Hópurinn sem grunaður er um að hafa banað Arnari leiddur fyrir dómara

Þau sem grunuð eru um að hafa valdið dauða Arnars Jóns­sonar Aspar voru leidd fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­víkur þar sem gæslu­varð­hald var sam­þykkt.

Hópurinn sem grunaður er um að hafa banað Arnari leiddur fyrir dómara

Vopnaðir sér­sveit­ar­menn voru við­staddir þegar Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu leiddi menn úr hópi sem réðst á Arnar Jónsson Aspar, með þeim afleið­ingum að hann lést í gær­kvöldi, fyrir dóm­ara í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Hér­aðs­dómur féllst á gæslu­varð­hald yfir fimm karl­mönnum og einni konu. Meðal hinna hand­teknu eru Jón Trausti Lúth­ers­son, Sveinn Gestur Tryggva­son, Marcin Wieslaw Nabakowski, Rafal Marek Nabakowski og Ásta Hrönn Guð­munds­dóttir.

Arnar var heima hjá sér að Æsu­stöðum í Mos­fells­dal þegar fólkið bank­aði upp á. Kona Arnars var á heim­il­inu, sem og tíu daga gam­alt stúlku­barn hans.

Konan leidd fyrir dóm­araÍ hópnum eru fimm karl­menn og ein kona.

Samkvæmt umfjöllun Mbl.is reyndi kona Arnars, Heiðdís Helga Aðal­steins­dóttir, að biðla til árás­armanna um að hætta, þar sem hann ætti tíu daga gamla dóttur og fjöl­skyldu. Afi Heið­dísar var í mat hjá þeim þegar hóp­inn bar að. Hann horfði upp á árás­ina og fékk hjarta­á­fall. Hann liggur nú á hjarta­deild Land­spít­al­ans. 

Fram hefur komið að á meðal hinna hand­teknu séu Jón Trausti Lúth­ers­son, for­sprakki bif­hjóla­sam­tak­anna Outlaws, og bræð­urnir Marc­in Wieslaw Naba­kowski og Rafal Ma­rek Naba­kowski, sem hlutu dóm í febr­úar fyr­ir skotárás í Breið­holti. Þeir áfrýj­uðu og hafa enn ekki hafið afplánun.

Fólkið, fimm karl­menn og ein kona, verða leidd eitt af öðru fyrir dóm­ara.

Áður dæmdur fyrir ofbeldiJón Trausti Lúth­ers­son leiddur aftur inn í bif­reið lög­regl­unnar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár