Viðreisn, Vinstri græn og Píratar eru helstu sigurvegarar Alþingiskosninganna 2016

Fá 17 nýja þing­menn, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin missa meiri­hluta þing­manna sinna. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur og bætir lít­il­lega við sig.

Viðreisn, Vinstri græn og Píratar eru helstu sigurvegarar Alþingiskosninganna 2016
Fram­bjóð­endur í nótt Margir eru í lyk­il­stöðu eftir kosn­ing­arnar. Mynd: Pressphotos

Viðreisn, Vinstri grænir og Píratar eru sig­ur­veg­arar Alþing­is­kosn­ing­anna 2016, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin helstu tap­ar­arnir.

Þá bætir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn við sig fylgi og end­ur­heimtir stöðu sína sem langstærsti flokk­ur­inn á land­inu eftir hrun Fram­sókn­ar­flokks.

Bjarni Bene­dikts­son og flokkur hans fá um 34% fylgi í kjör­dæmi hans, Suð­vest­ur­kjör­dæmi, og bæta þar við sig um 4 pró­sentu­stigum. Í heild fær Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tæp­lega 29% á land­inu öllu, sem er mun meira en kann­anir sýndu.

Bæði Bjarni Bene­dikts­son og Benedikt Jóhann­es­son fara fram á að fá stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið. Mörg rík­is­stjórn­ar­mynstur eru í mynd­inni form­lega, en ný rík­is­stjórn mun koma á óvart. „Ég er bara í þessu fyrir ávinn­ing lands­manna,“ sagði Bjarni í við­ræðum á Stöð 2 í hádeg­inu.

PíratarÞing­menn­irnir Birgitta Jóns­dóttir og Gunnar Hrafn Jónsson fagna frammi fyrir far­tölv­unni ásamt Viktori Orra Val­garðs­syni og fleiri.

Birgitta Jóns­dóttir pírati sagði í sam­tali við RÚV að Píratar hefðu gert sína innri spá um 12 til 15 pró­senta fylgi, en kann­anir hafa sýnt þá með um 20 pró­senta fylgi. „Við erum að þre­falda fylgið okkar og það er magnað,“ sagði Birgitta í sam­tali við RÚV. 

„Sú staða að svona margir Íslend­ingar treysta okkur er awesome“

„Sú staða að svona margir Íslend­ingar treysta okkur er awesome,“ sagði Birgitta síðar í ræðu á kosn­inga­vöku Pírata.

Píratar bæta við sig 6 þing­mönnum, Viðreisn fær 7 nýja þing­menn, Vinstri grænir fjölga um 3og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig 2, á meðan Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn missir 11 þing­menn, Sam­fylk­ingin 6 og Björt fram­tíð 2.

Oddný Harð­ar­dóttirFormaður Sam­fylk­ing­in­ar­innar kvaddi með þeim orðum að hún væri hætt að leita útskýr­inga.

Samfylkingin hrynur

Össur Skarp­héð­ins­son féll af þingi í Reykja­vík suður í nótt, en hann var þar í fyrsta sæti fyrir Sam­fylk­ing­una. Sigríður Ingi­björg Inga­dóttur er einnig fallin út í Reykja­vík norður og Sam­fylk­ingin því með engan þing­mann í Reykja­vík. Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi náði Sam­fylk­ingin ekki heldur manni inn og féll Árni Páll Árnason, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, þar út. 

„Ég er hætt að leita skýr­inga.“

„Við eigum að vera stolt af jafn­að­ar­stefn­unni,“ sagði Oddný Harð­ar­dóttir í sam­tali við RÚV, og sagð­ist vilja hætta að ræða erf­iða stöðu Sam­fylk­ing­ar­innar og byrja að ræða fram­tíð­ina. „Ég er hætt að leita skýr­inga. Ég vil bara horfa fram á veg­inn.“ 

Um er að ræða verstu útkomu jafn­að­ar­manna­flokks í hund­rað ár.

Katrín vinnur - Sigmundur fellur

Þá vekur athygli að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn helm­ing­ast í kjör­dæmi Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar í þing­manna­tölu. Flokk­ur­inn var með 34,5% fylgi í kosn­ing­unum 2013 en féll í um 20% nú. 

Katrín Jak­obs­dóttir og listi hennar í Reykja­vík norður fengu hins vegar 21% fylgi í Reykja­vík norður, úr 16% árið 2013, næst á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum sem fékk 24,4% í kjör­dæmi Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur og Birgis Ármans­sonar.

Fylgi skipt­ist með þessum hætti: 

Sjálf­stæð­is­flokkur: 29,0% - 21 þing­menn

Vinstri grænir: 15,9% - 10 þing­menn

Píratar: 14,5% - 10 þing­menn

Viðreisn: 10,5% - 7 þing­menn

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn: 11,5% - 8 þing­menn

Björt fram­tíð: 7% - 4 þing­menn

Sam­fylk­ingin: 6% - 3 þing­menn

Flokkur fólks­ins - 3,5%

Dögun - 1,7%

Alþýðu­fylk­ingin - 0,3%

Íslenska þjóð­fylk­ingin - 0,2%

Húman­istar - 0,0%

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár