Hræringar á fjölmiðlamarkaði

Sigmar Guð­munds­son fer í útvarpið og stýrir morg­un­þætti. Björn Þor­láks­son fer yfir á Hring­braut.

Hræringar á fjölmiðlamarkaði
Fer í útvarpið Sigmar Guð­munds­son mun stýra morg­un­þætti á Rás 2. Mynd: RÚV / Skjáskot

Sigmar Guð­munds­son mun sjá um nýjan morg­un­þátt á Rás 2 ásamt Guðrúnu Sóleyju Gests­dóttur. Sigmar var rit­stjóri Kast­ljóss­ins um ára­bil en lét nýverið af störfum fyrir Kast­ljósið. Þóra Arn­órs­dóttir var ráðin sem rit­stjóri og Baldvin Þór Bergsson feng­inn inn í stað Sigmars.

Tilkynnt var um fleiri breyt­ingar á fjöl­miðla­mark­aði í dag. Björn Þor­láks­son var feng­inn til liðs við Hring­braut þar sem hann mun skrifa pistla og frétta­skýr­ingar á vef­inn fyrst um sinn. Björn er þaul­vanur frétta­maður sem vann um ára­bil á RÚV en hefur síð­ustu ár stýrt Akureyri viku­blað. Útáfu blaðs­ins var hætt í kjöl­far þess að Björn Ingi Hrafns­son keypti útgáfu­fé­lagið Fótspor sem gaf það út.

Greint var frá ráðn­ing­unni á vef Hring­brautar í dag. Þar var haft eftir Birni að það hafi verið áskorun að halda úti gagn­rýnum stað­ar­miðli í fjögur ár, en nú sé tíma­bært að söðla um. „Ég mun hafa almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi í störfum mínum hjá Hring­braut eins og blaða­mönnum ber að gera. Nú eru liðin sex ár síðan ég vann síð­ast við ljós­vak­ann og ég hlakka til að snúa aftur á nýjan vett­vang.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár