Guðni Th. kosinn forseti Íslands

Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur hlaut 39,1 pró­sent atkvæða í for­seta­kosn­ing­unum. Hylling verður fyrir utan heim­ili hans á Sel­tjarn­ar­nesi klukkan fjögur. Hann á afmæli í dag.

Guðni Th. kosinn forseti Íslands

Sagn­fræð­ing­ur­inn Guðni Th. Jóhann­es­son hefur verið kjör­inn for­seti Íslands með 39,1 pró­senta atkvæða. Hylling verður fyrir utan heim­ili hans og Elizu Reid, eig­in­konu hans, á Sel­tjarn­ar­nesi klukkan fjögur í dag. Frá þessu er greint á vef Rík­is­sjón­varps­ins.  

Guðni, sem lagð­ist undir feld og til­kynnti um fram­boð sitt á upp­stign­ing­ar­dag­inn, verður hylltur sem for­seti á afmæl­is­dag­inn sinn. Hann fædd­ist þann 26. júní árið 1968 í Reykja­vík og er því 48 ára í dag. Hann er með dokt­ors­próf í sagn­fræði og hefur starfað sem háskóla­kenn­ari við Háskóla Íslands und­an­farin ár. Hann tekur við sem for­seti í byrjun ágúst.

Hann ræddi kosn­inga­bar­átt­una, per­sónu­legt líf og emb­ættið í helg­ar­út­gáf­unni á Rás 2 í morgun. „Því miður get ég ekki vænst þess að eiga jafn­margar stundir með börn­unum og ég hef getað gert í öðru starfi,“ sagði hann.

Í þætt­inum kom fram að hann fer til Frakk­lands snemma í fyrra­málið til að fylgj­ast með íslenska lands­lið­inu í knatt­spyrnu mæta Eng­lend­ingum. „Ég leyfi mér að vona að úrslitin verði okkur hag­stæð,“ sagði Guðni og kvaðst byggja von sína á stað­reyndum, þar sem Eng­lend­ingum hafi gengið illa á mót­inu.

„Ég yrði ekki hissa þótt það væri ann­ars konar exit á mánu­dag­inn.“

Guðni kveðst ekki vilja vera for­seti lengur en í þrjú kjör­tíma­bil. Þar sem sitj­andi for­seti hefur ekki verið felldur fram að þessu er því vel mögu­legt að Guðni verði for­seti til árs­ins 2028.

Sjá einnig: Líf og drif­kraftur Guðna: Feimni, föð­ur­missir, skiln­aður og sköpun sög­unnar

Niðurstaða kosninganna

Guðni Th. Jóhann­es­son 38,49%, 71.356 atkvæði

Halla Tóm­as­dótt­ir 27,51%, 50.995 atkvæði

Andri Snær Magna­son 14,04%, 26.037 atkvæði

Davíð Odds­son 13,54%, 25.108 at­kvæði

Sturla Jóns­son 3,48%, 6.446 at­kvæði

Aðrir fengu undir 1%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár