Hæddist að andúð vinstrimanna á Thatcher

„Það er konan sem fékk umboð til að stýra Bretlandi í á annan áratug,“ sagði Bjarni Benediktsson á Alþingi í gær.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, fór lofsam­legum orðum um Margréti Thatcher og David Cameron, fyrr­verandi og núverandi forsætis­ráðherra Bretlands og formenn Breska Íhalds­flokksins, á Alþingi í dag þegar rætt var um losun gjaldeyris­hafta, bjartari horfur í ríkis­fjármálum og áform ríkis­stjórnarinnar um skatta­lækkanir.

„Menn kvarta undan því að nefndir séu mögu­leikar á skatta­lækkunum í fram­tíðinni, sem er nokkuð merkilegt vegna þess að skatta­lækkanir eru ekkert annað en það að létta byrðum af heimilunum í landinu,“ sagði Bjarni og bætti við: „Það er ótrúlegt hversu margir virðast seigir í baráttu sinni gegn slíkri stefnu. Það er alveg ótrúlegt. Að létta sköttum af fólki er að gera fólki betur kleift að ná endum saman, það er nú bara svo einfalt. Leyfa fólki að halda hærra hlutfalli af sjálfs­aflafé sínu, er það glæpur?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár