Langt á annað þúsund manns mótmæltu árið 1980 fyrirhugaðri smíði Höfðabakkabrúar sem þá hafði verið samþykkt af borgarstjórn Reykjavíkur. Brúin tengdi saman Breiðholt og Árbæ og slysahætta vegna vegamóta á Vesturlandsvegi átti að snarminnka. En harðar deilur spruttu vegna brúarinnar og umræður urðu heitar. Um miðjan mars þetta ár voru Agli Skúla Ingibergssyni borgarstjóra afhentir mótmælalistar með 1400 nöfnum. Félag ungra framsóknarmanna sendi frá sér ályktun þar sem eindregið var varað við brúarsmíðinni. Ungu framsóknarmennirnir lýstu furðu sinni vegna þess að borgarstjórn hefði ekki haft samráð við íbúa áður en ákveðið var að byggja brúnna. Andstaða framsóknarmanna er merkileg í því ljósi að fulltrúi þeirra í borgarstjórn, Kristján Benediktsson, var einn þeirra sem stóðu að samþykktinni. „Það getur komið fyrir besta fólk, jafnvel unga framsóknarmenn, að þeir kynni sér ekki málin nógu vel,“ var haft eftir honum. Sá Kristján ekki ástæðu til að funda með ýmusm samtökum vegna málsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir