Kallað eftir afsökunarbeiðni frá Sigmundi vegna stuðnings Íslands við Íraksstríðið

Svandís Svavars­dóttir bendir á að Tony Blair hafi beðist afsökunar á rangri upplýsinga­gjöf og spyr Sigmund hvort hann hyggist „gangast fyrir sambærilegri afsökunar­beiðni stjórn­valda til Íslendinga sökum þess að sömu blekkingar voru nýttar til að skipa íslenska ríkinu í hóp stuðnings­ríkja árásar­stríðsins gegn Írak“.

Svandís Svavars­dóttir, þing­flokks­formaður Vinstri grænna, hefur lagt fram fyrir­spurn til skriflegs svars þar sem hún spyr Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra hvort hann hyggist biðja landsmenn afsökunar á að íslenska ríkinu hafi verið skipað í hóp stuðnings­ríkja innrásar­stríðsins gegn Írak árið 2003.

Er vísað til þess í fyrir­spurninni að Tony Blair, fyrr­verandi forsætis­ráðherra Bretlands, baðst nýverið afsökunar á rangri upplýsinga­gjöf í aðdrag­anda stríðsins.

Spurning Svandísar til Sigmundar hljóðar svo: „Mun ráðherra, í ljósi þess að Tony Blair, fyrr­verandi forsætisráðhera Bretlands, hefur beðist afsökunar á rangri upplýsinga­gjöf til bresks almennings í aðdrag­anda Íraks­stríðsins sem hófst árið 2003, gangast fyrir sambærilegri afsökunar­beiðni stjórn­valda til Íslendinga sökum þess að sömu blekkingar voru nýttar til að skipa íslenska ríkinu í hóp stuðnings­ríkja árásar­stríðsins gegn Írak?“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár