Hungruð í landi allsnægtanna

Á sama tíma og miklu magni af mat er hent í ruslið eru mat­ar­lausar fjöl­skyldur að leita leiða til að lifa af mán­uð­inn. Benjamin Julian sótti mat sem átti að henda og gaf fátækum.

Hungruð í landi allsnægtanna
Fátækt á Íslandi Hungur hrjáir hluta þjóð­ar­innar. Myndin er svið­sett. Mynd: Kristinn Magnússon

Á horni Berg­staða­strætis og Spít­ala­stígs er snotur kjall­ara­búð. Hún heitir Kjöt & fiskur og hefur kom­ist í fréttir nýverið, því þar er matur gef­inn á síð­asta sölu­degi frekar en að honum sé hent.

„Okkur fannst bara svo leið­in­legt að henda þessu,“ sagði Pavel Ermol­inski, lands­liðs­maður í körfu­bolta og eig­andi búð­ar­innar, þegar ég leit við um dag­inn. „Við hugs­uðum bara að við græðum ekk­ert á að henda þessu, töpum engu á að gefa ein­hverjum þetta.“ Gjafa­karfan var tóm þann dag­inn, en oft má finna smá­ræði í henni. „Stundum eru þetta kannski tvær, þrjár mjólkur­fernur og nokkur rúg­brauð. Grænmeti, þegar það er farið að líta illa út,“ segir Pavel. „Fyrir okkur eru þetta ekki það umfangs­mikið, ekki það mik­ill pen­ingur að þetta skipti okkur eitt­hvað svaka­lega miklu máli.“

Gefur mat í búðinni
Gefur mat í búð­inni Pavel Ermol­inski, körfuknatt­leiks­maður og eig­andi búð­ar­innar Kjöt & fiskur, gefur útrunn­inn mat í stað þess að láta eyða honum. Versl­anir koma almennt í veg fyrir að hægt sé að nýta útrunn­inn mat.

Matur gefinn á Facebook

Ég var í leið­angri til að kanna matar­sóun og fátækt á Íslandi. Hér, líkt og víða í heim­inum, híma ofgnótt og skortur dyr við dyr. Meðan geypi­legu magni matar er fleygt í ruslið eða leyft að rotna er fólk hér sem ekki getur brauð­fætt sig og fjöl­skyldur sínar. Samkvæmt rann­sókn Capacent árið 2012 fékk tuttug­asti hver Íslend­ingur eða fjöl­skylda hans ekki nóg að borða ein­hvern tím­ann und­an­gengið ár. Hjá einu pró­senti, yfir þrjú­þús­und manns, kom það oft fyrir. Fjöl­skyldu­hjálp og Mæðra­styrks­nefnd veita þurf­andi fólki aðstoð, en hún dugar ekki alltaf. Til að bregð­ast við því hafa sprottið upp hópar á Facebook þar sem fólk getur boðið mat gef­ins og aug­lýst eftir hjálp, oft með átak­an­legum lýs­ingum á sulti og seyru.
Mig lang­aði að vita hvað drifi fólk í „stórasta landi í heimi“, vel­ferð­ar­rík­inu Íslandi, í slíkan skort. Sjálfur átti ég ógrynni matar sem hafði verið hent í stór­mörk­uðum. Hann var ekki útrunn­inn og hefði eflaust kostað tugi þús­unda keyptur fullu verði. Í stað­inn var hann settur í ruslið, senni­lega til að rýma til fyrir nýjum vörum. Hann var af öllu tagi: súkkulaði, brauð, rúg­brauð, flat­kökur, kakó, nammi, hnetur, snakk, ostur, pylsur, smjör­líki og ofgnótt af granóla. Ég deildi mynd af hluta mat­ar­ins í einum Facebook-hópanna og barst umsvifa­laust beiðni frá konu í per­sónu­legum skila­boðum. Á meðan ég svar­aði bár­ust fjórar beiðnir til við­bótar. Konan kom að sækja mat­inn um kvöldið og féllst á að spjalla um aðstöðu sína undir dul­nefni.

„Ég komst í bíó með börn­unum rétt fyrir jólin. Kirkjan gaf okkur miða.“

Einstæð móðir sem þorir ekki að biðja um hjálp

Árdís er ein­stæð móðir, en eitt barna hennar neytir mik­illa fíkni­efna og er tíðum skuldugt. Hún er menntuð og hafði gott starf, en álagið sem fylgdi neyslu barns­ins varð henni um megn. „Ég end­aði í tauga­á­falli og var send í veik­inda­leyfi. Það var fram­lengt og fram­lengt því vand­inn var enn til staðar.“ Að lokum mat læknir hana óvinnu­færa og sótti um örorku­bætur. „Þetta er búin að vera rosa­lega mikil breyt­ing,“ segir Árdís. „Það er talað um að öryrkjar og ein­stæðar mæður hafi það svo gott. Það er bara bullshit. Ég er búin að vera báðum megin við borðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hungruð í landi allsnægtanna

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár