Ísraelskur hermaður hrinti Palestínumanni í hjólastól

Atvikið náð­ist á mynd­band sem farið hefur víða. Ísraelsk yfir­völd segja málið til rann­sóknar.

Ísraelskur hermaður hrinti Palestínumanni í hjólastól
Börn mæta her­mönnum Palest­ínsk börn mæta ísra­elskum her­mönnum með alvæpni. Árásum á báða bóga hefur farið fjölg­andi síð­ustu mán­uði.

Myndband þar sem sjá má ísra­elskan landamæra­vörð hrinda hreyfi­höml­uðum palest­ínskum manni í hjóla­stól í göt­una hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum. Atvikið átti sér stað við landamæra­stöð á hernumdu svæð­unum í borg­inni Hebron fyrr í mán­uð­inum, stuttu eftir að ísra­elskir her­menn höfðu skotið tutt­ugu ára gamla palest­ínska konu, sem sökuð var um að hafa reynt að stinga ísra­elskan lög­reglu­mann. Sjón­ar­vottar segja að mað­ur­inn í hjóla­stólnum hafi ætlað að nálg­ast kon­una í þeim til­gangi að hjúkra henni. Samkvæmt ísra­leska fjöl­miðl­inum Haaretz er ekk­ert vitað um ástand manns­ins. Yfirvöld í Ísrael hafa gefið það út að þau hafi atvikið nú til rann­sóknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár