Hagfræðistofnun telur að „höftin muni áfram um alllanga framtíð torvelda viðskipti með íslenskar krónur“

Frumvarp um losun fjár­magns­hafta gengur of skammt að mati Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands.

Hagfræðistofnun telur að „höftin muni áfram um alllanga framtíð torvelda viðskipti með íslenskar krónur“

Frumvarp fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um losun fjár­magns­hafta gengur of skammt og útlit er fyrir að áfram verði til staðar höft um all­langa fram­tíð sem tor­veldi við­skipti með íslenskar krónur. Þetta er álit Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands sem sett er fram í umsögn um frum­varpið. 

Stofn­unin bendir á að frum­varpið byggi á því að allar fjármagns­hreyf­ingar séu óheim­ilar en síðan séu taldar upp und­an­tekn­ingar. „Sérreglur sem ráðast af til­efni gjald­eyr­is­við­skipta, þjóðerni þeirra sem eiga við­skiptin eða félags­legri stöðu eru þung­lama­legar og hamla gegn skil­virkni í hag­kerf­inu. Ekki má gleyma því að óheft milli­landa­við­skipti eru miklu mik­il­væg­ari fyrir smáþjóðir en þær sem stærri eru. Ef ætl­unin er að draga úr hættu á skyndi­legum geng­is­hreyf­ingum má gera það með reglum sem gilda fyrir alla - til dæmis tímabundnum útgöngu­skatti. Óvíst er þó að ástæða sé til þess að setja slíkar reglur núna,“ segir í umsögn­inni.

Þá er bent á að sam­kvæmt grein­ar­gerð frum­varps­ins hafi verið afgreiddar ríf­lega eitt þús­und und­an­þágu­beiðnir frá gjald­eyr­is­eft­ir­lit­inu á liðnu ári. „Lágmarks­af­greiðslutími er „almennt“ átta vikur. Gert er ráð fyrir að und­anþágubeiðnum frá lögum um gjald­eyr­ismál fækki um 50-65% með frum­varp­inu og að kostn­aður við þennan þátt í rekstri bank­ans ,,get[i] farið lækk­andi á næstu árum“. Ráða má af þessum orðum að höftin muni áfram um all­langa framtíð tor­velda við­skipti með íslenskar krónur.“

Frumvarp Bjarna Bene­dikts­sonar um losun fjár­magns­hafta var lagt fram 16. ágúst síð­ast­lið­inn og kynnt á frétta­manna­fundi í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu sama dag. Um er að ræða eitt stærsta mál rík­is­stjórn­ar­innar og eina af ástæðum þess að for­ystu­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins vildu ekki að gengið yrði til þing­kosn­inga fyrr en í haust þrátt fyrir þann óróa sem skap­að­ist í kjöl­far Panama-hneyksl­is­ins síð­asta vor.

Umsögn Hagfræðistofnunar í heild:

Umsögn Hag­fræði­stofn­unar um frum­varpið hefur ekki birst á Alþing­isvefnum en hana má lesa í heild hér að neðan:

Eftir fall bank­anna haustið 2008 voru sett höft á streymi gjald­eyris úr landi. Höftin hafa nú varað í tæp 8 ár, miklu lengur en ráðgert var í upp­hafi og miklu lengur en í löndum sem hafa á nýliðnum árum sett höft á útstreymi gjald­eyris af sama til­efni og Íslend­ingar. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að Alþjóðagjald­eyr­is­sjóður­inn leggi mikla áherslu á var­færni við losun hafta. Það kann að vera rétt, en lengst af hefur sjóður­inn talað fyrir frjálsum við­skiptum með gjald­eyri. Þannig sagði Poul Thomsen hag­fræð­ingur, sem stýrði sam­skiptum sjóðsins við Ísland, á fundi með íslenskum háskólamönnum í Safnahúsinu 18. des­em­ber 2008, að hann gerði ekki ráð fyrir að höftin stæðu lengur en hálft ár. Ekki hefði þýðingu að draga þau meira á lang­inn, því að á þeim tíma mundu menn finna leiðir fram­hjá þeim. Einnig er rétt að vekja athygli á því, að stefnu­breyt­ing varð í fram­kvæmd haft­anna haustið 2009, eftir að nýr seðla­banka­stjóri tók til starfa. Um það leyti voru höftin að miklu leyti óvirk. Þeir sem áhuga höfðu á að flytja gjald­eyri milli landa höfðu lært að snið­ganga þau. Litlu mun­aði á opin­beru gengi krónunnar og óopin­beru gengi hennar. Allt stefndi í að örlög hafta yrðu svipuð hér á landi og ann­ars staðar þar sem þau hafa verið sett af svip­uðu til­efni á nýliðnum árum. Þau hefðu verið afnumin án þess að margir tækju eftir því - og án þess að þess sæj­ust veru­leg merki á mörkuðum. Rök má líka leiða að því að höft á við­skipti með gjald­eyri hafi verið óþörf sum­arið 2009. Þá ríkti ekki lengur örvænt­ing á íslenskum mark­aði. Útlend­ingar gátu flutt fé sitt úr landi ef þeir kærðu sig um það, en fæstir gerðu það. Frá því að höftin voru hert, haustið 2009, hafa útlend­ingar sem eiga fé á Íslandi fengið mörg færi á að flytja fé sitt héðan í upp­boðum, en þátttaka í þeim hefur iðu­lega verið minni en forráðamenn seðla­bank­ans hafa von­ast til. Nýlega reyndi seðla­bank­inn að fá erlenda eig­endur inn­lendra verð­bréfa til þess að selja krónueign sína á til­teknu gengi, en útlend­ing­arnir höfðu minni áhuga á við­skipt­unum en bank­inn bjóst við. Þeir töldu gengi krónunnar í útboð­inu of lágt. Með öðrum orðum höfðu útlend­ing­arnir meiri trú á krónunni en bank­inn. Erfitt er að sjá að krónueign þeirra skapi mikla hættu fyrir krónuna.

Höft á gjald­eyr­is­við­skipti geta valdið litlu landi stórtjóni. Lífeyr­is­sjóðir þurfa til dæmis að eiga stóran hlut af eignum sínum erlendis ef vel á að vera. Það dregur úr áhættu sjóðfélaga og vænt ávöxtun að gef­inni áhættu vex. Þvinguð eign í íslenskum verð­bréfum skapar hættu á að bólur verði til á inn­lendum mark­aði. Þegar bank­arnir hrundu, haustið 2008, dró erlend verð­bréfaeign lífeyr­is­sjóða úr tapi þeirra. Þegar eigna­verð hrapar næst hér á landi, þegar bakslag verður í hag­kerf­inu, verður erlend verð­bréfaeign ekki sami bak­hjarl og 2008. Þá hafa höftin leitt til óþæg­inda í dag­legu lífi fólks, sem ekki er ríkara en gengur og ger­ist. Þar sem nauð­syn­legt hefur þótt að stoppa í allar glufur haft­anna hefur ,,venju­legt fólk“ átt erfitt með að flytj­ast úr landi, dæmi er um að arfur hafi ekki feng­ist fluttur til Íslend­inga í útlöndum, og útlend­ingar sem hér starfa um tíma hafa ekki getað greitt vexti og afborg­anir af fast­eignalánum í heima­landi sínu. Á frjálsum mark­aði ræðst gengi gjald­miðla ekki síst af almennri trú á hag­stjórn landa sem gefa gjald­miðl­ana út. Fjármagnshöft koma í veg fyrir að gengi krónunnar sé nýtilegur mæli­kvarði á gæði hag­stjórnar hér á landi. Enn er ótalið að höftin og fram­ganga yfir­valda gagn­vart erlendum fjárfestum skaða orð­spor Íslend­inga í öðrum löndum.

Í upp­hafi frum­varps­ins segir að allar fjármagns­hreyf­ingar séu óheim­ilar - síðan eru taldar und­an­tekn­ingar. Sérreglur sem ráðast af til­efni gjald­eyr­is­við­skipta, þjóðerni þeirra sem eiga við­skiptin eða félags­legri stöðu eru þung­lama­legar og hamla gegn skil­virkni í hag­kerf­inu. Ekki má gleyma því að óheft milli­landa­við­skipti eru miklu mik­il­væg­ari fyrir smáþjóðir en þær sem stærri eru. Ef ætl­unin er að draga úr hættu á skyndi­legum geng­is­hreyf­ingum má gera það með reglum sem gilda fyrir alla - til dæmis tímabundnum útgöngu­skatti. Óvíst er þó að ástæða sé til þess að setja slíkar reglur núna.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að ríflega eitt þúsund und­anþágubeiðnir voru afgreiddar frá gjald­eyr­is­eft­ir­lit­inu á liðnu ári, en ekki kemur fram hvaða afgreiðslu beiðn­irnar hlutu. Lágmarks­af­greiðslutími er ,,almennt“ átta vikur. Gert er ráð fyrir að und­anþágubeiðnum frá lögum um gjald­eyr­ismál fækki um 50-65% með frum­varp­inu og að kostn­aður við þennan þátt í rekstri bank­ans ,,get[i] farið lækk­andi á næstu árum“. Ráða má af þessum orðum að höftin muni áfram um all­langa framtíð tor­velda við­skipti með íslenskar krónur.

Aðstæður eru alltaf að ein­hverju leyti sérstakar í hverju landi. Oft er til dæmis bent á að Ísland sé mjög lítið hag­kerfi. En þótt Norðmenn og Svíar séu miklu fleiri en Íslend­ingar eru þetta allt örþjóðir í alþjóðlegu sam­hengi. Við­skipti með norskar og sænskar krónur eru frjáls. Erfitt er að sjá rök fyrir því að setja strang­ari reglur um við­skipti með íslenskar krónur en tíðkast um gjald­miðla grannríkja.

Að dómi Hag­fræði­stofn­unar er löngu tímabært að afnema höft á við­skipti með íslenskar krónur. Frum­varpið gengur ekki nógu langt í þá átt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár