Hópur sálfræðinga og geðlækna segir Trump óhæfan í embætti

Í opnu bréfi lýsir hópur sérfræðinga þungum áhyggjum af andlegu ástandi Donald Trumps. Geð hans sé svo óstöðugt að hann ætti hreinlega ekki að gegna valda­mesta embætti heims.

Í opnu bréfi sem 33 bandarískir geðlæknar, sálfræðingar og félags­ráðgjafar skrifuðu er varað við því að andlegt ástand Donalds Trump, forseta landsins, sé þannig að hann sé „ófær að gegna embætti forseta á öruggan máta“. Sögðu sérfræðingarnir að hegðun Trumps og orða­notkun „bendi til þess að hann sé ófær um að finna til samkenndar með fólki.“

Í bréfinu, sem séfræðingarnir sendu til New York Times, kemur einnig fram að sú hegðun forsetans að „bjaga raun­veruleikann“ til þess að hann komi heim og saman við „goðsagna­kenndar hugmyndir hans um eigin mikilfeng­leik“, auk tilhneigingar til þess að ráðast á þá sem andmæla honum með stað­reyndum, sé líkleg til þess að magnast upp eftir að hann tekur við völdum.

Ástæðan fyrir því að sérfræðingarnir hafa ekki tjáð sig fyrr er sögð vera hluti af siða­reglum samtaka geðlækna í Banda­ríkjunum, hin svokallaða Goldwater-regla. Þar er hvatt til þess að geðlæknar gefi ekki faglegt álit sitt á opinberum einstaklingi sem þeir hafa ekki rannsakað persónu­lega.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár