Hin flótta­­manna­krísan

Fjórðungur íbúa í Mið-Afríku­lýðveldinu er á flótta. Líklegt er að ástandið muni frekar versna en batna.

Einn af hverjum fjórum íbúum Mið-Afríku­lýðveldisins hefur þurft að flýja heimili sitt undan­farin misseri eftir að átök á milli kristinna manna og múslima hörðnuðu í landinu. Samkvæmt frétta­flutningi BBC af borgara­stríðinu í Mið-Afríku­lýðveldinu eru nú ríflega milljón manns á vergangi. Um 2,2 milljónir manna eiga í erfið­leikum með að hafa í sig og á og meirihluti íbúa höfuð­borgarinnar Bangui hafast nú við í flóttamanna­búðum við flugvöll borgarinnar. Afríska flóttamanna­krísan er í fjölda talið aðeins minni en sú sýrlenska en til saman­burðar er um helmingur Sýrlendinga á vergangi, eða um fjórar milljónir manna. 

Ástæðuna má líkt og fyrr segir rekja til trúar­bragða, en um 80 prósent þjóðarinnar er kristinnar trúar en um 15 prósent múslimar. Uppreisnar­samtökin Séléka, sem eru nær eingöngu skipuð múslimum, gerðu valdarán í mars árið 2013 en valdatíð hópsins varð skammlíf og leiðtoga þeirra, Michel Djotodia, var steypt af stóli í upphafi 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár