Hildur Lilliendahl íhugar að kæra meinta hótun á Facebook

Hildur Lilliendahl segir mynd­birtingu á fjölmennri Facebook síðu ógnvekjandi og íhugar að kæra. Maðurinn segir að um persónu­legan brandara hafi verið að ræða.

Íhugar að kæra
Íhugar að kæra Hildur Lilli­endahl íhugar að kæra ummæli og mynd­birt­ingu í Facebook-hópnum „Brask og brall..“. Mynd: Páll Stefánsson

Hildur Lilliendahl segist vera að íhuga að leggja fram kæru gegn manni sem hún telur hafa hótað sér inni í hópi á Facebook. „Það þarf ekki mjög góðan vilja til að lesa út úr þessu líkams­meiðingar­hótun,“ segir Hildur í samtali við Stundina. Hún segir ummælin mjög ógnvekjandi og að henni hafi verið afar brugðið þegar hún sá þau í morgun. Um er að ræða ummæli sem látin voru falla í hópnum „Brask og brall..“ á Facebook en hátt í sextíu þúsund manns eru meðlimir í hópnum. Maðurinn sagðist vera með magahníf og útprentaða mynd af Hildi Lilliendahl til sölu, ásamt hlaupa­skóm og fugla­berjum. Neðar í færslunni birti hann betri mynd af maga­hnífnum svokallaða sem hann var búinn að koma fyrir ofan á myndinni af Hildi. 

Persónulegur brandari

Skjáskot af ummælunum
Skjáskot af ummælunum

Hildur deildi skjáskoti af ummælunum á Facebook síðu sinni í morgun. Fjölmargir hafa hvatt hana til að fara með málið til lögreglu, þar á meðal 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár