að þau fari frá áður en þjóðin ber meiri skaða af þeirra verkum sem hafa afleið­ingar í okkar raun­veru­leika.

Það er nú ein­hvern­vegin þannig, eins og hún Stella í orlofi vin­kona allra Íslend­inga orðar það ,,að vanda­málin eru til að takast á við þau“. Rík­is­stjórnin nýtur ekki trausts til þess að vinna okkur út úr þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir. Þvert á móti.

Ef fólk ekki stendur sig í vinn­unni sinni, þá er því sagt upp. Ég vil líta svo á að þessi fundur sé upp­sagn­ar­bréf þjóð­ar­innar til rík­is­stjórn­ar­innar.

„Skilið lyklunum, við viljum ykkur frá.“

Er það ósann­gjörn krafa að þegar rík­is­stjórnin nýtur ekki traust þjóð­ar­innar, að þá segi hún af sér?

Ykkar þjón­ustu er ekki lengur óskað. Það er deg­inum ljós­ara að þessi rík­is­stjórn ætlar sér að byggja upp sam­fé­lag sem er mjög gott fyrir suma, en miður slæmt fyrir okkur flest hin. Það er ekki sann­gjarnt og þess­vegna vísum við ykkur á dyr.

Skilið lyklunum, við viljum ykkur frá.

Takk fyrir“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár