Íbúðir Tjarnarverks veðsettar fyrir rúmlega þriðjungi af fasteignamati

Leigutakar Tjarnar­verks í Reykja­nesbæ ósáttir við hækkun á leigu sem nemur allt að 40 prósentum. 500 milljónir frá Virðingu notaðar til að greiða fyrir íbúðirnar. Íbúða­lánasjóður, sem er opinber fyrirtæki, seldi en verðið á íbúðunum er ekki tekið fram í kaup­samningi.

Óánægja með hækkun leiguverðs
Óánægja með hækkun leigu­verðs Íbúar í Reykja­nesbæ eru ósáttir við að fyr­ir­tækið Tjarn­ar­verk hafi hækkað leigu­verð hjá þeim eftir að hafa keypt 87 íbúðir í bænum. íbúð­irnar eru ein­ungis veð­settar fyrir rúm­lega 1/3 hluta af fast­eigna­mati en leigu­hækk­unin sem Tjarn­ar­verk hefur farið fram á nemur allt að 40 pró­sentum.

Veðsetning 87 íbúða á Suðurnesjum sem Íbúða­lánasjóður seldi til eignarhalds­félagsins Tjarnar­verks ehf. nú í vor nemur einungis 500 milljónum króna þrátt fyrir að heildar­verðmæti eignanna samkvæmt fasteigna­mati sé rúmlega 1.422 milljónir króna. Þetta kemur fram í veðbanda­yfirliti íbúðanna sem um ræðir en þær hafa verið til umræðu í fjöl­miðlum vegna þess að Tjarnar­verk ákvað að hækka leiguna hjá leigu­tökunum umtals­vert eftir að fyrir­tækið keypti eignirnar. Um er að ræða tvö veðskulda­bréf frá Virðingu sem hvort um sig er upp á 250 milljónir króna. Virðing fjár­magnaði  því kaup Tjarnar­verks á íbúðunum, að minnsta kosti að hluta. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tjarnarverk

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár