Mynd: Kristinn Magnússon

Heimkoman

Gleðin var alls­ráð­andi á Kefla­vík­ur­flug­velli þegar tvær albanskar fjöl­skyldur sneru aftur til Íslands í kvöld. Þeim hafði áður verið vísað burt frá Íslandi með tvo lang­veika drengi, en báðir hafa þeir verið veikir síðan þeir fóru út og hvor­ugur hefur fengið lækn­is­að­stoð síðan. Nú getur Klea litla haldið upp á afmælið sitt á Íslandi um helg­ina. Fjöl­skyld­urnar þakka stuðn­ing­inn. Stundin fygld­ist með heim­kom­unni.

Klea litla Pepaj er bara fimm ára og skildi ekki af hverju allt full­orðna fólkið grét í komusalnum eftir að fjöl­skylda hennar lenti á Kefla­vík­ur­flug­velli í kvöld. Hún hélt að það hefði eitt­hvað komið fyrir og fór að gráta. Alveg eins og þegar lög­reglan sótti fjöl­skyldu hennar af heim­il­inu í Barma­hlíð til að flytja þau frá Íslandi bað hún mömmu sína um að gráta ekki. Seinna skild­ist henni að nú væri grátið af gleði og hún róað­ist aftur niður.

Gleðin var ann­ars alls­ráð­andi á Kefla­vík­ur­flug­velli þegar tvær albanskar fjöl­skyldur sneru aftur til Íslands í kvöld. Fjöl­skyld­urnar höfðu áður verið sendar burt í skjóli nætur eftir að þeim var neitað um hæli á Íslandi, en í báðum fjöl­skyld­unum voru lang­veik börn sem höfðu ekki aðgang að lífs­nauð­syn­legri lækn­is­þjón­ustu í heima­land­inu, Kevin sem er með ólækn­andi slím­s­eigju­sjúk­dóm og Arjan sem er með hjarta­galla.

Stundin fylgd­ist með brott­flutn­ingi þeirra 10. des­em­ber. Mynd af litla drengnum Kevin, sem stóð í dyra­gætt­inni heima hjá sér og starði út í nótt­ina, myrkrið og kuld­ann, og beið eftir því að vera sóttur af lög­regl­unni, vakti mikla athygli. 

Í kjöl­far brott­flutn­ings­ins var ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar um að senda fjöl­skyldur þeirra Kastriot og Xhuliu Pepoj og Pëllumb Lalaj Ndoka og Jetmirë Prekaj, mót­mælt harð­lega, ekki aðeins af almenn­ingi heldur einnig af læknum sem sinna drengj­unum eða sam­bæri­legum til­fellum, ekki síst fyrir þær sakir að veita fjöl­skyld­unum ekki dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum. Málinu lyktaði síðan nokkrum dögum síðar þegar alls­herj­ar­nefnd ákvað að veita báðum fjöl­skyld­unum rík­is­borg­ara­rétt og bjóða þær vel­komnar til lands­ins. Umboðs­maður Alþingis hefur hins vegar óskað eftir upp­lýs­ingum frá Útlend­inga­stofnun um máls­með­ferð og rann­sókn umsókna um svokölluð mann­úð­ar­leyfi af heil­brigð­is­á­stæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár