Hægrisinnaður nemandi ósáttur við kennslu vinstrisinnaðs kennara í Ármúlanum

Torfi Stefán Jónsson kenn­ari félags­fræði 303 í Fjöl­brauta­skól­anum í Ármúla segir umdeilda glæru byggða á kennslu­bók. Hægri­s­inn­aður nem­andi í áfang­anum seg­ist aldrei hafa upp­lifað meiri slag­síðu í námi.

Hægrisinnaður nemandi ósáttur við kennslu vinstrisinnaðs kennara í Ármúlanum

Torfi Stefán Jónsson, kenn­ar­inn í félags­fræði 303 í Fjöl­brauta­skól­anum í Ármúla, segir í sam­tali við Stundina glæra sem vakti gagn­rýni Hannesar Hólm­steins sé byggð á bók­inni Stjórn­mála­fræði eftir Magnús Gíslason. Torfi seg­ist skráður með­limur í Vinstri hreyf­ing­unni - grænu fram­boði, en vonar þó að það komi ekki að sök. Náms­bókin er ókeypis og má nálg­ast hér.

Stundin ræddi við einn nem­anda í félags­fræði 303 og taldi hann mikla vinstrislag­síðu í áfang­anum. Nem­and­inn er hægri­s­inn­aður að eigin sögn. „Ég myndi segja að það hafi ekki verið heild­stæða slag­síða í þessum tíma, en þar sem var tæki­færi fyrir hana var slag­síða. Mér hefur alltaf fund­ist vera slag­síða í námi en ég hef aldrei séð það með svona tærum hætti og þarna,“ segir nem­and­inn.

Aðeins stikkorð

Torfi bendir á að á glær­unum séu ein­ungis stikkorð og sam­an­burður sé betur skýrður í náms­bók. „Þessar glærur eru unnar beint upp úr bók­inni Stjórn­mála­fræði eftir Magnús Gíslason. Það eru þarna stikkorð á glærunni og síðan er texti í tengslum við það. Þarna er borin saman eign­ar­réttur og mann­rétt­indi. Í bók­inni er svo ágætis dæmi. Í stuttu máli er borið saman til­felli þar sem einka­að­ili á kola­námu­fyr­ir­tæki og ákveður að loka því. Það er hans eign­ar­réttur, hann á þá rétt á að loka námunni vegna þess að hann á hana. Vinstra við­horf væri þá að það séu mann­rétt­indi að vinna þar. Þetta er bara ein glæra sem segir voða lítið,“ segir Torfi.

Óvíst með vinstri slagsíðu

Torfi seg­ist skýra sína stjórn­mála­skoðun í upp­hafi áfang­ans en er ekki reiðu­bú­inn að tæma um það sjálfur hvort hann sé með vinstri slag­síðu. „Ég segi alltaf í byrjun þegar ég kenni áfang­ann hvar ég stend í póli­tík, að ég sé skráður í Vinstri­hreyf­ing­una - grænt fram­boð, en ég hef ekki alltaf kosið flokk­inn. Síðan ræði ég þessar hug­myndir abstrakt. Það verið að tala um vinstri slag­síðu, ég get ekki sagt af eða á um það. Kannski flokk­ast það þannig, kannski ekki. Þessi glæra ein og sér er algjör­lega slitin úr sam­hengi,“ segir Torfi.

„Þá var það komm­ún­ismi Karls Marx.“

Hvergi minnst á blóðuga sögu

Einn nem­andi sem tók prófi í gær upp úr náms­efn­inu telur að það hafi verið skýr vinstrislag­síða í náms­efn­inu. Sjálfur seg­ist hann vera hægri­maður og óskar hann eftir að nafn hans komi ekki fram svo ummæli hans hafi ekki áhrif á ein­kunn­ar­gjöf. „Það voru þrjú atriði í þessum glósum sem hittu í þetta hug­mynda­fræði­lega mark. Eitt sem mér fannst sér­stak­lega athuga­vert var að það var ítrekað talað um jafn­að­ar­stefnu. Þá var það komm­ún­ismi Karls Marx. Jafn­að­ar­stefna er nú mikið lík­ari því sem Sam­fylk­ingin stundar, þó það sé auð­vitað deilu­mál eins og allt svona. Síðan seinna í glós­unum er talað um umbóta­sinn­aða jafn­að­ar­stefnu og bylt­ing­ar­kennda jafn­að­ar­stefnu. Þarna er auð­vitað verið að tala undir rós um sós­í­al­isma og komm­ún­isma. Flestir væru alla­vega sam­mála um það að þetta er veigrun­ar­yrði. Það eiga allir að vita hvað komm­ún­ismi er og það er hvergi minnst á blóð­uga sögu hans. Svo er talað um að eign­ar­réttur sé stuldur, ég held að það þurfi aðeins að brýna að það betur hvaðan þetta er komið,“ segir nem­and­inn.

Gagnrýndi framsetninguna í prófi

Líkt og fyrr segir tók nem­and­inn próf upp úr náms­efn­inu í gær. Hann seg­ist hafa notað tæki­færið til að gagn­rýna fram­setn­ing­una. „Það er ekk­ert hægt að full­yrða svona um hægri vinstri skall­ann. Mér finnst þessi skali merk­ing­ar­laus ef hann er ekki aðeins áþreif­an­legri en þetta. Ef maður horfir á þennan skala í glós­unni þá gat maður ekki ímyndað sér hvað lág þarna að baki og þá er hann merk­ing­ar­laus ef þú getur ekki heim­fært hann á neitt. Ég hef notað þær for­sendur fyrir þennan skala að vinstri sé meiri ítök í einka­líf fólks og fyr­ir­tækja meðan hægri er minni ítök,“ segir nem­and­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
6
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár